Bókatíðindi - 01.12.2009, Page 170
BÓKATÍÐINDI 20 0 9
Fræði og bækur almenns efnis
SIGRA HEIMINN
FIÁRMÁLASAGA
VERALDARINNAR
NIALL
FERGUSON
PENINCARNIR
SIGRA HEIMINN
Niall Ferguson
í þessari forvitnilegu bók
fjallar heimsfrægur breskur
sagnfræðingur um sögu fjár-
málalífsins frá upphafi vega
og fram á mitt ár 2009. Lýst
er hlutverki peninganna í
helstu atburðum mannkyns-
sögunnar og sýnt fram á að
mikilvægasta lexía fjármála-
sögunnar er að allar bólur
springa að lokum, fyrr eða
síðar breytist græðgin í ótta.
Metsölubók sem fengið hefur
frábæra dóma gagnrýnenda.
380 bls.
Bókafélagið Ugla
ISBN 978-9979-651-45-1
PENNY
FORYOUR
THOUCHTS
PENNY FOR YOUR
THOUCHTS
Tobias Nielsén, Donimic
Power og Margrét Sigrún
Sigurðardóttir
í þessari bók er horft gagn-
rýnum augum á helstu goð-
sagnir viðskiptaheimsins um
uppbyggingu og rekstur fyr-
irtækja. Bókin er skemmti-
j lega uppsett sem handbók
með lýsandi dæmum úr at-
vinnulífinu og eru niðurstöð-
| ur hennar byggðar á viða-
j miklum rannsóknum á fyr-
j irtækjum í skapandi rekstri á
j Norðurlöndunum.
Bókinni er ætlað að gefa
ráð um rekstur og vöxt með
því að deila reynslu innan
j nokkurra fyrirtækja af fjár-
j mögnun og skipulagningu
fjarhagslegrar framtíðar
þeirra. Sýnt er fram á hvern-
ig hægt er að byggja upp fyr-
irtæki í góðum rekstri og vera
J jafnframt skapandi. Rann-
j sóknin sem bókin byggist á
J er styrkt af Norræna nýsköp-
unarsjóðnum. Hann hefur
undanfarin ár lagt áherslu á
að styðja verkefni sem efla
skapandi atvinnustarfsemi á
Norðurlöndum.
200 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 978-9979-70-562-8
Leiðb.verð: 3.290 kr. Kilja
RAFBASSINN
Kennslubók fyrír
byrjendur í rafbassaleik
Ólafur Kristjánsson
í fyrsta skipti á íslensku er nú
komin út kennslubók fyrir
byrjendur í rafbassaleik. í
bókinni er blandað saman
æfingum og þekktum lögum,
íslenskum og erlendum. Á
aðgengilegan hátt er nótna-
lestur kenndur þannig að
byrjendur eiga að geta spilað
einföld lög eftir lestur bók-
arinnar. Einnig er að finna
tækniæfingar sem nauðsyn-
legar eru fyrir bassaleikara.
Geisladiskur með undirleik
af æfingum og lögum fylgir
bókinni.
96 bls.
Ljósalind ehf.
ISBN 978-9979-9895-0-9
Leiðb.verð: 4.000 kr.
RAGNARSBÓK
RAGNARSBOK
Frœbirit um mannréttindi
til heiöurs Ragnari
Aöalsteinssyni
Ragnar Aðalsteinsson, mál-
flutningsmaður og mannrétt-
indafrömuður, hefur lengi
unnið ómetanlegt starf á sviði
mannréttinda og stjórnskip-
unar. Á sjötugsafmæli hans
ákváðu Mannréttindaskrif-
stofa íslands, Félagsvísinda-
og lagadeild H.A. ásamt H.R.
að gefa út fæðirit á sviði
mannréttinda og stjórnskip-
unar, með ritgerðum tengd-
um þjóðarétti, mannréttind-
um og réttarríkinu eftir val-
inkunna fræðimenn.
300 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
ISBN 978-9979-66-250-1
Leiðb.verð: 6.900 kr.
Guðjón Inqi (irihsson tðh s<im<in
REMLEIKAR
íslenshar draugasögur
REIMLEIKAR
íslenskar draugasögur
Samant.: Guðjón Ingi
Eiríksson
Lögreglumenn frá Seyðisfirði
komast í hann krappan. Næt-
urvörður hjá Skeljungi verð-
ur gripinn mikilli skelfingu.
Sjómaður í Eyjum leggur á
flótta. Reimt er á Bessastöð-
um. Hús í Keflavík er and-
setið. Stokkseyrardraugurinn
hrellir sjómenn. Forstofu-
fjandinn hræðir kennara-
hjón. Júlla káta liggur ekki
kyrr og þannig mætti lengi
telja. Mögnuð bók og ekki
fyrir viðkvæmar sálir.
224 bls.
Bókaútgáfan Hólar
ISBN 978-9979-797-75-3
Leiðb.verð: 3.780 kr.
RIPLEY'S -
ÓTRÚLECT EN SATT!
Opnaöu ef þú þorir
Farðu í ótrúiega ferð í kringum
hnöttinn og hittu dularfullar
168