Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Side 35

Heima er bezt - 01.07.2001, Side 35
Skýin hrönnuðust upp í austri, himininn varð grámó- rauður, það hvein í fjallinu þar sem kolsvört hyrnan rak nefið út í veröldina, regnið skall með afli á hálfhruninn grjótgarð og vindurinn þvingaði sinustráin niður í lárétta stöðu. Maðurinn í hjólastólnum barðist á móti vindinum, sinustráin flæktust fyrir hjólunum, sem frekar voru ætluð grjóthörðu malbiki en sinuvöxnum úthaga. Þessi vesal- ings sinustrá sem aldrei urðu þeirrar frægðar aðnjótandi að verða almennilega græn. Hvers vegna? Já hvers vegna eiginlega? Líklega vegna þess að bændur voru hættir að nenna að brenna sinu. Einstöku letingi hengslaðist við að kveikja í sinu löngu eftir 1. maí þó allir viti að það er bannað að brenna sinu eftir 1. maí. Það var einna líkast að bændur væru þess ekki meðvitaðir hvenær 1. maí kom, hvenær þessi virðulegi dagur verkalýðsins hélt inn- reið sína í dagatalið. Ella hefðu þeir varla farið að kveikja í sinu eftir þennan merkisdag. En bændur eiga engan dag í almanakinu og eru þess vegna argir í sinni, öfunda verkalýðinn fyrir að eiga einkadag fyrir sig. Framámenn í bændastétt fundu þó upp bændahátíðir sem áttu að vera til jafnvægis við dag verkalýðsins, þær fengu hins vegar aldrei fastan dag í almanakinu og urðu að reikulli uppákontu upp úr miðjum ágústmánuði. Bændahátíðir höfðu ekki nokkur áhrif á sinubruna. Ofagur úthaginn hélt áfram að vera drapplitaður, sinan skreið fram, yfir bakka skurðgröfuskurðanna, ofan í skurðinn og upp úr honum hinu megin og orsakaði taugapirring hjá bóndanum sem bjó þeim megin skurðar. Kannske var það orsök sinubrunans eftir 1. maí. Taugatrekktur bóndi, sem laumaðist út að næturlagi og kveikti í íjandans sinunni nágranna sínum til eilífrar bölvunar. Maðurinn í hjólastólnum stansaði, stundi, dró annað aug- að í pung og leit skáhalt upp til himins. „Bölvað óveður, andskotans rok.“ Hann steytti krepptan hnefa hægri handar út í loftið, eins og til að ógna vindinum, hægja á ferð hans, fækka vindstigunum. Hann dró djúpt andann, hrukkaði ennið, stundi aftur, ofurlítið þyngra en fyrr, þreif þéttingsfast um hjólin á hjólastólnum og mjakaðist af stað í rennblautri sinunni. Enn átti hann eftir langa leið niður að sjónum. Hann var á að giska um tvítugt, með þunnt skollitað hár, fíngert andlit, daufleg grá augu, þunnar varir. Húðin á andlitinu var þunn og glær. Hann var klæddur í mol- skinnsbuxur, mórauða peysu, brúnleitan mittisjakka utan yfir; á fótunum hafði hann hvíta strigaskó. Hann var staðráðinn í að komast á áfangastað, niður í ijöru, finna nálægð hafsins, láta rjúkandi brimið berja andlitið, öskra með öldunum þegar þær skullu á klettana. Það var áliðinn morgunn, hann hafði lagt snemma af stað heiman að, var næstum ekkert farinn að sofa eftir partýið sem staðið hafði fram undir morgun. Þvílíkt partý. Þvílíkar dömur. Þvílíkt gáleysi. Hjólastóllinn rann til í rennvotu og sleypu grasinu, skreið ofan í djúpt hjólfar og valt á hliðina. Maðurinn hentist úr sætinu, hvoldist fram yfir sig og lenti eilítið fyrir framan stólinn. Kúamykjuhlass sem lá þarna í sakleysi sínu, varð stuðpúði höfuðs hans þegar hann snerti jörðina. Hvítu strigaskórnir breyttu um lit. „Fari það í heitasta,“ hvæsti hann, reysti sig upp með erfiðismunum, hífði sig með handafli að stólnum, tókst að reisa hann við. Erfiðara yrði að komast upp í hann aft- ur. „Nú ég get auðvitað alveg eins orðið úti hér eins og niður í Qöru,“ sagði hann við sjálfan sig um leið og hann reif upp handfylli af sinu og þurrkaði kúamykjuna framan úr sér. í dögun hafði hann ákveðið að fara niður í íjöru til að verða úti. Hægðarleikur í þessu óveðri. Jafnvel þó hita- stigið væri vel fyrir ofan frostmark. En nú varð hann lík- lega að láta sér nægja að verða úti hér i miðjum úthagan- um. Hann teygði sig í köflóttan poka sem hékk á öðrum armi hjólastólsins, kippti í hann af afli svo hankinn rifn- Heima er bezt 275

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.