Skinfaxi - 01.02.2022, Side 38
38 S K I N FA X I
Þú hefur nýlega keypt þér götureiðhjól, hjóla-
fataskápurinn er kominn á sinn stað og hjóla-
skórnir tilbúnir til að smella þeim í pedalana.
Þú hugsar kannski: „Hvernig í ósköpunum
er best að fara af stað í þjálfuninni?“
Í þessari grein, sem fengin er af danska
VoresPuls-vefnum, er reynt að sýna hvernig
þú getur byrjað og hvernig þú getur komist
vel af stað. Hjólaþjálfun á vegum snýst nefni-
lega ekki bara um að hjóla nokkra kílómetra.
Eins og með svo margt annað er mælt með
að þú byrjir á sjálfum þér.
Hvað ætlar þú þér með keppnishjólinu þínu?
Ef þú hefur fjárfest í keppnisreiðhjóli hefurðu
líklega í huga hvað þú ætlar að nota það í.
Kannski er markmiðið að komast í betra form,
léttast eða taka þátt í hjólakeppni en kannski
finnst þér bara gaman að hjóla. Þú keyptir
alla vega ekki dýrt keppnishjól til að láta það
standa ónotað.
Skilvirkasta þjálfunin fyrir þig byggist að
miklu leyti á markmiðum þínum og þeim tíma
sem þú hefur til þjálfunar. Því er gott að gera
sér ljóst hverju þú vilt ná með þjálfuninni og
hversu miklum tíma þú ætlar að eyða í hana.
Það er alltaf gott að finna aðra einstaklinga
sem eru í sömu sporum og þú til að hjóla með.
Þó að ekki séu enn sem komið er margir hjól-
reiðaklúbbar hér á landi má alltaf finna einhverja
sem hafa sama áhugamál. Burtséð frá persónu-
legu markmiði þínu og hvort þú ætlar að hjóla
með öðrum eða ekki byrja allir byrjendur frá
grunni.
Svona byrjar þú
Hjólaþjálfun á vegum er að miklu leyti líkams-
ræktarþjálfun. Í öðrum greinum hjólreiða skipa
styrkur og tækni stórt hlutverk en á veginum
er það fyrst og fremst líkamlegt form sem skipt-
ir máli. Ef þú ert vanur því að vera virkur og
stunda íþróttir, eins og hlaup eða sund, stend-
urðu betur að vígi sem byrjandi, því þá ert þú
líklega þegar í góðu líkamlegu formi.
Burtséð frá því hvort þú ert að byrja frá grunni
eða ekki er mælt með rólegri byrjun. Í byrjun
geturðu haft hverja æfingu innan við klukku-
tíma. Gefðu þér góðan tíma til að kynnast hjól-
inu, finndu þægilega stöðu, lærðu vel á gíra
og bremsur og hjólaðu bara hægt og rólega
með fótunum.
Í framhaldinu getur þú smám saman byrjað
að lengja æfingatímann og auka styrkinn.
Vertu óhræddur við að henda þér í allt að
tveggja tíma æfingar. Tveir tímar af þolþjálfun
Keppnishjólreiðar sem líkamsrækt
– Svona getur þú byrjað þjálfunina
Hvernig er best fyrir nýliða að hefja þjálfun í keppnishjólreiðum?
Hér eru nokkur góð ráð til að byrja á götunum.
hljóma kannski eins og full mikil ákefð, en hjól-
reiðaþjálfun þarf alls ekki að vera svo erfið.
Öfugt við til dæmis hlaup miðast hjólreiða-
þjálfun mikið við fæturna. Efri hluti líkamans
þarf bara að halda líkamanum stöðugum á
meðan fæturnir vinna verkið. Yfirleitt setur því
hálftíma hlaupaþjálfun meira álag á líkamann
en hálftími á keppnishjólinu. Hjólreiðaþjálfun
er eins erfið og þú gerir hana. Það segir sig
líka sjálft að það þarf að vera erfitt öðru hvoru
ef þú vilt fá sem mest út úr þjálfuninni.
Stöðug þjálfun er mikilvæg
Í byrjun finna margir að þeir eru fljótir að bæta
sig. Ef þú byrjar vel og æfir reglulega muntu
líklega taka eftir því að þú bætir þig, ef ekki
frá viku til viku, þá frá mánuði til mánaðar. Þú
getur hjólað aðeins erfiðar og aðeins lengur
og hjólreiðarnar verða auðveldari í heildina.
Þegar þú hjólar ert þú að mestu leyti að
þjálfa loftháð kerfi líkamans. Þetta þýðir að þú
bætir getu líkamans til að framleiða orku með
súrefni. Þýtt á hjólreiðaþjálfun þýðir þetta að
vöðvarnir verða betri í að taka upp og vinna
með súrefni og geta því unnið lengur og á
meiri hraða. Þú getur því hjólað hraðar og
lengur.