Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Side 13

Heima er bezt - 01.07.2001, Side 13
munur er oft á framburðinum, þó að sá munur sé víst óðunr að hverfa. Dæmin þekki ég af sjálfum mér og vestfirskum kunningj- um, að við týndum því fljótt niður að segja langur og ganga í stað lángur og gánga þrátt fyrir fastan ásetning og heitstrengingar um að svíkja ekki okkar vestfirska tungu- tak. Þetta gerist einfaldlega þannig að ósjálfrátt fara menn að forðast að láta út úr sér eitthvað sem kostar háðsglósur viðmælenda. Við vorum fimm saman á herbergi, fyrri veturinn okkar á Hvanneyri og þurftu tveir að sofa í efri koju. Fleiri fimm manna herbergi voru þar á neðra gangi. Ekki ríkti þar nein grafarþögn að jafnaði, eða mikið næði til bók- náms en menn áttu innhlaup í skólastofur síðdegis ef þeir þurftu á að halda. Með mér á herbergi voru: Jósep Rósinkarsson af Snæijallaströnd, Hilmar Guðjónsson úr Kópavogi, Ragnar Gíslason úr Meðal- landi og Svavar Guðlaugsson frá Vík í Mýrdal. Allt voru þetta prýðisdrengir, hver á sinn hátt, en ekki við því að búast að við værum allir steyptir í sama móti. Kunningsskapur og vinátta myndaðist fljótlega og var ekki bundinn við herbergisfélaga eingöngu. Það átti einnig við um kennara, starfsfólk og þeirra fjölskyldur. Þetta fólk var með okkur á fundum og kvöldvökum og við ýmis önnur tækifæri. Oft komu góðir gestir með fræðsluefni eða slíkt og gömul hefð var fyrir heimsókn- um milli skóla í héraðinu. Á þessum árum voru þær eink- um milli bændaskólans á Hvanneyri og húsmæðraskólans á Varmalandi, eins og margir kannast við. í nemendahópnum voru nokkrir sem áttu eftir að verða þekktir á ýmsum sviðum, svo sem ráðunautar, fram- kvæmdastjórar, alþingismenn, ráðuneytirsstjórar, mjólk- urfræðingar, arkitektar, svo eitthvað sé nefnt. Líklega urðu ófáir iðnaðarmenn, vélamenn og verslun- armenn. Væntanlega er þó stærstur sá hópurinn sem fór í búskap án þess að ég hafi tölur um það. Oft hefur því verið haldið fram að búfræðingar skili sér illa í búskap að loknu námi og nokkuð er til í því. Þar er augljós ástæða að ljárhagslegur grundvöllur er ekki alltaf fyrir hendi þegar til á að taka. Nýsveinar báru að sjálfsögðu flestir tilhlýðilega virð- ingu fyrir eldrideildarsveinum, svo ekki sé talað um Elstu bekkir Flateyrarskóla og kennarar Jyrir tœpum 30 árum, talið frá vinstri, neðsta röð: Elsa Jónsdóttir, María K. Kristjánsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Sesselja Hafberg, Unna Guðmundsdóttir, Sjöfn Sölvadóttir, Sigríður Mikaelsdóttir og Agústa Guðnadóttir. Miðröð: Asta Þórðardóttir, Elísabet Pálmadóttir, Hjörtur Hjálmarsson, Guðrún Mikaelsdóttir, Kristín Gunnlaugsdóttir, Sólveig Kjartansdóttir, Pálína Pálsdóttir, Rósa M. Guðnadóttir, Kristján J. Jóhannesson, Hilmar Guðmundsson, Finnur Sturluson, Matthías Pálsson, Emil R. Hjartarson, Eysteinn G. Gísiason og Ragna Sveinsdóttir. Efsta röð: Gunnlaugur Finnsson, Önundur Haraldsson, Arni Benediktsson, Asgeir Einarsson, Páil Önundarson, Valur Sigurmundsson, Þorsteinn Jóhannsson, Steingrímur Stefnisson og Ólafur R. Jónsson. Ljósmynd: Trausti Magnússon. framhaldsdeildunga - verðandi búfræðikandídata, og eins og gengur vöktu sumir meiri athygli en aðrir og urðu minnistæðari. Sumir sköruðu fram úr í íþróttum, aðrir í mælsku- og málflutningi. Sumir léku á hljóðfæri eða voru góðir skákmenn, sumir hámenntaðir stúdentar, aðrir snillingar í búijárhirðingu eða vélamennsku. Sumum gekk betur en öðrum að ná tökum á bóknámi. Seinni veturinn var ég á tveggja manna herbergi með Eyvindi Jónassyni frá Stardal, síðar vegavinnuverkstjóra. Hann var knár í íþróttum, afkastamaður við bústörf og drengur góður. Þegar við vorum að lesa undir próf um vorið lá ég þungt haldinn af inflúensu og oftast í móki, en heyrði annað slagið í Eyvindi þar sem hann þuldi fræðin upphátt - til aðstoðar sjúklingnum. Ymsir þeirra sem ég var samtíða þessa tvo vetur á Hvanneyri hafa, eins og ég nefndi áður, orðið þekktir menn í þjóðfélaginu og skulu nokkrir þeirra nefndir. Doktor Björn Sigurbjörnsson, sem gegnt hefur mörgum mikilvægum störfum utanlands og innan, síðast ráðuneyt- isstjóri, Magnús Oskarsson, sem lengi var kennari á Hvanneyri. Alþingismennirnir Egill .lónsson og Eggert Haukdal. Jóhann Franksson brautryðjandi í grasmjöls- og graskögglaframleiðslu hér á landi, Geirharður Þorsteins- son arkitekt, Leifur Jóhannesson framkvæmdastjóri Stofnlánadeildar landbúnaðarins og síðar Lánasjóðs landbúnaðarins og Konráð Andrésson, sem hefur byggt upp stórfyrirtækið Loftorku í Borgarnesi. Þrjá menn að auki vil ég nefna sem vafalaust hefðu get- að náð langt á fleiri sviðum en landbúnaði en sýnast ekki hafa sóst eftir slíku. Þeir eru: Árni Sigurðsson bóndi í Norður-Þingeyjarsýslu, Helgi ívarsson bóndi í Árnes- sýslu og Jón Gústi Jónsson bóndi í Steinadal í Stranda- sýslu. Litum upp til lærimeistara Sem fáfróðir sveitamenn litum við margir mjög upp til Heima er bezt 253

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.