Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 21
 S K I N FA X I 21 og bendir á að lausnirnar geti leynst víða. Þær séu nefnilega til en mikilvægt sé að draga þær fram í dagsljósið. „Þegar ég var hjá félaginu Nesi í Keflavík var kenndur áfangi í lífs- leikni við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Í áfanganum fóru krakkarnir út á vettvang og unnu sjálfboðavinnu. Við sömdum um það að krakkarnir fengu að koma og aðstoða á æfingum hjá Nesi. Fyrirkomulagið var beggja hagur. Krakkarnir í FS fengu einingar fyrir sjálfboðavinnuna og krakkarnir í Nesi fengu aðstoð á æfingum. Krakkarnir úr FS stóðu sig frábærlega og það var mikil hjálp að fá að fá þau á æfingar. Kosturinn var að þetta kostaði ekki neitt – nema að hugsa í lausnum,“ heldur Ingi Þór áfram en bendir samt á að vissulega hafi þetta verið auðveld- ara í tilviki Ness og Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þar sem íþróttafélagið sé í næsta nágrenni við skólann. Því er ekki að skipta í öllum tilvikum og auðveldaði nálægðin samstarfið til muna. Mikilvægt að skoða nýjar nálganir Mikilvægt er að opna fyrir ýmsa möguleika og skoða margar nálganir til að ná svipaðri niðurstöðu og nefnd var hér að ofan, þ.e. sem getur leitt til þess að létta undir með þjálfurum á íþróttaæfingum svo að íþróttir verði sannarlega fyrir alla. „Það má líka velta því fyrir sér hvort útfæra megi þessar pælingar með þeim hætti að þeir sem eru atvinnulausir og í atvinnuleit hafi áhuga á þessu. Við erum með mannskap þarna úti sem er til í að aðstoða þetta íþróttastarf. En mikilvægt er að tengja fólk saman. Það er til fullt af svona lausnum, það þarf bara samtalið til að finna út úr þeim. Það eru örugglega einhver flækjustig í þessu. En úr þeim er hægt að greiða til að finna leiðirnar,“ segir Ingi Þór. Sú tíð er löngu liðin að fólk sé opinberlega neikvætt í garð íþrótta- iðkunar einstaklinga með fatlanir. Ingi Þór telur um 20 ár síðan hann hafi síðast orðið þess áskynja. „Staðan hefur vissulega breyst og farið heilmikið fram. Umræðan er miklu jákvæðari núna um íþróttir einstaklinga með fatlanir heldur en hún var áður fyrr. Auðvitað þurfa ekki allir að styðja íþróttir fatlaðra af krafti, en maður heyrir sjaldan talað um þær á neikvæðan hátt. Það er alltaf einhver á bremsunni og fólk má alveg hafa sínar skoðanir. Mér finnst íþróttafélögin gera þetta vel og vera mjög samkeppnishæf við annað sem ég hef séð erlendis. Helsti þröskuldurinn sem ég sé er að íþróttafélögin mættu vera opnari fyrir því að hvetja einstaklinga með fatlanir til að koma til sín og prófa íþróttir hjá þeim, og láta vita að þau séu opin fyrir því að finna lausnir fyrir alla. Lausnin þarf ekki að vera fullkomin.“ Lausnin felst í samtalinu Ingi Þór segir draumaútfærsluna þá að íþróttafélög og aðrir hagsmuna- aðilar fari að ræða meira saman en áður, svo sem um þarfir, drauma og væntingar. „Við þurfum að fá að vita hvað það er nákvæmlega sem börn með fatlanir og foreldrar þeirra vilja sjá frá íþróttafélaginu sínu. Drauma- staðan er sú að á hverjum einasta stað verði hægt að finna lausn á stað- bundnum vandamálum. Við þurfum að skoða hvaða byggingar við höfum, greina aðstöðuna, velta því fyrir okkur hvað þjálfararnir geta og þess háttar. Lausnirnar eru þarna en við erum oft lítið að tala saman. Ég held að lausnin kosti minna og sé nær okkur en margir halda. Ef við bara ákveðum að setjast niður, allir þessir beinu og sjálfsögðu hags- munaaðilar; fulltrúar íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga og ríkis, íþróttafólkið og foreldrar þeirra, þá held ég að það sé hægt að finna lausnir á ansi mörgum af þessum vandamálum sem núna standa í vegi fyrir íþróttaþátttöku barna með fatlanir. Að sjálfsögðu er hægt að segja að það þurfi meiri peninga og stuðning við verkefnið. En það er ekki stóra mengið. Við getum fundið lausn á því á sjálfbærari og betri hátt svo að íþróttir verði fyrir alla,“ segir Ingi Þór að lokum. Dæmi um áskoranir þjálfara Barni finnst gaman að horfa á hópíþróttir í sjónvarpi. Foreldrarnir skrá því barnið sem iðkanda í hópíþróttum. En barnið þolir illa snertingu og á erfitt með að deila hlutum með öðrum, svo sem boltum. Þjálfari stendur frammi fyrir því að vera einn með 28 börn og eitt með sérþarfir, sem vill ekki keppa og ekki snerta aðra og neitar að láta bolta frá sér. Þegar slíkt kemur upp er ósanngjarnt að velta ábyrgðinni yfir á íþróttafélagið. Þess í stað þarf að finna lausn á málinu svo að enginn beri skarðan hlut frá borði. Ingi Þór Einarsson á sundmóti með Kristínu Þorsteinsdóttur en í bakgrunni sést í Sonju, Anítu og Guðfinn.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.