Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Side 47

Heima er bezt - 01.07.2001, Side 47
gullauðug lönd og hóf því að láta slá gullmynt í ríki sínu. Gullpeningingur Cæsars nefndist aureus og var það heiti dregið af aurum sem er latneska nafnið á gulli. Þetta róm- verska gullheiti kemur síðan glögglega fram í okkar máli enn í dag, þegar við tölum um aura, þótt að vísu sé þar ekki um neina gullpeninga að ræða. ÁR OG DAGAR Athuganir á gangi himintungla og útreikningar á tímatali eru meðal elstu viðfangsefna mannkynsins í andlegum efnum og marvíslegar útgáfur til á því reikningsdæmi. Þegar Island byggðist á 9. og 10. öld höfðu landnáms- menn með sér út hingað það tímatal sem þeir höfðu van- ist í fyrri heimkynnum á Norðurlöndum og Bretlandseyj- um. Þessir forfeður okkar skiptu árinu í tvö misseri eða vetur og sumar og áraíjölda töldu þeir gjarna í vetrum. Einnig skiptu þeir árinu í 52 vikur og 12 mánuði sem nefndust: Mörsugur, þorri, góa, einmánuður, harpa, skerpla, sólmánuður, heymánuður, tvímánuður, haust- mánuður, gormánuður og ýlir. En þetta gamla tímatal var ekki mjög nákvæmt og til að leiðrétta það fann Þorsteinn surtur, breiðfirskur maður, upp sumaraukann á 10. öld, svo sem Ari fróði greinir frá í íslendingabók. En eins og landnámsmenn höfðu önnur heiti á mánuðum en þau sem nú eru í gildi, þá voru daganöfnin líka nokkur önnur hjá þeim. Þá hétu dagarnir á þessa leið: Sunnudagur, mána- dagur, Týsdagur, Óðinsdagur, Þórsdagur, Frjádagur og laugardagur eða þvottadagur. Þessi heiti daganna héldu sér fram á 12. öld, er þeim var breytt í núverandi horf. Voru'það kirkjunnar menn og þá mest Jón Ögmundsson, fyrsti biskup á Hólum, sem beittu sér fyrir breytingunni, þar sem þeir vildu ekki að daganöfnin minntu á hina heiðnu guði Ásatrúarmanna. Eftir að íslendingar sögðu skilið við heiðinn sið og gengu til kristni árið 1000, meðtóku þeir jafnframt tíma- tal kirkjunnar manna. Það tímatal sem við fengum með kristninni og er að mestu það sama sem við höfum enn í dag, á rætur sínar að rekja til spekinga og reiknimeistara sem uppi voru fyrir 5-6 þúsund árum í Egyptalandi hinu forna. í því landi tengdist jarðargróði og þar með tilvera fólksins mjög reglubundnum breytingum á vatnsmagni Nílarfljóts. Samkvæmt fornegypsku tímatali voru árstíð- irnar þrjár og hver þeirra hafði því fjóra mánuði. Fyrst var það flóðatíminn, þá sáningartíminn og loks uppskeru- tíminn. Mánuðirnir tólf höfðu hver 30 daga, svo að það gerir 360 daga í árinu. Það sýndi sig að vera of lítið, svo að Egyptar bættu við í árslok fimm aukadögum til að fylla upp í það sem á vantaði. Nýársdagur Egypta var settur við upphaf stórflóðsins í Níl, en jafnframt miðaðist tímatalið við reikistjörnuna Siríus eða Sóthis og afstöðu hennar til sólarinnar. Þetta egypska tímatal, þótt gott væri, reyndist í raun um einum íjórða úr sólarhring of stutt til þess að vera nokkurn veginn rétt. Samt var við það unað öldum og árþúsundum saman. Babyloníumenn voru snjallir stjörnufræðingar og höfðu komið sér upp allnákvæmu tímatali þegar um 2000 f. Kr. Þeir studdust við 12 mánaða tunglár, enda er orðið mán- uður dregið af öðru heiti tunglsins sem er máni. Þetta var samt ekki nákvæmt tímatal og til þess að færa það til samræmis við sólarárið þurftu spekingamir í Babylon að bæta inn aukamánuði öðru hverju. Og þessir snjöllu menn gerðu betur, því að þeir fundu upp að skipta mán- uðinum niður í fjórar sjö daga vikur. Þeir gáfu líka viku- dögunum nöfn og kenndu þá við sól og mána og þær fimm reikistjörnur sem sýnilegar eru með berum augum og heita, Merkúr, Venus, Mars, Júpiter og Satúrnus. Þessi daganöfn Babyloníumanna hafa í meginatriðum haldið sér í mörgum tungumálum til þessa dags. Þá byrjuðu þeir líka að skipta sólarhringnum niður í 24 stundir og stund- unum niður í mínútur og sekúndur. Grikkir og Rómverjar höfðu líka tímatal fyrir sig. Höfðu þeir fengið það úr ýmsum áttum og var það síður en svo mjög nákvæmt. Þegar Júlíus Cæsar komst til valda í Róm um miðja síðustu öld f. Kr., veitti hann athygli miklu ósamræmi milli árstíðanna og tímatals prestanna. Hann fékk þá lærdómsmanninn Sosigenes frá Alexandríu til að setja með sér nýtt og áreiðanlegt tímatal sem þó byggði í meginatriðum á því sem tíðkast hafði hjá Egypt- um. Samkvæmt þessu nýja tímatali voru 365 dagar í ár- inu, en bætt skyldi einum degi við febrúar ijórða hvert ár sem þá nefndist hlaupár. Þetta nýja tímatal var kennt við Júlíus Cæsar og nefnt júlíanskt tímatal. Var með því end- anlega horfið frá tunglári og tekið upp sólarár. En þótt mikil framför væri að því, þá uppgötvuðu menn þó um síðir að með því yrði árið 11 mínútum og 14 sekúndum of langt. Olli þessi skekkja miklum ruglingi í aldanna rás, en var samt ekki leiðrétt fyrr en árið 1582, þegar Gregorí- us 13. páfi fékk hóp lærdómsmanna til að gera á því um- bætur. Lagfæringin var einkum fólgin í vissri hagræðingu á hlaupársdögum, þannig að ekki er hlaupár á aldamóta- ári, nema það sé deilanlegt með 400. Eftir þetta var tíma- talið orðið harla nákvæmt. Þetta tímatal páfans var fljótlega meðtekið í öllum róm- versk-katólskum löndum og nefnt gregoríanskt tímatal í höfuðið á Gregoríusi 13. En lengi vel var mikil andstaða við að taka það upp í löndum mótmælenda vegna þess mikla fjandskapar sem ríkti á milli kirkjudeildanna. Þannig var það ekki fyrr en aldamótaárið 1700 sem það var tekið upp í löndum Danakonungs og þá einnig hér á landi. Var þá talað um að horfið væri frá gamla stíl til hins nýja. Mörg önnur lönd urðu miklu seinni til, enn eru lönd, þar sem notast er við júlíanska tímatalið og eru þar á meðal sum, þar sem gríska réttrúnaðarkirkjan er við lýði. I Rússlandi var gregoianskt tímatal tekið upp eftir byltinguna 1917, en vegna ruglings sem áður var kominn inn í tímatalsreikning þar í landi, er alltaf talað um októ- berbyltingu, þótt hún byrjaði í raun ekki fyrr en 7. nóv- ember. Heima er bezt 287

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.