Skinfaxi - 01.01.2016, Page 34
34 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
E vrópa unga fólksins ásamt samstarfs-
aðilum hélt ráðstefnuna Skipta raddir
ungs fólks máli? Ungmennaráð: Þátt-
taka og áhrif, á Hilton Reykjavík Nordica 18.
febrúar s.l. Ráðstefnan var hugsuð fyrir þá
sem standa að baki ungmennaráða sveitar-
félaga og frjálsra félagasamtaka auk fulltrúa
ungmennaráðanna sjálfra.
Á ráðstefnuna voru skráðir 120 þátttakend-
ur frá 22 sveitarfélögum, 20 frjálsum félaga-
samtökum og 10 starfsstöðvum Reykjavíkur-
borgar. Þetta voru 60 starfsmenn og sjálf-
boðaliðar sveitarfélaga og samtaka og 60
fulltrúar ungmennaráða þannig að hér á vel
við máltækið: „Ekkert um okkur, án okkar.“
Ráðstefnan markaði upphaf að árslöngu
verkefni Evrópu unga fólksins sem miðar að
því að auka færni starfsmanna sem styðja
við ungmennaráð svo að festa megi þau enn
betur í sessi sem sjálfsagðan vettvang fyrir
þátttöku og áhrif barna og ungmenna. Ráð-
stefnunni var fyrst og fremst ætlað að veita
starfsfólki og sjálfboðaliðum, sem vinna með
ungu fólki í ungmennaráðum eða hafa áhuga
á að stofna ungmennaráð, tæki og tól til þess.
Nokkur erindi voru flutt á ráðstefnunni.
Unnur Helgadóttir í ráðgjafarhópi umboðs-
manns barna fjallaði um það af hverju ung-
mennaráð eru mikilvæg fyrir samfélagið og
hvernig börn og fullorðnir geta lært hver af
öðrum. Einnig fjallaði Unnur um eigin reynslu
FJÖLMENN RÁÐSTEFNA
UM ÞÁTTTÖKU
UNGS FÓLKS
Evrópa unga fólksins