Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 24
24 S K I N FA X I „Við hjá íþróttahéraðinu erum miðpunkturinn. Við svörum spurningum og veitum upplýsing- ar þannig að þau sem vilja standa fyrir starfi fái aðstoðina sem þau vilja. Samvinnan er lykil- atriði og við liðkum fyrir henni milli félaga. Við styðjum við nýjar deildir og þær sem eru að efla sig. Við erum reglulega í sambandi við félögin þannig að þau viti af okkur. Eins ef for- eldri fatlaðs barns vill koma því í íþróttir, þá erum við til svars og reynum að finna félag í nágrenninu,“ segir Martin Wroblewski, þróun- arstjóri íþrótta fyrir fatlaða hjá Viken. Félags- svæðið nær yfir 24.000 ferkílómetra og þar eru 2.500 íþróttaiðkendur sem stríða við fötl- un, í 310 félögum. Norðmenn tala um „parasport“, en „para“ þýðir að vera „við hliðina á“. „Við viljum tryggja að fatlaðir hafi aðgang að íþróttum í nærum- Það skiptir máli að félögin fái þá aðstoð sem þau þurfa Um 2.500 fatlaðir íþróttamenn eru skráðir í félög hjá íþróttahéraðinu Viken í Noregi. Norðmenn hafa lagt mikla vinnu í að tryggja víðtækt framboð íþrótta fyrir þá sem á einhvern hátt stríða við fötlun. UMFÍ í heimsókn hjá Viken Um 40 fulltrúar frá UMFÍ og aðildarfélög- um heimsóttu Viken-íþróttahéraðið í Noregi um miðjan mars árið 2022. Viken er fylkið sem nær utan um Óslóarborg. Þar búa um 1,2 milljónir manna í 51 sveitar- félagi. Hjá íþróttahéraðinu starfa 18 starfs- menn á sex sviðum. Í Noregi er eitt íþróttasamband en undir því eru 11 íþróttahéruð, jafn mörg og fylkin, en Norðmenn hafa einu stjórnsýslustigi meira en við. Fylkjunum er samt að fjölga; ákveðið hefur verið að skipta Viken, sem áður var þrjú fylki, aftur upp í þau fylki. Ekki stendur þó til að skipta héraðssamband- inu upp. Til hliðar við þau eru 54 sérsam- bönd. Í flestum sveitarfélögum starfar síðan Þegar tónlistin hættir vill þjálfarinn tala Martin kom inn á það hvernig þjálfarar koma skilaboðum á framfæri á annan hátt en með tali. Bakgrunnur hans er í körfubolta og tók hann dæmi um hvernig tónlist væri notuð í körfuknattleik meðal heyrnar- lausra. „Græjurnar eru settar á gólfið og skrúfað upp í bassanum. Þegar tónlistin er í gangi titrar gólfið undan bassanum en það hættir þegar tónlistin er stöðvuð. Það er merki um að þjálfarinn vilji koma skilaboðum á framfæri.“ íþróttaráð, sem heldur meðal annars utan um mannvirkjagerð. Sérsamböndin skiptast síðan líka upp í svæðisbundin ráð. Íþróttafélögin sjálf eru tæplega 7.600 talsins en voru um 12.000 fyrir nokkrum Hluti ferðalanganna frá Íslandi. hverfi sínu. Það þarf ekki að vera með sérstök félög, það er vel hægt að vera með öllum hin- um – meira að segja í skotíþróttum,“ sagði Martin. Mörg félög nýta „allidrett“-fyrirkomu- lagið úr barnastarfinu, þar sem hægt er að æfa fjölda greina, í starf fyrir fatlaða. Klifrið sló í gegn Til að ná þessu markmiði stendur Viken fyrir margvíslegu fræðslustarfi, til dæmis um hvernig hægt sé að koma upp íþróttaæfing- um fyrir fatlaða, hvernig náð sé til fatlaðra sem vilja stunda íþróttir og hvernig stutt sé við þá sem eru með falda fötlun, sem er hópur sem vaxandi áhersla er lögð á. Á nokkrum stöðum í Viken er árlega haldinn dagur þar sem félög með starf fyrir fatlaða koma og kynna starfsemi sína. Valinn er hent- ugur staður og síðan er félögunum úr nágrenn- inu boðið. Allir sem mæta til að prófa fá upp- lýsingar með heim um hvernig þeir geti stund- að þær íþróttir sem kynntar voru. Unnið er náið með framhaldsskólum með íþróttabrautir þar sem nemendur aðstoða við undirbúning og utanumhald dagsins og fá það metið til eininga. Þátttakendur geta verið á hverri stöð eins lengi og þeir vilja, mikilvægast er að finna ánægjuna. Í máli Martins kom fram að vinsæl- asta greinin á síðasta Paraidrettdagen hefði verið klifur. Á svæðinu er einnig í boði íþróttavika fyrir fatlaða. Einstaklingarnir eru í búðunum í viku en sveitarfélögin leggja til stuðningsfulltrúa með þeim. Um 50–70 þátttakendur komast að en fleiri vilja vera með. Verið er að leita leiða til að fjölga sætunum. árum. Þótt þeim hafi fækkað hefur fjöldi iðk- enda haldist svipaður. Innan Viken eru tæp- lega 1.500 félög, með rúmlega 400.000 félaga.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.