Skinfaxi - 01.02.2022, Síða 32
32 S K I N FA X I
F élag áhugafólks um íþróttir aldraðra
var stofnað árið 1985. Það voru ákafir
áhugamenn sem stóðu að verkefninu
undir forystu Guðrúnar Níelsen. Mikil og blóm-
leg starfsemi hafði verið í félaginu um fjórtán
ára skeið þegar ég kom að því á aðalfundi
haustið 1999. Þar var ég tilnefndur varaformað-
ur félagsins og gegndi því hlutverki til síðasta
fundar, sem haldinn var 23. febrúar árið 2018.
Markmið félagsins var frá upphafi að vinna
að vellíðan aldraðra með iðkun leikfimi, sunds
og annarra íþrótta og stuðla að menntun leið-
beinenda. Jafnframt skyldi breiða út íþróttir
aldraðra og stuðla að framkvæmd rannsókna
um heilsufræðilegt gildi íþróttaiðkunar aldr-
aðra, afla niðurstaðna slíkra rannsókna og
kynna þær.
Fyrstu 14 árin
Fyrstu árin hjá FÁÍA einkenndust af námskeiða-
haldi fyrir leiðbeinendur í Reykjavík, farið var
í ratleiki, Íþrótta- og leikjadagar voru haldnir
árlega á hverjum öskudegi frá árinu 1987, boð-
ið var árlega upp á Sæluviku á Laugarvatni um
níu ára skeið frá árinu 1989, sunddagar og
skemmti- og fræðslufundir voru haldnir árlega
auk hópleikfimisýningar sem var á Íþróttahátíð
ÍSÍ árið 1990.
Leiðbeinendanámskeið
Þungamiðja starfsemi okkar var leiðbeinenda-
námskeiðin sem haldin voru í Reykjavík. Á ára-
bilinu 1986 til 2013 voru þau haldin nítján sinn-
um. Leiðbeinendur voru bæði innlendir og
erlendir, fremstu fagmenn á sviði heilbrigðis-
mála. Við í félaginu fundum fyrir innilegri þörf
fyrir námskeiðin, enda sóttu þau að jafnaði
30 til 130 þátttakendur.
Öskudagshátíðin var haldin árlega allar göt-
ur frá árinu 1987. Þar komu saman hópar frá
félagsmiðstöðvum í Reykjavík og nágrenni,
leikflokkar, kórar, fimleikafólk og dansflokkar
og skemmtu sér og sýndu hversu margir mögu-
leikar væru til að láta sér líða vel og leika sér
saman.
Með öldruðu fólki við íþróttastörf
í áhugamannaliði.
Finnum við öll mikla framkvæmdaþörf
með fræðslu á heilsufarssviði.
Kynnisferðir og námskeið á
landsbyggðinni
Mér varð strax ljóst að fram undan voru mörg
spennandi verkefni. ÍSÍ veitti okkur myndarleg-
an framkvæmdastyrk. Þetta var djörf áskorun
til okkar að vinna vel og standa undir þeim
væntingum sem fjárstyrkurinn veitti. Með
þetta fjármagn í höndum auk árlegs styrks frá
ríkinu og Reykjavíkurborg gátum við unnið að
kynningu og námskeiðum um allt land. Okkur
var ekki til setunnar boðið. Á næstu 18 árum
höfðum við kynningu á 90 félagsmiðstöðvum
eldri borgara á yfir 50 stöðum á landinu. Meðal
verkefna voru boccia, pútt, dansar, leikfimi
með hjálpartækjum, boltaleikir, spilaborð-
keppni, vatnsleikfimi, almenn heilsufræði og
miðlun upplýsinga um gildi hreyfingar. Leið-
beinendur fengu kennslu- og fræðslugögn
sem tengd voru þessum verkefnum.
En þessu var betur lýst í eftirfarandi stöku:
Íþróttir ljúfar í leikjum og dönsum
með ljóðin og sönginn er fjarlægja kvíðann.
