Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 10
Þegar ekki dugar einn bátur, verður að grípa til tveggja. Dráttarvél með heyþyrlu flutt á milli eyja. frásögnum. Ekki áleit félagi minn að nein tormerki væru á að líta þar inn. Þegar við komum að aðaldyrum voru þær læstar en við fundum aðrar dyr og hringdum dyra- bjöllu. Þar birtist þá enginn annar en meistarinn sjálfur, klæddur vinnuslopp með leirugar hendur. Ég hugsa að það hafi verið álíka lífsreynsla fyrir mig eins og táninga seinna að sjá t.d. John Lennon í eigin persónu. Fylgdar- maður spyr hvort safnið sé ekki opið, en Einar segir að svo hafi ekki verið um margra ára skeið. Kannski var listaverkunum komið í öruggari geymslu á stríðsárunum. Líklega áleit Einar að við værum fáfróðir sveitamenn svo hann segir: „Hvaðan eruð þið drengir?" Þá sá ég að sennilega væri best að ég yrði fyrir svörum og að kannski fengjum við frekar að líta inn ef við vær- um langt að komnir. „Þið getið náttúrlega fengið að koma inn stundarkorn ef ykkur langar til“ sagði Einar og létum við ekki segja okkur það tvisvar. Þarna voru menn að störfum við að lagfæra sali og koma safninu í fyrra horf að því er virtist. Mikið þótti mér til um hin frægu verk, en eftir á og ekki síður, að hafa séð Einar Jónsson að störfum. Hann var þá að móta brjóstmynd af manni í leir. Þegar við kvöddum sagði hann: „Jæja, þá eruð þið búnir að sjá steintröll“ „Ha, nei hvar er það?“ sagði fylgdarmaður minn sem misskildi Einar. Af smiðum og bændafólki Eitthvað mun hafa hvarflað að mínu fólki að ég hefði gott af að læra meira en komið var. Mig langaði hinsvegar til að nema eitthvað verklegt fremur en bóklegt, enda af smiðum og bændafólki kominn. Þá var Handíðaskóli Lúðvígs Guðmundssonar kominn til sögunnar og það var hugmyndin að hafa þar svokallaða bændadeild þar sem Innsýn í heillandi heim Ekki kynntist ég borgarlífinu að neinu ráði þennan vetur og sóttist ekki eftir því. Fór eitthvað í bíó en sá tvær leik- sýningar í Iðnó, sem þá var eina leikhúsið í bænum. Þær fannst mér báðar stórfenglegar en áhugi á leiklist hafði kviknað áður, með stórmerkum flutningi útvarpsleikrita. Þar þekkti maður raddir allra helstu leikara landsins og naut flutnings þeirra að fullu á öndvegisverkum heimsins - gegnum útvarpið. En í Iðnó sá ég Skálholt Guðmundar Kamban með Þorsteini Ö. Stephensen, Regínu Þórðar- dóttur og Val Gíslasyni í aðalhlutverkum, auk margra annarra „kunningja.“ Það var stórbrotin og hrífandi lífsreynsla. Af allt öðrum toga var Eftirlitsmaðurinn eftir Gogol, rússnesk háðsádeila og sígilt meistaraverk. Þar fóru Al- freð Andrésson, Haraldur Bjömsson, Brynjólfur Jóhann- esson og Ævar Kvaran, auk margra annarra á slíkum kostum að ég varð heltekinn af hláturskrampa eins og flestir aðrir áhorfendur, að ég held. Mikla gleði og lífsfyllingu getur leiklistin og góðir þjónar hennar fært okkur, óbreyttum, og fer það ekki alltaf eftir fullkomleika ytri aðstæðna. Tvennt vil ég nefna að auki frá þessum vetri. Þá var atómöld nýhafin og heimurinn stóð agndofa frammi fyrir undrum og óhugnaði kjamorkunnar. Efht var til kjam- orkusýningar í Listamannaskálanum við Austurvöll og Lúðvíg hvatti okkur strákana til að fara og sjá hana. Þar opnaðist mér fáfróðum innsýn í nýjan og ótrúlegan heim á nokkrum klukkustundum að kvöldlagi þar sem spek- ingar útskýrðu leyndardóma efnis og alheims með skýr- ingamyndum upp um veggi, kvikmyndum og ræðum. piltar úr sveit fengju tilsögn í smíðum og fleiri verkleg- um greinum. Ur þessu varð þó aldrei mikið en einhverj- ir komust þó í þetta þar á meðal ég. Smíðakennara- deild skólans var til húsa á Grundarstíg og með nem- endum hennar voru um- ræddir sveitamenn vistaðir. Ég var þarna veturinn 1947- 48 og naut handleiðslu Vest- firðinganna Gunnars Klængssonar og Hjörleifs Zóphaníassonar þeirra miklu öðlinga. Kynntist einnig lít- illega Kurt Zier og Lúðvíg skólastjóra. Námið var ein- göngu verklegt. 250 Heima er bezt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.