Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 25

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 25
 S K I N FA X I 25 „Við erum að taka saman lokaábendingar sem unnið var úr. Þetta er frumskógur. En markmið- ið er að fylgja málinu eftir, leggja það fyrir ráð- herra sem fyrst, virkja fleiri, helst að ráða verk- efnastjóra og koma málefnum barna með fötl- un í farveg hjá sveitarfélögunum,“ segir Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi og starfsmaður á þróunarsviði Íþróttasambands fatlaðra. Hún var einn skipuleggjenda og forkólfa að ráð- stefnunni Farsælt samfélag fyrir alla, sem haldin var í apríl á þessu ári og fjallaði með Bjartsýn á jafnari tækifæri barna með fötlun Anna Karólína hjá Íþróttasambandi fatlaðra er í skýjunum með ráðstefnu þriggja ráðuneyta sem haldin var í vor. Íþróttir fatlaðra í grófum dráttum • Íþróttasamband fatlaðra stofnað 17. maí 1979. • ÍF hefur yfirumsjón með allri íþróttastarf semi fatlaðra og vinnur að eflingu henn- ar um allt land og kemur fram erlendis. • Fyrsta Íslandsmót fatlaðra var Íslands- mót í lyftingum sem fór fram í sal Ríkis- sjónvarpsins árið 1977. • Paralympics-dagurinn er kynningar- dagur á íþróttum fólks með fötlun. • Í dag eru 22 íþróttafélag fyrir fatlaða um land allt. • Skráning íþrótta fatlaðra er afar misjöfn. Í skýrslu Íþróttasambands fatlaðra sem lögð var fyrir á Sambandsþingi 2021 kemur m.a. fram að ítrekað hafi komið upp umræða um að setja á fót net erind- reka um landið sem hafi það hlutverk að fylgja eftir þátttöku barna, með sérstaka áherslu á jaðarhópa og brotfall. • Í skýrslunni kemur líka fram að leitað var upplýsinga um stöðu íþróttamála fatl- aðra í Fjarðarbyggð. Þar voru mörg félög en misvirk. Engar upplýsingar fram um þátttöku, tölfræði eða annað sem tengist íþróttaiðkun fatlaðra á svæðinu. Yfirsýnin var ekki til staðar. • Íþróttafélagið Akur á Akureyri – 1974 – aðildarfélag ÍBA. • Íþróttafélagið Fjörður í Hafnarfirði – 1992 – aðildarfélag ÍBH • Íþróttafélagið Eik á Akureyri – 1978 – aðildarfélag ÍBA. • Íþróttafélagið Ösp í Reykjavík – 1980 – aðildarfélag ÍBR. • Íþróttafélagið Suðri á Selfossi – 1986 – aðildarfélags HSK. • Íþróttafélagið Gnýr Sólheimum í Grímsnes- og Grafningshreppi – 1983 – aðildarfélag HSK. • Íþróttafélagið Nes á Suðurnesjum – 1991 – Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum. • Íþróttafélag Fatlaðra í Reykjavík – 1974 – aðildarfélag ÍBR. • Íþróttafélagið Ívar á Ísafirði – 1988 – aðildarfélag HSV. • Bocciadeild Íþróttafélagsins Völsungs á Húsavík – 1990 – aðildarfélag HSÞ. • Íþróttafélagið Ægir í Vestmanna- eyjum – 1988 – aðildarfélag ÍBV. • Íþróttafélagið Þjótur á Akranesi – 1992 – aðildarfélag ÍA. • Sólin íþróttadeildir fatlaðra í Snæfellsbæ. afar víðtækum hætti um tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi. Þetta var stórmerkileg ráðstefna. enda stóð Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið að henni í samvinnu við Mennta- og barnamálaráðu- neyti auk Heilbrigðisráðuneytis og íþrótta- hreyfingarinnar. Á ráðstefnunni var leitast við að koma auga á þær áskoranir sem landsmenn standa frammi fyrir þegar kemur að jöfnum tækifær- um barna til íþróttaiðkunar. Á ráðstefnunni og eftir hana unnu fulltrúar íþróttafélaga, íþróttasambanda, sveitarfélaga og fleiri að mótun tillagna að aðgerðaráætlun um fulla þátttöku og virkni fólks með fötlun. En hvar er málið statt og hvert er fram- haldið? „Það er ljóst að mörg börn eru útilokuð frá þátttöku í íþróttastarfi, meðal annars vegna fötlunar þeirra. Þess vegna var gaman að sjá hversu margir komu á ráðstefnuna í vor frá sveitarfélögum, félagsmiðstöðvum og víðar að. Slíkt fólk er í lykilstöðu til að hreyfa við málinu. Ég sé fyrir mér að félagsmálastjórar geti gegnt stóru og mikilvægu hlutverki í þessum málaflokki,“ segir Anna Karólína, sem er afar bjartsýn á framhaldið. • Sundfélagið Óðinn á Akureyri – 1962 – aðildarfélag ÍBA. • Íþróttafélagið Snerpa á Siglufirði – 1987 – aðildarfélag UÍF. • Íþróttafélagið Gróska í Skagafirði – 1992 – aðildarfélag UMSS. • Íþróttafélagið Viljinn á Seyðisfirði – 1985 – aðildarfélag UÍA. • Íþróttafélag Heyrnarlausra – 1979 – deild innan Félags heyrnarlausra – ekki innan sambandsaðila. • Íþrótta- og hestamannafélagið Gáski – 1982 – óvirkt í dag. • Íþróttafélagið Hlynur – Endurhæf- ingadeild Landspítalans í Kópavogi – 1983 – hætt. • Íþróttafélagið Tjaldur í Mosfellsbæ – 1984 – hætt. • Íþróttafélagið Örvar á Fljótsdals- héraði – 1985 – aðildarfélag UÍA. • Íþróttadeildir fatlaðra í Stykkishólmi • Almenn deild, Íþróttafélagið Gerpla í Kópavogi – 1971 – aðildarfélag UMSK . • Dansfélagið Hvönn – aðildarfélag UMSK. • Keiludeild ÍR – aðildarfélag ÍBR. Innan ÍF eru 22 aðildarfélög um allt land:

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.