Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 11

Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 11
Nokkrum árum síðar fannst mér þetta ómetanleg undirstaða þegar við Hvanneyringar vorum að glíma við eðlis- og efnafræði ásamt ýmsum greinum búfræðinnar. Heyrnar- og sjónarvottur að upphafi Heklugoss Annað eftirminnilegt frá þessum vetri var þessu óskylt og þó, líklega fremur náskylt. Eins og kunnugt er hófst stór- gos í Heklu í mars 1947 og stóð það samfellt í heilt ár. Morguninn sem gosið hófst var ég heima í Skáleyjum og var tímanlega á fótum við gegningar, en pabbi var að heiman vegna starfa í skattanefnd. Veður var stillt og bjart með vægu frosti. í logninu fór ég að heyra undar- legt hljóð úr suðri, líkast þungum skjálfandi nið. Mér fór að detta í hug eldgos sem ég hélt reyndar að til- heyrðu liðinni tíð. Það var heiðskírt yfir Skarðsstrandarijöllum en þegar ég fór að horfa þangað sá ég eins og litla skýhnoðra koma upp jafnt og þétt á einum stað. Ég fór heim í stofu og dró fram landakort. Þá kom í ljós að hnoðrarnir voru í sömu stefnu og Hekla og reyndar Katla líka. Ég þóttist því sjá að önnur hvor þeirra væri byrjuð að gjósa. Þá var ekki útvarpað allan daginn eins og nú, en klukkan 10 þennan morgun munu útvarps- fréttir hafa sagt frá stórtíðindum - stórgosi í Heklu. Ég var auðvitað hinn montnasti að hafa orðið heyrnar- og sjónarvottur að upphafi Heklugoss, vestur á miðjum Breiðafirði árla morguns, áður en fréttir bárust. Aldrei eftir þennan morgun sást eða heyrðist gosið hingað vestur í eyjar. Um haustið suður í Reykjavík ákvað ég að taka þátt í hópferð á Hekluslóðir, en það mun hafa verið Ferðafélag íslands sem stóð fyrir slíkum skoðunarferðum um helgar. Sjálfsagt hefur áðurnefnt mont átt hlut í þeirri ákvörðun, þar sem mér fannst ég vera hálfgildings upphafsmaður þessara hamfara sem þarna gerðust! Hvort förin var farin fyrir eða eftir kjarnorkusýninguna man ég ekki en þetta voru náskyldar „kennslustundir.“ Fararstjóri var Gunnar Stefánsson, sem þá var þjóð- kunnur orðinn af útvarpserindum, m.a. um Næfurholts- hundinn sem tekið hafði ástfóstri við Gunnar í ferðum hans um Hekluslóðir. Mig minnir að farið væri austur á íjórum rútum, í stilltu og björtu veðri, en hálfdapurlegt fannst mér að koma austur á Rangárvelli þá. Ég kunni Gunnarshólma utanað og hugsaði gjarnan til söguslóða þess mikla ljóðs sem gróðursælla ódáinsakra. Nú voru þær hinsvegar ein kolsvört eyðimörk. Gunnarsholt sem dapurleg vin í henni. Hafnargerð í Skáleyjum sumarið 1982. Prammi og dráttarbátur eru frá Þörungavinnslunni á Reykhólum. Eftir mikið torleiði um gamalt hraunland komum við að Næfurholti, þar sem hundurinn slóst í hópinn og síðar að beitarhúsum skammt frá nýju hrauninu en lengra varð ekki komist akandi. Farið var að dimma og Gunnar reyndi mikið að telja fólk á að fara ekki lengra og óttaðist að einhverjir gæfust upp eða jafnvel villtust í myrkrinu, en förinni var heitið að glóandi hraunfossi sem virtist vera skammt undan. Það liðu þó 11 klukkustundir frá því að við yfirgáfum bílana þar til við komum í þá aftur, eftir að hafa paufast um heitt hraunið í náttmyrkrinu. Það var allt hlaðið upp í háa og bratta hryggi úr lausu og sárbeittu hraungjalli, sem reif og tætti skó og blóðgaði iljarnar á seppa. Megnið af göngunni þurftu hraustmenni að bera hann á herðum sér en ófáanlegur hafði hann reynst að snúa aftur frá því hann slóst í för með hópnum. Ogleymanleg var sú stund um miðja nótt á síðhausti, þegar þessi stóri hópur hvíldi sig við rauðglóandi hraun- fossinn meðan léttan upplýstan gosmökk lagði frá Heklu- gígum til suðurs yfir höfðum okkar. Ekki þurfti að kvarta undan kulda því molluhiti lá yfir hrauninu og ekki þurfti annað en að hreyfa við yfirborði þess til að glóðin kæmi í ljós. Þarna vorum við áhorfendur að sjálfri landreksfræð- inni, sem þá var reyndar ekki búið að finna upp.“ „Villimenn“ frá öllum landshlutum Haustið 1951 hleypti Eysteinn aftur heimdraganum og fór til náms í Bændaskólann á Hvanneyri þar sem hann var í tvo vetur. „í yngri deild voru kennd ýmis almenn fög en meiri bú- Heima er bezt 251

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.