Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 42

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 42
42 S K I N FA X I HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? Karatefélag Reykjavíkur er elsta karatefélag landsins og fagnar 50 ára afmæli á næsta ári. Það er aðildarfélag Íþróttabandalags Reykja- víkur (ÍBR). Iðkendur eru um 140 og eru um 70% þeirra börn og ungmenni. Félagið hefur undir beltinu bæði karatemann og karate- konu ársins. Karatefélag Reykjavíkur bryddaði upp á þeirri nýjung fyrir nokkrum árum að bjóða for- eldrum að æfa greinina á sama tíma og börnin. Þessi þjónusta hefur verið vinsæl, enda sniðug leið til að virkja foreldra í hreyfingu á sama tíma og börn þeirra, að sögn Gunnars Sigurðar- sonar, formanns félagsins. Börn og foreldrar æfa karate Karatefélag Reykja- víkur í hnotskurn · Aðildarfélag Íþróttabandalags Reykjavíkur · Æfingaaðstaða í kjallara Laugardalslaugar · Er með öflugt starf fyrir börn 6–11 ára og ungmenni 12–16 ára · Þau sem vilja geta mætt og prófað ókeypis í tvö skipti „Fimmtán manna hópur æfir í einum sal á meðan börnin eru í hinum salnum. Þau æfa á sama tíma og gera sömu æfingar. Við gefum okkur oft ekki tíma til að hreyfa okkur en með þessu er fólk hvatt til að nýta tímann í stað þess að sitja og horfa á símann sinn. Við erum á besta útivistarsvæðinu í Reykjavík. Við hvetj- um því alla foreldra til að nýta tímann í laug- inni eða fara í göngu, þar sem Laugardalurinn hefur upp á fjölmargar frábærar gönguleiðir að bjóða,“ segir Gunnar, sem tók við formannsstöðunni í byrjun árs 2021 eftir að hafa æft karate síðastliðin 7–8 ár. Alltaf á tánum Gunnar segir karatefólk ætíð vera vakandi fyrir því að dreifa áhuganum á greininni. Ein þeirra leiða er að láta æfingagjöldin kallast á við frístundastyrk borgarinnar. „Við stefnum á að hækka ekki æfingagjöld umfram frístundastyrkinn, því það er fullt af fólki sem á ekki pening. Ef þú getur ekki borg- að æfingagjöldin mætum við þeirri stöðu, við förum ekki í harðar innheimtur. Iðkendur fá líka ókeypis búning og þá vantar viðkomandi aldrei neitt. En auðvitað höfum við þröng fjár- ráð, því allur peningur sem kemur í kassann rennur beint inn í félagsstarfið. Þjálfararnir okkar eru heldur ekki launaðir, því við höfum einfaldlega ekki efni á því. Við reynum samt að koma til móts við þá með einum eða öðr- um hætti. Þótt æfingagjöldin séu lág eru þau fastinn okkar. Síðan þurfum við auðvitað að eiga sjóð, því við erum í leiguhúsnæði. En þetta hefur samt alltaf gengið,“ segir Gunnar. Gunnar segir ástæðu þess að hann hafi ákveð- ið að gefa kost á sér í formannsembættið þá að félagið hafi gefið honum meira en hann því. „Það er mjög mikilvægt að foreldrar láti til sín taka í starfi íþróttafélaga. Það á ekki að vera fast í því að fáir sjái um allt. Við verðum að hafa félagsþroskann í að láta okkur umhverfi barna okkar varða, ekki bara sitja og láta aðra alltaf sjá um hlutina. Þetta er ákveðinn ungmenna- félagsandi. Fólk þarf að vilja leggja af mörkum. Formúlan byggir einmitt á þeim grunni. Um leið og það fannst að ungmennafélagið var að gera eitthvað fyrir samfélagið og árangur- inn varð sjáanlegur voru fleiri til í að leggja af mörkum. Karatefélag Reykjavíkur er rekið af ungmennafélagsandanum. Það er fullt af fólki hér sem finnur sinn vettvang hjá okkur. En við erum öðrum fremur ungmennafélag. Við mæl- um ekki árangur okkar í Íslandsmeistaratitlum, heldur í brosum barnanna sem æfa hjá okkur. Þarna eru svo hamingjusamir krakkar. Ungu iðkendurnir skila sér líka upp í unglingahóp- inn, því þar hættir enginn af óánægju. Hér eru allir bestu vinir og það sést á árangrin- um,“ segir Gunnar að lokum. Forsvarsfólk Karatefélags Reykjavíkur er alltaf að leita leiða til að vekja áhuga fólks á greininni. Ein þeirra er að fá foreldra ungra iðkenda til að æfa á sama tíma og börnin í stað þess að sitja með hendur í skauti á bak við gler.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.