Skinfaxi - 01.02.2022, Side 40
40 S K I N FA X I
„Þetta er heilmikil vinna og mörg ár hafa farið
í verkið,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn
Marteinn Sigurgeirsson, sem hefur lengi verið
viðloðandi vinnu við sögu UMFÍ og íþrótta-
starfs á Íslandi. Sjálfur er hann frá Selfossi, sem
er á sambandssvæði HSK, en hefur búið um
árabil í Kópavogi, á sambandssvæði UMSK.
Honum er umhugað um varðveislu sögunnar
og sýndi m.a. heimildarmynd af sögu mótanna
á sögusýningu sem opnuð var í tengslum við
Bjargar upptökum
af Landsmótum UMFÍ
Kvikmyndagerðarmaðurinn Marteinn Sigurgeirsson hefur unnið
að því í gegnum árin að safna saman efni sem tekið hefur verið upp
á Landsmótum UMFÍ. Fyrsta mótið var haldið árið 1909 og síðasta
stigamótið á Selfossi árið 2013.
aldarafmæli Ungmennafélags Íslands 2007.
Ljósmyndir voru teknar af fyrstu mótunum
og var ekki byrjað að kvikmynda þau fyrr en á
landsmótinu á Hvanneyri árið 1943.
Marteinn hefur hægt og bítandi safnað upp-
tökum af mótunum saman í þeim tilgangi að
varðveita þær og gefa landsmönnum mögu-
leika á að njóta minninganna.
„Þetta er mikil vinna. Upptökurnar liggja
víða og því er gott að hafa afrit af þeim á ein-
um stað. Ég hef safnað efninu víða. Ég átti til
dæmis ekki upptökur af afmælismótinu á Akur-
eyri árið 2009. Það var mjög flott og sólin
skein. Upptökur af öllum mótunum voru til
hjá RÚV og keypti ég ákveðnar mínútur af
þeim. Það má líta svo á að þetta gerist í skref-
um. Nú eigum við nokkrar mínútur af hverju
móti. En við getum fjölgað þeim, fært mynd-
efnið í aukin gæði og stækkað umfjöllunina.
Það tekur meiri tíma og kostar auðvitað sitt,“
segir hann og bætir við að mótahaldið sé ná-
tengt sögu héraða landsins. Sex til átta lands-
mót hafi verið haldin í hverjum landsfjórðungi.
Marteinn hefur þegar gert eina heimildarmynd
um sögu landsmótanna á sambandssvæði
HSK og kom hún út fyrir nokkrum árum.
„Það væri gaman að klára hringinn með
myndefni í fullum gæðum. Það er svolítil vinna,
að sjálfsögðu. En það væri gaman,“ segir hann.
Þekktir tökumenn
Margir af þekktustu leikstjórum þjóðarinnar
hafa fest Landsmót UMFÍ á filmur og hefur
Marteinn samið við þá um höfundarrétt á efn-
inu. Leikstjórinn Reynir Oddsson tók upp allt
Landsmótið á Laugum árið 1961. Reynir skráði
sig á spjöld íslenskrar kvikmyndasögu þegar
mynd hans Morðsaga var frumsýnd árið 1977.
Marteinn segir mikið af áhugaverðu myndefni
til á spólum, eins og frá Laugum, en þar var
synt í ísköldu vatni í tjörn sem hafði verið
stífluð.
„Það er margt forvitnilegt til á upptökunum.
Á efni sem tekið var upp á landsmótinu á
Laugarvatni árið 1965 má sjá upptökur af því
þegar hljómsveitin Mánar spilaði í fyrsta sinn
opinberlega. Þar er líka heilmikið viðtal við
Labba sem tekið var í Glóru,“ heldur Mar-
teinn áfram.
Marteinn hefur safnað saman á einn stað
öllu því efni sem hann hefur fundið og
búið til grófklippt eintak af upptökunum
þar sem hægt er að skoða fimm mínútur
frá hverju móti til Landsmóts UMFÍ á
Selfossi árið 2013. Á upptökunum má
m.a. sjá viðtöl við Svein í Kálfskinni, Gísla
Halldórsson, Reyni Karlsson, Hafstein
Þorvaldsson, Hörð Óskarsson sund-
kennara og marga fleiri. Upptökurnar
eru vistaðar á myndasvæði UMFÍ og er
hægt að skoða þær þar.
Frá keppni í hástökki á Landsmótinu á Akureyri 1955.
Marteinn Sigurgeirsson kvikmyndagerðamaður.