Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 6
6 S K I N FA X I
Skinfaxi 2. tbl. 2022
Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags Íslands,
hefur komið út samfleytt síðan 1909.
Tímaritið dregur nafn sitt af hestinum
fljúgandi sem dró vagn goðsagnaver-
unnar Dags er ók um himinhvolfið í
norrænum sagnaheimi.
R I TST J Ó R I
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.
Á BY R GÐA R M A Ð U R
Jóhann Steinar Ingimundarson.
R I T N E F N D
Gunnar Gunnarsson, Elísabet Ásdís
Kristjánsdóttir, Sigurður Óskar Jónsson,
Kristján Guðmundsson, Jóhanna Íris
Ingólfsdóttir og Embla Líf Hallsdóttir.
UM BR OT O G H Ö N N U N
Indígó.
P R E N T U N
Litróf.
AU GLÝS I N GA R
Hringjum.
FO R S Í Ð UMY N D
Tjörvi Týr Gíslason tók ljósmyndina á
forsíðu Skinfaxa af þátttakanda í Drullu-
hlaupi Krónunnar.
L J ÓS MY N D I R
Hulda Margrét Óladóttir, Hafsteinn Snær
Þorsteinsson, Tjörvi Týr Gíslason, Ívar
Sæland, Gunnar Gunnarsson, Haraldur
Jónasson, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
Magnús Stefán, Örn Guðnason o.fl.
SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA
Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42,
105 Reykjavík, s. 568 2929
umfi@umfi.is - www.umfi.is
UM F Í
Ungmennafélag Íslands, landssamband
ungmennafélaga á Íslandi, var stofnað á
Þingvöllum 2. ágúst 1907. Sambands-
aðilar UMFÍ eru 26 talsins og skiptast í
21 íþróttahérað og 5 ungmennafélög
með beina aðild. Alls eru um 450 félög
innan UMFÍ um land allt.
ST J Ó R N UM F Í
Jóhann Steinar Ingimundarson formaður,
Gunnar Þór Gestsson varaformaður,
Ragnheiður Högnadóttir meðstjórnandi
og formaður framkvæmdastjórnar, Guð-
mundur G. Sigurbergsson gjaldkeri,
Sigurður Óskar Jónsson ritari, Málfríður
Sigurhansdóttir meðstjórnandi og
Gunnar Gunnarsson meðstjórnandi.
VA R AST J Ó R N UM F Í
Hallbera Eiríksdóttir, Lárus B. Lárusson,
Gissur Jónsson og Guðmunda Ólafsdóttir.
STA R FS FÓ L K UM F Í
Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmda-
stjóri, Einar Þorvaldur Eyjólfsson fjármála-
stjóri, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson kynn-
ingarfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa, Ómar
Bragi Stefánsson landsfulltrúi og fram-
kvæmdastjóri Landsmóta (með aðsetur
á Sauðárkróki), Ragnheiður Sigurðar-
dóttir landsfulltrúi og verkefnastjóri og
Guðbirna Kristín Þórðardóttir ritari.
Sigurður Guðmundsson forstöðumaður
Skólabúða á Reykjum og Ungmenna-
búða UMFÍ á Laugarvatni.
S KÓ L A BÚ Ð I R Á R E Y K J UM
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, Arnar
Hrólfsson, Andrea Ólafsdóttir og Luis
Augusto Aquino, leiðbeinendur. Gísli
Kristján Kjartansson kokkur og Oddný
Bergsveina Ásmundsdóttir aðstoðarkona
í eldhúsi. Róbert Júlíusson húsvörður og
Elmar Davíð Hauksson sér um þrif.
U N GM E N N A BÚ Ð I R Á
L AU GA RVAT N I
Halldóra Kristín Unnarsdóttir, frístunda-
og tómstundafræðingur. Þorsteinn
Hauksson, Bjarki Páll Gunnarsson og
Rebekka Rut Ingvadóttir, leiðbeinendur.
