Skinfaxi - 01.01.2016, Side 29
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 29
„Í beinu framhaldi af þessu gerðum við
samning við Borgarbyggð í formi aukinna
styrkja og þjónustu sem við veitum sveitar-
félaginu. Það gerði okkur kleift að ráða fram-
kvæmdastjóra í fullt starf. Fyrir rúmu ári tók-
um við að okkur enn fleiri verkefni á vegum
sveitarfélagsins með yfirstjórn með tóm-
stunda- og íþróttaskólanum. Það fór vel af
stað, við þurftum reyndar að skipta um starfs-
mann en annar var ráðinn nú um síðustu ára-
mót. Úr því að vera lítið héraðssamband í
hálfu starfi fórum við upp í tvo starfsmenn
og erum komnir með húsnæði sem sveitar-
félagið skaffar okkur. Aðrir starfsmenn ann-
arra íþróttafélaga eru þar einnig undir sama
þaki. Menn eru því hættir að vera einir úti í
horni sem er mjög góð þróun. Menn eiga nú
meira samstarf og mér sýnist það hægt og
sígandi vera að takast vel. Við skulduðum tölu-
vert þegar við byrjuðum á þessari vegferð en
í dag skuldum við ekki neitt. Allir fjármunir
okkar fara því í rauninni í starfið sjálft. Við
erum ennfremur að stórauka styrki til afreks-
manna en sem dæmi fórum við að veita
150–200 þúsund krónur fyrir fjórum árum.
Á næsta ári höfum úr að spila rúmri milljón í
þann málaflokk. Þegar maður horfir til baka
og síðan fram á veginn er ljóst að það hafa
verið tekin mörg skref í þá átt að gera starfið
enn öflugra og betra, auka samvinnuna og
bæta fjárhagslega nýtingu í leiðinni. Það held
ég að sé bara nokkuð góður árangur. Það
voru skiptar skoðanir um það meðal aðildar-
félaga okkar hvort við værum að fara rétta
leið en ég held að þær efasemdarraddir hafi
þagnað smám saman,“ sagði Sigurður.
Starfsemi aðildarfélaganna
mjög breytileg
Aðspurður um hvernig starfsemin úti í aðild-
arfélögunum gengi sagði Sigurður hana
ganga nokkuð vel og hún væri í rauninni
margs konar.
„Starfsemin nær yfir stórt svæði, raunar
yfir í þrjú sveitarfélög. Starfsemi aðildarfélag-
anna er mjög breytileg, allt frá því að vera
mjög lítil yfir í félög sem eru að sinna mjög
breiðri starfsemi á sviði íþrótta- og félags-
mála. Ég hef haft þá skoðun að það þyrfti að
horfa á þessi félög út frá tveimur meginþátt-
um, íþróttum og öðrum félagsmálum. Ef
Borgarnesi
verslunarmannahelgina
29.– 31. júlí 2016
árangri ætti að ná yrðu íþróttirnar í rauninni
undir hatti sérfélaga sem myndu einblína á
hverja íþróttagrein fyrir sig. Mér sýnist þróun-
in vera í þá átt og félögin vinna um leið
betur saman,“ sagði Sigurður.
Sigurður sagði að þegar hann kom fyrst
inn í starfsemina hjá UMSB hefði þurft að taka
snúning á ýmsu því að honum hefði fundist
hún ómarkviss að mörgu leyti.
„Mörg félög voru að gera hið sama og mikil
krafa um að hin ýmsu félög sinntu einhverj-
um ákveðnum íþróttagreinum umfram aðrar
sem mér fannst frekar rangt þótt hlutverk ung-
mennafélagsins sé eftir sem áður að styðja
við nýjar greinar og koma þeim á koppinn.
Það bíða okkar alltaf krefjandi verkefni og ef
menn vilja aldrei neinu breyta þá tekst þeim
aldrei að bregðast við því.“
Allir leggjast á eitt
– Fram undan hjá ykkur er stórt verkefni,
sjálft Unglingalandsmótið. Hvernig leggst það
í ykkur?
„Undirbúningur gengur bara vel og allir
leggjast á eitt svo að mótið eigi eftir að
ganga að óskum. Það var afar ánægjulegt að
fá mótið hingað í Borgarnes og mjög spenn-
andi fyrir okkur,“ sagði Sigurður.
Þess má geta að Sigurður lét af störfum
sem sambandsstjóri UMSB á nýafstöðnu
þingi sambandsins. Við keflinu tók Sólrún
Halla Bjarnadóttir.
Hluti af keppendum UMSB
á Unglingalandsmóti á Akureyri 2015.
Kvennalið Umf. Skallagríms í körfubolta.