Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 24
Fyrir miðri mynd: Nesbjörg, næst
til hægri Lynghólmi. Horftyfir til
m.a. Gethellna ogfjallgarðsins
norðan Alftafjarðar.
Einn af mörgum sandhólum í
Hróðmundarey, umvafinn melgresi.
komið fram, fór hann fram á Nesbjörg og
skyggndist þaðan um. Þórarinn bóndi var skyggn
maður og skýr. Hann sá nú, þaðan sem hann stóð
á bjargbrúninni í svolitlu skjóli, hvar eitthvert
hrúgald veltist um í hafrótinu einna líkast og bátur
á hvolfi. Þó vildi hann ekki staðfesta hvað þetta
var sem þarna veltist, allangt til að sjá og myrkur
og sjórok.
Er Þórarinn kom aftur heim í Nes voru þar
komnir Starmýrarbændur, þeir Þórarinn Jónsson
og Guðmundur Eyjólfsson. Sagði Þórarinn þeim hvað
hann hefði séð. Þeir vildu ólmir fara út í eyjar sem eru
þarna austur í firðinum og athuga hvort bátinn hefði
kannski borið þar að landi. Þórarinn taldi ófært þangað
um sinn, bæði vegna veðurofsa og enn væri flóð, og því
ófært þangað. Héldu þeir þá aftur í Starmýri. Þá var
Hofsá orðin sjómikil svo þeir rétt sluppu við að sundríða.
Við Leifur bróðir fórum út á Starmýrarteiga og gengum
þar fram með sjónunt Það var ömurlegt ferðalag.
Fóikió heima hafði rniklar áhyggjur. Óttaðist það að bát-
inn ræki út á Starmýrarfjöru, vindstaða réði þar miklu um.
Eldra fólk minntist þess er bræður tveir frá Melrakkanesi
fóru á litlum bát út í Hróðmundarey ásamt dreng um
fermingu. Er þeir komu út í eyjuna rokhvessti af norðri
með kuldahríð. Vonlaust var að komast á bátnum aftur til
baka. Ekkert skjól var í eynni. Var það þá ráð þeirra að
fara suður ijörur og náðu þeir eftir mikinn hrakning suður
í Þvottá. Annar bræðranna var þá með drenginn í fanginu,
hann var þá dáinn og mennirnir mikið þrekaðir.
Það var enginn leikur að vera út á fjörum í svona veð-
urofsa í sandroki og hvergi skjól.
Það var ein manneskja sem ekki vildi unna sér hvíldar í
þessari óvissu, Þórunn Jónsdóttir húsfreyja í Efribænum.
Um borð í bátnum í þessari ferð voru börn hennar fjögur
og þrjú systkinabörn. Þegar allt heimilisfólkið settist um
kyrrt í bili, skrapp hún í Neðribæinn og ræddi við heimil-
isfólkið þar, sem átti ástvini um borð í bátnum. Er hún
kom til baka tók hún sér stöðu utan við bæjardyrnar
heima hjá sér. Enga eirð hafði hún í sér til að loka sig
inni. Þarna stóð hún í skjóli við veðurofsann sem þó var
farið að lægja aðeins, og starði út í myrkrið. Hvað lengi
hún stóð þarna vissi hún ekki. Kannski var hún að biðja
til Guðs að þessu unga fólki skilaði heilu í höfn.
Allt í einu barst að eyrum hennar eins og fólk væri að tala
saman þama út í myrkrinu. Skyndilega braust tunglið út úr
skýjaþykkninu og varð bjart sem um dag. Þá sá hún hóp af
fólki koma norðan hlaðið. Henni varð hermt við og ætlaði
að forða sér í bæinn, en þá heyrði hún kunnuga rödd segja:
„Því stendur þú þarna ein úti móðir mín“.
Hún stansaði og leit undrandi yfir hópinn um stund,
svo sagði hún fagnandi:
„Eru þetta virkilega þið og öll heil á húfi. Nú skulum
við flýta okkur inn, ég sé þið eruð hrakin.“
Einn af þeim er lenti í þessum hrakningum var Stefán
bróðir minn. Hann hefur í bréfi sem ég fékk frá honum,
rifjað upp það helsta sem gerðist í ferð þessari og hef ég
það hér til hliðsjónar.
„Við vorum níu sem fórum í þessa ferð. Við systkinin
Qögur: Ég, Kristinn, Sigurbjörg og Ingibjörg sem var að-
eins fimmtán ára. Þá Elís og Vilborg úr Neðribænum og
Þóra frænka okkar frá Múla. Svo voru þeir Gunnar Ama-
son í Hnaukum og Asbjörn Pálsson sem var foringi þess-
arar ferðar.
Það voru hress og kát ungmenni er hlupu niður Krang-
ann og í einum spretti út á Skipsnes. Bátnum ýtt snarlega
á flot og stefnan tekin á Hærukollsnes. Fjórir karlmenn
undir árum og einn við stýri.
Ferðin í Hærukollsnes gekk fljótt og vel. Síðan gengið
upp í Múla og skemmt sér vel alla nóttina.
Klukkan mun hafa verið um níu er við komum niður í
Nes um morguninn. Þá bjuggu á Hærukollsnesi hjónin
Þórarinn Guðnason og Steinunn Jónsdóttir. Báru þau
okkur strax kaffi.
Við tókum lífinu rólega því ekki mundi fært suður á
Skipsnes fyrr en um klukkan þrjú eftir hádegi. Veður var
stillt en þokumistur að sjá yfir firðinum svo við sáum
264 Heima er bezt