Skinfaxi - 01.02.2022, Side 8
8 S K I N FA X I
Margrét Kristinsdóttir tók við sem fram-
kvæmdastjóri Ungmennafélagsins Sindra
á Höfn í Hornafirði í júní. Hún segir ríka
kröfu um að iðkendur fái faglega þjálfun
en það sé kostnaðarsamt og setji rekstri
íþróttafélaga skorður.
„Stjórnendur íþróttafélaga standa held ég
flestir frammi fyrir þeirri áskorun að reyna að
halda þjálfun í hæsta gæðaflokki með góðum
þjálfurum. Á sama tíma þarf að reka félögin
eins og fyrirtæki með öllum sínum kostum og
göllum. Þetta er í raun viðfangsefni allra stjórn-
enda,“ segir Margrét Kristinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ungmennafélagsins Sindra á
Höfn í Hornafirði.
Góð þjálfun kostar sitt
„Þeir sem reka íþróttafélög standa frammi fyrir
ýmsum áskorunum, krefjandi málum sem
stjórnendur fyrirtækja standa almennt ekki
frammi fyrir. Við þurfum sem dæmi að greiða
menntuðum þjálfurum góð laun. Frístunda-
styrkir og hvatagreiðslur duga ekki til. Við urð-
um að hækka æfingagjöldin hér á Höfn í haust
til að standa undir launakostnaði. Þegar það
gerist eru foreldrarnir að láta fé af hendi rakna
svo að íþróttafélagið geti látið enda ná saman,“
segir Margrét og bætir við að slík þróun geti
haft heldur neikvæðar afleiðingar í för með sér.
„Við viljum að börnin okkar fái gæðaþjálfun
og góða umgjörð. Það er alveg hætt við því
að ekki geti allir foreldrar staðið undir hærri
æfingagjöldum barna sinna. En það gengur
þvert á væntingar okkar um að öll börn hafi
Fleiri nýir stjórnendur
Margrét Kristinsdóttir er einn fjölmargra
nýrra stjórnenda innan íþrótta- og ung-
mennafélagshreyfingarinnar. Hér eru
nokkur þeirra sem hafa tekið við á árinu.
Hrönn Ríkharðsdóttir, formaður Íþrótta-
bandalags Akraness
Snjólaug M. Jónsdóttir, formaður
Ungmennasambands Austur-Húnvetninga
Óskar Þórðarson, formaður Ungmenna-
og íþróttasambands Fjallabyggðar
Magnea Dröfn Hlynsdóttir, formaður
Héraðssambands Strandamanna
Lára Ósk Pétursdóttir, formaður
Héraðssambands Vestfirðinga
Jón Sverrir Sigtryggsson, formaður
Héraðssambands Þingeyinga
Bjarney Bjarnadóttir, framkvæmda-
stjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar
Klara Bjarnadóttir, formaður
Ungmennafélags Grindavíkur
Grétar Eggertsson, framkvæmdastjóri
Umf. Aftureldingar í Mosfellsbæ
Baldvin Sturluson, framkvæmdastjóri
Stjörnunnar í Garðabæ
Há æfingagjöld geta leitt til
stéttaskiptingar í yngri flokkum
jöfn tækifæri. Þegar foreldrarnir geta ekki
staðið undir útgjöldunum til íþróttafélaganna
getur það leitt til stéttaskiptingar, sérstaklega
í yngri flokkum. En það viljum við auðvitað
ekki sjá, enda eigum við að leyfa öllum börn-
um að njóta sömu tækifæra,“ segir Margrét,
sem mælir með því að ríki og sveitarfélög finni
leiðir til að leggja meira fjármagn til reksturs
íþrótta- og ungmennafélaga. Það sé sam-
félagsleg ábyrgð þeirra.
Leitum nýrra leiða
Margrét bendir á að margar nýjar leiðir hafi
verið farnar sem geti bætt fjárhagsgrundvöll
félaganna. Þar á meðal eru breytingar á lög-
um um almannaheillafélög og skattafrádrátt-
ur til einstaklinga og fyrirtækja vegna fram-
laga til félaga, sem geta styrkt fjárhagslega
umgjörð rekstrarins verulega. Þessar leiðir
hafa ekki verið nýttar að ráði, enda mögu-
leikarnir sem felast í þeim lítið verið kynntir,
að mati Margrétar.
„Félögin hafa sett þetta inn á síðurnar sín-
ar. En það þarf að gera betur og gera átak í
að kynna það betur. Á sama tíma getur íþrótta-
hreyfingin líka byggt upp nýjan strúktúr, kom-
ið með hugmynd með ríki og sveitarfélögum
að umgjörð sem bætir reksturinn,“ segir hún
að lokum.
Margrét Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri
Ungmennafélagsins Sindra.