Egill Snær Sveinsson kokkur og Tinna
Diljá Kala Söndrudóttir aðstoðar í eld-
húsi.
Árni Einarsson og þátttakendur í pallborði í lok ráðstefnunnar.Kristín Ninja Guðmundsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu.
Kristín Ninja Guðmundsdóttir, lögfræðingur hjá heilbrigðisráðuneyt-
inu, segir ákveðinn hóp úr röðum alþingismanna og talsmenn fram-
leiðenda varanna ekki vilja sjá mikil inngrip í sölu á vörunum. Rök þeirra
séu þau að rafrettur og nikótínvörur, þar á meðal nikótínpúðar, séu
skaðaminnkandi og fólk noti þær til að draga úr tóbaksreykingum eða
reyna að hætta þeim. Staðreyndin sé þvert á móti sú að stærstur hluti
notenda varanna sé ungt fólk undir tvítugu sem ekki hafi notað tóbak
áður og hafi nú ánetjast efninu í gegnum þessar vörur.
„Við erum komin með nýjan hóp ungmenna sem er orðinn háður
nikótíni en reykti ekki áður. Við hefðum þvert á móti átt að stíga það
skref að nikótínvörur yrðu með barnalæsingu,“ segir Kristín og þykir
það greinilega mjög miður að sú hafi ekki orðið raunin. Hún hélt erindi
á málþingi um nikótín og heilsu sem UMFÍ stóð fyrir nú í október ásamt
Fræðslu og forvörnum (FRÆ) og Krabbameinsfélagi höfuðborgarsvæð-
isins.
Átaki kastað út í hafsauga
Á málþinginu kom fram að á síðastliðnum fimmtíu árum þegar átak
gegn tóbaksreykingum 15–16 ára ungmenna hófst hefði tekist að draga
gríðarlega úr þeim. Nú heyrði til algjörra undantekninga að ungt fólk
reykti. Á hinn bóginn hefði notkun rafretta og nikótínpúða aukist svo
mikið á síðastliðnum tveimur árum að um helmingur ungs fólks á aldrin-
um 15–16 ára notaði nikótínpúða eða aðrar tóbaksvörur. Til viðbótar
kom fram á málþinginu að tóbaksframleiðendur væru helstu eigendur
fyrirtækja sem framleiddu nikótínvörur og væri mörgum sinnum meira
magn nikótíns í hverjum nikótínpúða en í einni sígarettu. Jafnframt væri
meira magn leyft í vörunum hér á landi en í öðrum löndum. Mun færri
rannsóknir hefðu jafnframt verið gerðar á áhrifum nikótínvara en reyk-
tóbaks og sagði einn þátttakenda á mælendaskrá málþings að börn
og ungmenni væru tilraunadýr tóbaksframleiðenda.
Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, sagði í ávarpi sínu
leitt að sjá íþróttamenn og forystufólk í íþróttahreyfingunni með út-
troðnar varir og tóbaksnef. Hvatti hann fólk í íþróttahreyfingunni til að
vera fyrirmyndir um heilbrigt líferni og hollustu.
Kristín segir það hafa verið vonbrigði hversu mótfallnir sumir þing-
menn hafi verið bættum nikótínlögum. Ljóst sé að bragðefni breyti
skynjun á hættulegum vörum og sé þeim óhikað ætlað að höfða til
yngri markhóps.
„Enginn ætlar sér að verða nikótínneytandi. En nikótínvörurnar eru
gildra. Það er því miður að ekki náðist samstaða um málið með sama
hætti og í Evrópu þar sem verið er að taka harðar á málinu. Mér þykir
leitt að Ísland sé ekki í forystu,“ segir hún.
Leitt að Ísland sé ekki í forystu
Þingmenn úr röðum Pírata, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar mótmæltu banni við bragðbætingu
rafretta og nikótínvara þegar unnið var að gerð nýrra nikótínlaga sem samþykkt voru á Alþingi
í sumar. Þetta leiddi til þess að mun veikara frumvarp var samþykkt en ella.