Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 17

Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 17
Það var hrein tilviljun að ég fór í þessa ferð en það vildi þannig til að þann 8. apríl 1937, var jarðsungin frá Hrunakirkju frú Katrín Bjarnadóttir frá Hörgsholti (f. 1852, d. 1937). Til útfararinnar kom fólk úr Reykjavík, sem hafði Morgunblaðið með- ferðis, og í því var eftirfarandi auglýsing sem ég rak augun í: Göngumenn vantar 1 eða 2 pilta eða stúlkur til gönguferðar norður Sprengisand á komandi sumri. Sendið brjef merkt: G. D. Mjólkurbílastöðin. Hjá mér kviknaði óðara áhugi á að fara í þessa ferð svo ég skrifaði í skyndi um- sókn og sendi til Reykjavíkur. Reyndar fannst mér litlar líkur á því að við mér yrði tekið, því margir hlytu að hafa áhuga en það sakaði auðvitað ekki að senda umsókn. Það kom svo í ljós að enginn annar hafði sótt um svo ég var sjálfkjörinn í ferðina. Samskipti mín og bræðranna voru í bréfaformi meðan á undirbúningi stóð en þeir skipulögðu ferðina. Ferðaáætlunin var: Hvítárnes, Kerl- ingarfjöll, Nauthagi, Arnarfell, Klakkur, Kiðagil og loks Mýri í Bárðardal. Ég var nokkuð kunnugur í Kerlingarfjöllum enda hafði ég oft smalað það svæði en allsendis ókunnugur Arnar- fellunum og sandinum þar norðaustur af. Ég hitti svo ferðafélaga mína þrjá í fyrsta skipti við Gullfoss þann 26. júní en þangað reið ég frá Grafarbakka með mitt hafurtask. Fjórði maðurinn hét Ársæll Kristófer (Kiddi) Jónsson úr Hafnarfirði og líklega kom hann með í ferðina vegna kunningsskapar við Guðmund Björgvin. Við vorum allir á svipuðum aldri, ungir og frískir. Áætl- aður ferðakostnaður var 100 krónur en vegavinnukaupið var þá 65 aurar á tímann, svo það fór mánaðarkaupið í ferðina. Ferðin í heild tók 13 daga, þar af 7 dagar á há- lendinu (um 160 km mæld loftlína). Dagleiðirnar voru yfirleitt langar eða 8-14 klst. Kiddi átti tjaldið og mynda- vélina og á hana voru teknar þær myndir sem hér eru. Tjaldið var með þremur súlum, einni hárri fremst en tveimur lægri aftar og botninn var laus. Við vorum allir í leðurklossum, pokabuxum og anorökum með der- eða alpahúfur á höfðum og skíðastafi í höndum. Nestið var eitthvert brauðmeti, mjöl, hrá egg, dósamatur, súkkulaði, þurrmjólk, líklega kakó og eða te, harðfiskur og súpur. Mig minnir að bakpokaþyngdin hafi verið um 20-25 kg sem er létt miðað við útbúnað þess tíma. Prímusinn gekk fyrir bensíni og 4 lítra bensínbrúsann hengdum við á eina tjaldstöngina og bárum á milli okkar. Til stóð að fara alla leið í Hvítárnes með leigubílnum sem ferðafélagar mínir komu með úr Reykjavík en þegar til kom var ófær snjóskafl á Bláfellshálsi svo við kvödd- um bílstjórann þar. „ Snöruðum við þá byrðunum á bak okkar og lögðum af stað út í hríðina, því bylur var á og þoka, þó um hásumar vœri. “ Við gistum í skála Ferðafélags íslands í Hvítárnesi fyrstu nóttina en þar voru tveir menn við veðurathuganir þetta sumar. Við sváfum ofan í kistunum sem þar eru enn við veggi í herberginu inn af eldhúsinu. Nú er líklega sofið ofan á þeim enda breyttir tímar og svefnpokar og annar aðbúnaður ólíkt betri nú en þá. „ ... og kl 3 eftir hádegi þrömmuðum við af stað út í rigninguna og storminn . . . .Höfðum við árnaðaróskir veðurathugunarmannanna, sem dvöldu í sœluhúsinu, með okkur... Jökulkvíslin var erfiðust af þeim ám sem við óðum og var líklega um 35 metra breið þarna, kolmórauð og ófrýnileg. Ég fór fyrst einn yfir til þess að kanna aðstæð- ur. „ Var einn okkar vanastur vatnamaður og fór hann fyrst farangurslaus yfir ána, til að kanna hana, en kom síðan aftur til að sœkja pjöggur sínar, og varð okkur samferða. Fór hann því þrisvar yfir ána, og var það hið mesta hreystiverk. . . Loksins sjáum við Arskarðsá djúpt fyrir neðan okkur, og meðan nœtursólin gyllir himingnœfandi tinda Kerlingarjjallanna í kringum okkur, styójumst við fram á stafi okkar og virðum fyrir okkur Mælifellshnúk, sem skagar upp úr þokunni í Skagafirði. Fyrir framan okkur og rétt hjá okkur, er Hofsjökull með ferlega, dimma hamraborg, sem virðist enn kaldari og hryssingslegri en sjálfur jökullinn, það er Blágnýpa. “ Við tjölduðum svo á því svæði sem skíðaskálarnir Heima er bezt 257

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.