Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 41

Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 41
söguna móðir hennar Siggerður, er þá var ung stúlka hjá móður sinni Sæbjörgu Jónsdóttur, en hún bjó á Sléttu í Reyðarfirði, þá er saga þessi gerðist. „Sá var hér siður áður viðhafður á Sléttu og sennilega á bæjum öðrum, að hver heimamanna átti sína skál, er í var matur skammtaður á málum og voru skálar þessar misjafnar að lit og öðru útliti og tóku venjulega einn lítra hver, svonefndar nrerkur-skálar. Á milli mála var þeim gjarnan öllum raðað þannig, að hver kom í aðra niður og voru allar hafðar á ákveðnum stað í búri eða í eldhúsi, t.d. hillu í búrinu“. Það kom einu sinni fyrir að kvöldlagi, er skammta átti að venju kvöldmatinn, að tvær skálar, er raðað var hvorri í aðra niður, voru á loft hafnar og sú þriðja þrifin og henni hent í gólfið, svo að hún mölbrotnaði. Þessu næst eru hinar tvær settar varlega á sinn stað í staflann aftur, alveg eins og einhver ósýnileg hönd hefði þar að verki verið, en sýnilegur var enginn. Að þessum fyrirburði voru vitni ærið mörg, er öll sáu þennan undarlega atburð eða allir þeir er inni voru staddir í eldhúsinu, er þetta kom fyrir. Seinna um kvöldið kom maður utan frá Vaðlavík og bað um gistingu. Móðir mín sagði að lokum: „Þessa sögu sagði mér mamma mín og amma þín Sig- gerður, en hún var með afbrigðum sannsögul kona“ . Höggið Frásögn Sigríðar A. Björnsdóttur Á búskaparárum frænku minnar, Sigríðar á Sellátrum við Reyðarijörð, háttaði svo til húsakynnum, að gengið var úr útidyrum inn í gang eða forstofu. Fyrir enda hans voru dyr að eldhúsi og úr eldhúsi var gengið inn í stofu, er var í húsinu sunnanverðu. Hurðir í dyrum voru stífar og þurfti til átak að þeim dyrum yrði upp lokið. Einu sinni bar svo til, er þær systur þrjár, móðursystur mínar Sigríður og Margrét og Ásta móðir mín voru í stofu inni staddar, en dyr lokaðar, að barið var bylmings- högg í húsið svo mikið að upp hrukku hurðir í dyrum all- ar og að eldhúsi og stofu er ríkar voru í stöfum. Enginn var sýnilegur en afl mikið þurfti til svo hrokkið gætu upp hurðirnar og dyrnar opnast. Þessa frásögn Sig- ríðar staðfestu móðir mín og Margrét móðursystir. Vísur Málfríðar Ortar til móður minnar sem barns og Herúlfs móður- bróður mins Málfríður hét kona sem mun hafa verið á heimili Sig- gerðar ömmu minnar í Seljateigi. Henni þótti afar vænt um móður mína eins og þessar vísur sýna, sem hún orti til hennar. Amma mín Siggerður kenndi henni: Gýgju vina, góða mín Guði sértu falin. Geymi hann og gœti þín gegnum táradalinn. Asta mærin Málfríðar mikið ber af hinum. Er með sóma alls staðar indœl fagnar vinum. Málfríður þessi átti pípu og varð Herúlfi móðurbróður mínum, er þá var ungur, það óvart á að brjóta pípuna. Gamla konan fór þá að gráta, enda var á þeim tímum, vont að ná í slíka hluti. Herúlfur gaf henni skaftpott (kastarholu) í raunabætur. Þá kvað Málfríður: Kastarholu i kaupið kerling á að fá, rœr hún sér með raupið raunastúfnum á. En nú skal farga grát með graut og gleðja baugagná. Siggerður amma mín kenndi móður minni einnig þessa Leiðrétting Rangt var farið með myndatexta, vegna mislesturs úr handriti, í grein Kristjáns G. Magnússonar um minningarhátíðina í Geirþjófsfirði, á bls. 216 í síð- asta hefti. Undir efstu mynd til hægri á að standa: Séð til Langabotns yfir áreyrarnar þar sem hátíðin fór fram. I miðju undir efstu myndunum tveim á að standa: Ibúðarhúsið að Langabotni, eins og það var 1930. Undir mynd hægra megin á miðri mynd á að standa: Tekið úr fjörunni utan úr Otradal yfir Suðurfirði. Geirþjófsjjörður til vinstri, Trostansfjörður til hægri. í fyrri tveimur tilfellunum hafði verið skrifað Laug- arbotn í stað Langabotns og í því þriðja Geirþjófs- dalur í stað Geirþjófsfjarðar. Biðjum við hlutaðeigendur velvirðingar á þessum misritunum. Heima er bezt 281
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.