Skinfaxi - 01.02.2022, Qupperneq 36
36 S K I N FA X I
„Að mínu mati heppnaðist hlaupið afar vel. Öll sem komu að undirbún-
ingi þess eiga hrós skilið, félagar í skokkhópum Álftaness og Garða-
bæjar, fulltrúar UMFÍ og UMSK og annað gott fólk,“ segir Guðni Th.
Jóhannesson, forseti Íslands. Hann tók fullan þátt í Forsetahlaupi
UMFÍ, sem haldið var í fyrsta sinn
á Álftanesi 3. september. Þetta var
fyrsta skiptið sem hlaupið er haldið
og markaði það lok íþróttasumars
og íþróttaveislu UMFÍ.
Rúmlega tvö hundruð þátttak-
endur voru skráðir í hlaupið, þar
sem annars vegar var í boði að
hlaupa eina mílu, eða rétt rúma 1,6
kílómetra, og hins vegar fimm kílómetra. Fyrra hlaupið var sprettur við
Íþróttamiðstöðina og næsta nágrenni. Hinn var öllu lengri og náði að
hlaðinu á Bessastöðum, þar sem hlaupararnir sneru við.
Guðni Th. var á meðal þeirra sem tóku þátt í báðum hlaupavega-
lengdunum en afhenti jafnframt verðlaun í fjórum flokkum karla og
Forseti Íslands: Takk fyrir mig!
Forsetahlaup UMFÍ var ein af nýjungunum í Íþróttaveislu UMFÍ. Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, segir hlaupið hafa heppnast afar vel og naut hann þess að skokka með grönnum sínum.
„Ég hvet öll þau sem á því hafa tök að
hreyfa sig á þann hátt sem mesta gleði
vekur, með því að ganga eða hlaupa, æfa
íþróttir eða arka á fjöll. Lýðheilsa er eitt
mikilvægasta viðfangsefni samtímans.“
kvenna og ungmennaflokki. Að hlaupi loknu var öllum þátttakendum
boðið upp á pylsur og með því til að kæla sig niður, enda veðrið afar
gott.
Guðni naut þess að skokka með grönnum sínum á nesinu og mörg-
um fleirum.
„Öll tókum við þátt á eigin for-
sendum, sum til að hlaupa sem
hraðast og ná sem bestum tíma,
önnur til þess að njóta hreyfingar
og félagsskapar. Ekki skemmdi
fyrir að veðrið var frábært og að
hlaupi loknu gátu keppendur og
aðrir viðstaddir brugðið á leik,
notið hressingar eða bara spjallað við mann og annan. Sem sagt: Takk
fyrir mig og ég hvet öll þau sem á því hafa tök að hreyfa sig á þann hátt
sem mesta gleði vekur, með því að ganga eða hlaupa, æfa íþróttir
eða arka á fjöll. Hreyfing getur aðeins aukið vellíðan og lýðheilsa er
eitt mikilvægasta viðfangsefni samtímans,“ segir hann.