Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 12

Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 12
Frá Bœndaskólaárunum á Hvanneyri. fræði í eldri deild, þó var þetta blandað að hluta. Þetta hafði tíðkast frá fyrri tíð þegar nemendur komu í skólann með barnafræðslu eina að baki. Þegar skyldunám lengdist og nemendur komu með próf úr framhaldsskólum, voru orðnir gagnfræðing- ar eða jafnvel stúdentar, fór að tíðkast eins vetrar nám til búfræðiprófs. Slíkir nemendur voru þá gjarnan nefndir vetrungar og var ég samtíða nokkrum slíkum. Meirihluti nem- enda var þó tvo vetur og í verknámi að auki, vor og haust milli skólavetra. Sumir réðu sig þar að auki í kaupavinnu á skólabúinu yfir sumartímann. Þarna var nýlega búið að setja á laggimar framhaldsdeild sem útskrifaði kandídata, en þeir urðu fljótt eftirsóttir ráðunautar og starfsmenn búnaðarsamtaka. Sú deild var þó ekki fjölmenn á þessum ámm. Ekki var við góðu að búast né alltaf friðsamlegt þegar sextíu strákar um tvítugt komu saman í heimavist, sumir hálfgerðir villimenn, úr öllum sýslum landsins. í gamla skólahúsinu voru kennslustofúr á fyrstu hæð en heimavistir á tveimur hæðum þar fyrir ofan. Þvottahús, snyrting og vinnustofa þjónustustúlkna ásamt fleiru í kjallara. Mikil stéttaskipting ríkti á haustin og ný- liðar naumast taldir með mönnum fyrr en búið var að „tollera“ þá. Löng hefð var fyrir tolleringum og ganga- slögum og ekki ætíð í óþökk stjórnenda sem kærðu sig ekki um að ala upp kveifar. En svo mikil harka var þá hlaupin í tolleringarnar með stórátökum milli deilda að við slysum lá. Haustið sem ég kom í skólann, hlaut einn nýliðinn brákaða höfuðkúpu í atganginum með þeim afleiðingum að hann var frá námi þann vetur. Næsta haust voru tolleringar látnar niður falla en ekki veit ég hvort þær hafa verið teknar upp aftur síðar. Gangaslagir hafa líklega átt rót sína að rekja til þess að nýliðar bjuggu á miðhæð sem algjör lágstétt en eldri deild ríkti á efstu hæð sem hrokafull yfirstétt. Spennuna þarna á milli mátti lina með bardögum, sem kölluðust gangaslagir, þegar lágstéttin réðist til uppgöngu á efri hæð og fylkingum laust saman í stiganum eftir að blásið hafði verið til atlögu. Vopn voru af ýmsu tagi, auk handa og fóta, svo sem blaut handklæði og gólftuskur að ógleymdum renndum pílárum í stigahandriðinu en þeir létu gjarnan undan átökum sterkra manna, sem vildu handstyrkja sig upp á við móti ofurefli liðs. Aðstaða yfir- stéttarmanna var þeim mun betri að þeir gátu fyllt gólf- þvottafötur af vatni og steypt yfir skrílinn í stiganum, enda ekki sparað. Vatnsflaumnum mátti beina niður í kjallara eða um útidyr þegar átökum linnti. Sterkan grun hef ég um að skemmtanir af þessu tagi hafi verið ættaðar úr sjálfum lærða skólanum syðra og þangað komnar austan úr Skálholti, sern öldum saman menntaði embættismenn og varðveitti gamlar hefðir í skólahaldi. Nú eru ef til vill gamlir og góðir siðir niðurlagðir á slíkum stöðum, enda húsakynni viðkvæmari en áður.“ Brýnt að sýna prúðmennsku Eysteinn segir að ekki megi skilja frásögn sína þannig að algjört agaleysi og upplausn hafi ríkt á Hvanneyri á þess- um tíma. „Það var langt frá því. Við nemendurnir sem sóttum um skólavist fengum bréf frá skólastjóra þar sem hann brýndi vinsamlega fyrir okkur fyllstu prúðmennsku í allri um- gengni og að líta á skólann sem okkar annað heimili meðan við værum þar. Satt að segja fannst mér fjarstæöu- kennt að slíkt þyrfti að orða við fulltíða menn. Hitt kom þó á daginn að margir áttu fullerfitt með að hemja stráks- skap sinn og lífsfjör eftir setur í kennslustundum og við námsbókalestur, urðu að fá útrás í hrekkjum, áflogum og ýmsum uppátækjum ef ekki dugðu leikfimi, knattspyrna og gufuböð til þeirra hluta. Þetta gat komið allharkalega niður í sambandi við fyllstu borðsiði, ef svo bar undir. í áttatíu manna borðsal er hægt að gera fleira en að matast en þá geta hnútur flogið um borð eins og á Glæsivöllum forðum og þeir slett skyrinu sem komnir eru í ham. Slíkir hlutir gerðust stundum að skólastjóra ljarverandi. Eíppákomur af þessum toga munu helst hafa átt sér stað á haustin þegar menn úr öllum sýslum voru að hristast saman og kynnast. Síðan róaðist liðið og tengdist kunn- ingjaböndum við nám og störf. Þarna kynntist maður jafnöldrum sínum allsstaðar að af landinu, sem var býsna fróðlegt. Eg hafði dálítið gaman af að veita athygli sér- kennum þeirra í málfari og framgöngu og fannst að oftast mætti þekkja af slíku hvaðan viðkomandi væri. Einkum átti það við um framburð og málfar en framganga gat líka sagt sitt. Allir þekkja þá „þjóðtrú“ að Þingeyingar og Skagfirð- ingar séu montnir vegna þess hve hispurslausir og hrein- skilnir þeir eru í tali, Sunnlendingar gjarnan hógværir, Vestfirðingar víkingar og svo framvegis. Töluverður 252 Heinia er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.