Stöðugt við margs konar athöfnum önsum
sem auka við gleði og betri líðan.
Starfsemi okkar og vinnuaðstaða FÁÍA gjör-
breyttist árið 2000 þegar við fengu vinnu- og
skrifstofuaðstöðu hjá UMFÍ. Þar voru allar að-
stæður eins og best var kosið. Fyrrverandi for-
menn UMFÍ, Hafsteinn Þorvaldsson og Pálmi
Gíslason, hófu ásamt undirrituðum samtímis
að sinna eldri ungmennafélögum. Þar með
féllu verkefnin að hluta til í sama farveg. Sam-
starfið og samveran opnaði nýjar víddir í verk-
efninu. Við fengum ómetanlega fyrirgreiðslu
hjá starfsfólki UMFÍ, góð ráð og ágætan
félagsskap.
Brátt fór starf okkar í kynnisferðunum að
bera árangur. Vaxandi áhugi eldri borgara
víða um landið kom í ljós. Við komum með
FÁÍA hreyfing og heilsufar
Hjörtur Þórarinsson hefur um árabil verið einn af öflugri einstaklingum innan ungmennafélagshreyfingar-
innar. Hann var virkur félagi í Félagi áhugafólks um íþróttir aldraðra (FÁÍA) um tuttugu ára skeið, en félagið
var lagt niður árið 2018. Hjört langaði til að rifja upp sögu félagsins og hefur sett saman nokkra punkta.
verkefni og sýningaratriði á landsmótin hjá
UMFÍ. Sú þátttaka leiddi m.a. til þess að blás-
ið var til fyrsta Landsmóts UMFÍ 50+ árið 2011.
Þetta ræktunarstarf hefur tekið mörg ár að
þróast en hefur haldið stöðu sinni og aukist.
Á nokkrum stöðum eru árleg landshlutamót í
botsía, pútti og ringó og eru það enn helstu
keppnisgreinarnar á Landsmóti UMFÍ 50+
Vinnuaðstaðan hjá UMFÍ var okkur ómetan-
leg og þakkarverð.
Ungmennafélagið hlýtur hól,
hnýttur er félags strengur.
Heimilislausum var húsaskjól
einn helsti og vænsti fengur.
Áhugafólki þið auðsýnduð rausn,
öldruðum komuð að liði.
Nú finnum við betur framtíðarlausn
við framkvæmd á íþróttasviði.
Afmælisritið Aldrei of seint
Í tilefni af 25 ára afmæli félagsins árið 2010
var gefið út 200 blaðsíðna afmælisrit, Aldrei
of seint, í ritstjórn Þóris S. Guðbergssonar
rithöfundar.
Ljóst var um þetta leyti að félagið hefði mark-
að spor í íþróttasögu landsins með námskeið-
um fyrir kennara og leiðbeinendur úr öllum
landsfjórðungum.
Þakkir, kveðjur og afmælisóskir
Hér áður fyrr var hreyfing fyrir eldra fólk mjög
takmörkuð og naut lítils skilnings hjá almenn-
ingi. Boðskapur FÁÍA var tímabær og á hann
alltaf við, að aldrei sé of seint að stunda göngu,
sund og leikfimi á efri árum til að halda hreyfi-
getunni sem lengst og njóta efri áranna. Þannig
hefur fræið sem sáð var borið ávöxt og hugar-
far fólks breyst í gegnum árin.
Nefnd Eldri ungmennafélaga hefur tekið
við keflinu úr hendi FÁÍA og stefnir á að halda
uppi heilsueflingu og hreyfingu eldri aldur-
shópa um land allt.
Hjörtur Þórarinsson
Hjörtur Þórarinsson (lengst til vinstri) með síð-
ustu stjórn FÁÍA þegar félagið var lagt niður. Dans og hreyfing á öskudegi.Púttmót FÁÍA 60+ í Reykjanesbæ árið 2016.