Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 41

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 41
 S K I N FA X I 41 Gamla myndin: Landsmótið á Þingvöllum 1957 10. Landsmót UMFÍ var haldið á Þingvöllum dagana 29.–30. júní árið 1957. Þetta ár fagn- aði UMFÍ hálfrar aldar afmæli og var stjórn UMFÍ staðráðin í að halda myndarlega upp á tímamótin. Landsmótið var á margan hátt öðruvísi en önnur. Þegar stjórn UMFÍ bað Hermann Jónasson, þáverandi forsætisráð- herra, um leyfi til að halda mótið veitti hann það með því skilyrði að ekki yrði seldur aðgangur inn á mótið. Stjórn UMFÍ brá þá á það ráð að fá myndlistarkennarann Þór Sig- urðsson til að hanna merki fyrir sig í tilefni af 50 ára afmæli félagsins. Á merkinu mátti sjá hvítbláan fána á birkilaufi með stöfum UMFÍ. Það þótti táknrænt fyrir starf og hugsjónir ungmennafélaganna. Merki þetta var selt og var andvirðið nýtt til að fjármagna Landsmótið. Fleiri nýjungar litu dagsins ljós á Landsmót- inu. Keppnisgreinum var fækkað töluvert frá fyrri mótum. Niðurskurðarhnífnum var misk- unnarlaust beitt og féll meira að segja þjóðar- íþróttin glíman niður í fyrsta sinn. Og þetta var líka eina skiptið sem slíkt gerðist. Af öðrum greinum má nefna að handbolti kvenna fékk að halda sér en knattspyrnu karla var bætt við. Öllum starfsíþróttum var hins vegar kastað fyrir róða. Frjálsíþróttagreinum kvenna fækkaði úr fimm í tvær en úr þrettán í níu hjá körlum. Mótið fór fram á Þingvöllum, þar sem er engin sundaðstaða nema í vötnum, lækjum og sprænum sem spretta ísköld fram undan hrauni. Í bókinni Vormenn Íslands eftir Jón M. Ívarsson segir að fólki hafi þótt það boð frá- gangssök að synda í Þingvallavatni. Afráðið var því að færa greinina til Hveragerðis, enda vatnið þar töluvert heitara en inni í landi. Eftir mikla íþróttaskemmtun yfir daginn á þessu hálfrar aldar afmælismóti sló fólk ekki slöku við, heldur skellti sér á dansleik þar sem dansað var undir fögrum tónum hljóm- sveitar Björns R. Einarssonar, sem spilaði vínarkrus, ræl, valsa og rokk inn í nóttina. Á myndinni hér að ofan sést gott viðbragð- ið í 5 km hlaupinu. Jón Gíslason frá Vallholti í Eyjafirði bar sigur úr býtum, en hann er lengst til hægri í fremstu röðinni. Hann var jafnframt fyrstur í mark í 1,5 km hlaupi. Hlíðasmári 6 Kópavogi 510 7900

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.