Bókatíðindi - 01.12.2009, Page 72
BÓKATÍÐINDI 2009
íslensk skáldverk
er nefnist íslensk Dægurlög.
Þar tekur Hugleikur fyrir vin-
sæla popplagatitla og þekkt
textabrot úr dægurmenningu
klakans og umbreytir þeim í
absúrd gamanmál.
72 bls.
Ókeibæ
ISBN 978-9979-9958-0-7/-1 -4
Leiðb.verð: 1.990 kr. hvor
bók Kilja
l.íIdtl i,iti(Vi bíl'iium
LÍKIÐ í RAUÐA BÍLNUM
Ólafur Haukur Símonarson
Rannsóknarlögreglunni berst
bréf með dularfullum vís-
bendingum. Jónas, lausráðinn
rannsóknarmaður, er sendur
í Litlu-Sandvík til að kanna
málið. Kennari við grunnskól-
ann er horfinn sporlaust. Jón-
as flækist í vef þungra örlaga
og afbrota og að leikslokum
er hann því fegnastur að vera
enn á lífi.
192 bls.
Skrudda
ISBN 978-9979-655-46-6
Leiðb.verð: 1.990 kr. Kilja
MILLI TRJÁNNA
Gyrðir Elíasson
Milli trjánna er áttunda smá-
sagnasafn Gyrðis Elíasson-
ar, sem hlaut tilnefningu til
hinna virtu Frank O'Connor
bókmenntaverðlauna vor-
ið 2009 fyrir Steintré, síð-
asta smásagnasafn sitt. Og
nú birtist safn 47 nýrra smá-
sagna sem einkennast all-
ar af þeim áreynslulausa
og myndríka stíl sem prýðir
verk Gyrðis. Þá kallast um-
fjöllunarefni þessa safns á
við fyrri sögur höfundar. Hér
bregður fyrir líkt og áður ým-
iskonar óhugnaði og furðum,
einsemd, draumum, ferða-
lögum, bernskuminningum
og framtíðarsýnum, auk
þeirrar ísmeygilegu fyndni
sem lesendur þekkja úr fyrri
verkum.
272 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-39-6
ARNALDUR
INDRIDASON
MYRKA
„þtltbyggl ilriwm
íImulhiigsuöiiin stíl niristiiriiiis."
MYRKÁ
Arnaldur Indriðason
í snyrti legri íbúð í Reykjavík
finnst fáklæddur maður liggj-
andi í blóði sínu. Óminn-
islyf í jakkavasa vekja grun
um II áform og vísbendingar
leiða lögregluna á slóð dul-
ins ofbeldis og hrottalegra
sálarmorða. Myrká er tólfta
skáldsaga Arnaldar Indriða-
sonar og sú níunda um lög-
regluteymið á Hverfisgötu.
294 bls.
FORLAGIÐ
Vaka-Helgafell
ISBN 978-9979-2-2096-1 Kilja
NEKTARMYNDIN
Helgi Jónsson
Hin fjórtán ára Fjóla Lind
lætur taka nektarmyndir af
sér og birtast þær í tímariti.
Foreldrar hennar brjálast,
sem og unnusti hennar. En
þegar Ijósmyndarinn Valur
finnst myrtur hefst atburðarás
sem enginn hefði getað séð
fyrir. Það er því verk að vinna
fyrir unga lögguparið Róbert
og Láru, nýliða í rannsókn-
arlögreglunni.
Mögnuð spennusaga.
260 bis.
Tindur
ISBN 978-9979-653-13-4
Leiðb.verð: 5.690 kr.
Ólafur Helgi Kjartansson
Ný von að morgni
Tlu sýslumannstógur að veston
.Mo oru logui um líM og ntonim *m hofa mmjm ImJb
óiw b«a i bloiing BÆfonm bniu a hofafa. ffaBo ™o9 m
tuhms konor hna og ólok í mombjn lilvng og
apftmngwo. Em sogaa (joA* nl iams um M oi
fanrr siu mikki bein m kuhnu i oi leko
>ónsMó« honotrollMUiddiKur hoitn.
oajor f|imi«éi'
Q’sratein
NÝ VON AÐ MORGNI
Tíu sýslumannssögur
oð vestan
Ólafur Helgi Kjartansson
Þetta eru sögur um lífið og
tilveruna. Flestar snúast um
einhvers konar hrun og átök
í mannlegri tilveru og upp-
bygginguna. Ein sagan fjallar
til dæmis um það að konur
séu miklu betri en karlmenn
í að reka íþróttafélög. Þetta
er allt skáldskapur. Það eru
engar fyrirmyndir.
127 bls.
Vestfirska forlagið
ISBN 978-9979-778-83-7
Leiðb.verð: 1.900 kr.
70