Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 6
6 S K I N FA X I Skinfaxi 2. tbl. 2022 Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags Íslands, hefur komið út samfleytt síðan 1909. Tímaritið dregur nafn sitt af hestinum fljúgandi sem dró vagn goðsagnaver- unnar Dags er ók um himinhvolfið í norrænum sagnaheimi. R I TST J Ó R I Jón Aðalsteinn Bergsveinsson. Á BY R GÐA R M A Ð U R Jóhann Steinar Ingimundarson. R I T N E F N D Gunnar Gunnarsson, Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir, Sigurður Óskar Jónsson, Kristján Guðmundsson, Jóhanna Íris Ingólfsdóttir og Embla Líf Hallsdóttir. UM BR OT O G H Ö N N U N Indígó. P R E N T U N Litróf. AU GLÝS I N GA R Hringjum. FO R S Í Ð UMY N D Tjörvi Týr Gíslason tók ljósmyndina á forsíðu Skinfaxa af þátttakanda í Drullu- hlaupi Krónunnar. L J ÓS MY N D I R Hulda Margrét Óladóttir, Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Tjörvi Týr Gíslason, Ívar Sæland, Gunnar Gunnarsson, Haraldur Jónasson, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, Magnús Stefán, Örn Guðnason o.fl. SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík, s. 568 2929 umfi@umfi.is - www.umfi.is UM F Í Ungmennafélag Íslands, landssamband ungmennafélaga á Íslandi, var stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907. Sambands- aðilar UMFÍ eru 26 talsins og skiptast í 21 íþróttahérað og 5 ungmennafélög með beina aðild. Alls eru um 450 félög innan UMFÍ um land allt. ST J Ó R N UM F Í Jóhann Steinar Ingimundarson formaður, Gunnar Þór Gestsson varaformaður, Ragnheiður Högnadóttir meðstjórnandi og formaður framkvæmdastjórnar, Guð- mundur G. Sigurbergsson gjaldkeri, Sigurður Óskar Jónsson ritari, Málfríður Sigurhansdóttir meðstjórnandi og Gunnar Gunnarsson meðstjórnandi. VA R AST J Ó R N UM F Í Hallbera Eiríksdóttir, Lárus B. Lárusson, Gissur Jónsson og Guðmunda Ólafsdóttir. STA R FS FÓ L K UM F Í Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmda- stjóri, Einar Þorvaldur Eyjólfsson fjármála- stjóri, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson kynn- ingarfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa, Ómar Bragi Stefánsson landsfulltrúi og fram- kvæmdastjóri Landsmóta (með aðsetur á Sauðárkróki), Ragnheiður Sigurðar- dóttir landsfulltrúi og verkefnastjóri og Guðbirna Kristín Þórðardóttir ritari. Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Skólabúða á Reykjum og Ungmenna- búða UMFÍ á Laugarvatni. S KÓ L A BÚ Ð I R Á R E Y K J UM Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, Arnar Hrólfsson, Andrea Ólafsdóttir og Luis Augusto Aquino, leiðbeinendur. Gísli Kristján Kjartansson kokkur og Oddný Bergsveina Ásmundsdóttir aðstoðarkona í eldhúsi. Róbert Júlíusson húsvörður og Elmar Davíð Hauksson sér um þrif. U N GM E N N A BÚ Ð I R Á L AU GA RVAT N I Halldóra Kristín Unnarsdóttir, frístunda- og tómstundafræðingur. Þorsteinn Hauksson, Bjarki Páll Gunnarsson og Rebekka Rut Ingvadóttir, leiðbeinendur. Egill Snær Sveinsson kokkur og Tinna Diljá Kala Söndrudóttir aðstoðar í eld- húsi. Árni Einarsson og þátttakendur í pallborði í lok ráðstefnunnar.Kristín Ninja Guðmundsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Kristín Ninja Guðmundsdóttir, lögfræðingur hjá heilbrigðisráðuneyt- inu, segir ákveðinn hóp úr röðum alþingismanna og talsmenn fram- leiðenda varanna ekki vilja sjá mikil inngrip í sölu á vörunum. Rök þeirra séu þau að rafrettur og nikótínvörur, þar á meðal nikótínpúðar, séu skaðaminnkandi og fólk noti þær til að draga úr tóbaksreykingum eða reyna að hætta þeim. Staðreyndin sé þvert á móti sú að stærstur hluti notenda varanna sé ungt fólk undir tvítugu sem ekki hafi notað tóbak áður og hafi nú ánetjast efninu í gegnum þessar vörur. „Við erum komin með nýjan hóp ungmenna sem er orðinn háður nikótíni en reykti ekki áður. Við hefðum þvert á móti átt að stíga það skref að nikótínvörur yrðu með barnalæsingu,“ segir Kristín og þykir það greinilega mjög miður að sú hafi ekki orðið raunin. Hún hélt erindi á málþingi um nikótín og heilsu sem UMFÍ stóð fyrir nú í október ásamt Fræðslu og forvörnum (FRÆ) og Krabbameinsfélagi höfuðborgarsvæð- isins. Átaki kastað út í hafsauga Á málþinginu kom fram að á síðastliðnum fimmtíu árum þegar átak gegn tóbaksreykingum 15–16 ára ungmenna hófst hefði tekist að draga gríðarlega úr þeim. Nú heyrði til algjörra undantekninga að ungt fólk reykti. Á hinn bóginn hefði notkun rafretta og nikótínpúða aukist svo mikið á síðastliðnum tveimur árum að um helmingur ungs fólks á aldrin- um 15–16 ára notaði nikótínpúða eða aðrar tóbaksvörur. Til viðbótar kom fram á málþinginu að tóbaksframleiðendur væru helstu eigendur fyrirtækja sem framleiddu nikótínvörur og væri mörgum sinnum meira magn nikótíns í hverjum nikótínpúða en í einni sígarettu. Jafnframt væri meira magn leyft í vörunum hér á landi en í öðrum löndum. Mun færri rannsóknir hefðu jafnframt verið gerðar á áhrifum nikótínvara en reyk- tóbaks og sagði einn þátttakenda á mælendaskrá málþings að börn og ungmenni væru tilraunadýr tóbaksframleiðenda. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, sagði í ávarpi sínu leitt að sjá íþróttamenn og forystufólk í íþróttahreyfingunni með út- troðnar varir og tóbaksnef. Hvatti hann fólk í íþróttahreyfingunni til að vera fyrirmyndir um heilbrigt líferni og hollustu. Kristín segir það hafa verið vonbrigði hversu mótfallnir sumir þing- menn hafi verið bættum nikótínlögum. Ljóst sé að bragðefni breyti skynjun á hættulegum vörum og sé þeim óhikað ætlað að höfða til yngri markhóps. „Enginn ætlar sér að verða nikótínneytandi. En nikótínvörurnar eru gildra. Það er því miður að ekki náðist samstaða um málið með sama hætti og í Evrópu þar sem verið er að taka harðar á málinu. Mér þykir leitt að Ísland sé ekki í forystu,“ segir hún. Leitt að Ísland sé ekki í forystu Þingmenn úr röðum Pírata, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar mótmæltu banni við bragðbætingu rafretta og nikótínvara þegar unnið var að gerð nýrra nikótínlaga sem samþykkt voru á Alþingi í sumar. Þetta leiddi til þess að mun veikara frumvarp var samþykkt en ella.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.