Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 26
26 S K I N FA X I Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði fór fram á Laugarvatni í byrjun september. Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir var á meðal fjölmargra þátttakenda í kaffihúsaspjalli. „Mér fannst æðislegt að fá að vera með og fara út fyrir kassann með þátttakendum á ráðstefnunni. Það er augljóst að unga fólkið var að leita að styrkleikum sínum. Það spurði mig að einu og öðru þeim tengdu. Ég sagði ungmennunum að vera óhrædd við að finna styrkleikana og hafa kjark til að elta þá,“ segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, for- stjóri Marel á Íslandi. Hún var einn af gestum í kaffihúsaspjalli á ung- mennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem fram fór í gamla Héraðs- skólanum á Laugarvatni í byrjun september. Ráðstefnan er eins og fyrr ætluð ungu fólki á aldrinum 16–25 ára og er hún skipulögð af ung- mennaráði UMFÍ. Mikilvægt fyrir ungt fólk að kíkja út fyrir þægindarammann Sterkari ungmenni Ráðstefnan hefur verið haldin árlega frá árinu 2009 og er markmið hennar að efla lýðræðisþátttöku ungs fólks. Markmið ráðstefnunnar er að þátttakendur fái tækifæri til að læra og þjálfa sig og verða sterkari einstaklingar. Um 80 þátttakendur á aldrinum 16–25 ára af öllu landinu tóku þátt í ráðstefnunni alla helgina. Allar ungmennaráðstefnurnar hafa fjallað um ákveðin málefni. Það sama var uppi á teningnum á Laugarvatni og var yfirskriftin þar Láttu drauminn rætast. Á ráðstefnunni var boðið upp á kynningar, uppörvun og afar hvetjandi málstofur. Einni þeirra stýrði leikarinn og pepparinn Bjartur Guðmundsson, sem kenndi fólki að kjarna sig og bæta fram- komu sína, Anna Steinsen frá KVAN fjallaði líka um muninn á jákvæð- um og neikvæðum leiðtogum og Sema Erla Serdar, aðjúnkt í tómstun- da- og félagsmálafræðum við Háskóla Íslands, stýrði málstofu sem fékk þátttakendur til að velta fyrir sér hvernig hægt væri að stuðla að aukinni þátttöku ungmenna af erlendu bergi brotinna í skipulögðu íþróttastarfi og þar fram eftir götunum. Sema þekkir vel til málaflokks-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.