Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 50

Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 50
Hér vil ég una hinstu lífs um stundir og hvílast eftir runnið æviskeið. I bjarkaskjóli blöðum visnum undir og blunda sœtt og laus við alla neyð. Náttgalinn ansar andlátsstunum mínum og aftangolan feykir þeim með sér, en heimurinn með heimskupörum sínum hann hlær þá dátt og veit ei grand af mér. Og þá er sól að sœvardjúpi líður og síðsta geisla slær á þennan lund, þá fram minn svífur svipur angurblíður og situr hér um þögla nœturstund og brosir móti blíðum stjörnuljóma sem brosti ég fyrr um mærrar æsku tíð, og hverfur svo í beði lágra blóma, er bjarmi morguns roðar fjallahlíð. Allra síðast sendi ég ykkur, kæru lesendur, stutt ljóð sem ég setti saman íyrir meira en fjórum áratugum. Það er ort undir lagboðanum „Ég vildi, að ung ég væri rós“, sem Þorsteinn Ögmundsson Stephensen orti á sínum tíma og margir eflaust muna. Ljóðið er á þessa leið : Eg vildi 'eg gœti gefið þér þá gleði, sem égjýndi, og allt það besta í heimi hér og huggun, von ogyndi. Eg veit mér gleði veittist þá, og vakna mundi lífsins þrá. Þá léki allt í lyndi. Með þessu ljóði kveð ég að þessu sinni. Hittumst svo heil í september, þegar næsta hefti kemur út að sumarfríum loknum, sem ég vona að veiti mörgum lífsfyllingu og unað. Kærar kveðjur til ykkar, Auðunn Bragi Sveinsson, Hjarðarhaga 28, 107 Reykjavík Sími 552-6826. Vísnamál Fyrsta ljóðið í seinni hluta þáttarins er eftir Bjarna Th. Rögnvaldsson, sem um ævina hefur m.a. starfað sem múrari, kennari, skólastjóri og sóknarprestur. Faðir hans var Rögnvaldur Freysveinn Bjarnason og móðir Elísabet Theódórsdóttir, yngsta dóttir Theódórs Friðrikssonar, rit- höfundar. Bræður Bjarna eru Sveinn Freyr og Pétur, sem var lengst af kunnur frjálsíþróttamaður, keppti m.a. á Olympíuleikunum í Róm 1960, og lék í kvikmyndinni Leyndardómar Snæfellsjökuls. Bjami hefur gert talsvert af því að yrkja og það er okk- ur ánægjuefni að birta þetta ljóð, og vonandi fleiri eftir hann síðar, sem hann nefnir / ferskum blœ Golan unga blæs í vatnsins bárum, blœrinn hlær á fagurskyggðri grund. Ain með sinn nið und nýjum gárum nœrir sál á hljóðri ögurstund. Oskir þá í raun og veru rætast, rósemd yljar hug við sendna strönd. I fögru veðri fagna hjörtu og mætast, finna vatnsins kyrrð með ár í hönd. Tæri blœrinn tekur senn að hlýna, tjörn oss veitir skjól á hægri ferð. Þegar sól á föllin fer að skína fuglinn kveður Ijóð afýmsri gerð. Daginn lengir, dýrðlegt er að gleðjast, draga andann léttar - nema hvað! Þar til allir saman koma og kveðjast kyrr við munum dvelja á þessum stað. Margt var afdalabýlið á árum áður og á þeirn tíma þegar samgöngur og fjölmiðlar voru ekki með þeim hætti sem nú er orðið. Þá þurfti fólk að treysta meira á mátt sinn og megin, og sjálfsagt búa sér eigin hugar ævintýri. Pétur Aðalsteinsson frá Stóru-Borg yrkir hér í næsta ljóði um börn í afskekktum dal og nefnir það Afdalabörn Afdalur inn milli fjalla og í honum bœir tveir. Undir hömróttum hlíðum á hjöllunum standa þeir. A þessum afskekktu býlum í einangrun fólkið býr. Beri þar gesti að garði það gleður, sem ævintýr. Og stúlkan sem stendur í dyrum og starir um þveran dal er rósin, sem ber sín blómstur, bjarthœrð og kvenna val. A bænum þar beint á móti, broshýr og fríður sveinn dokar, uns dimma tekur og drauminn sinn ræður einn. Og kannski í kvöld við ána þau kyssist og faðmist heitt. Margt hefur myrkrið að geyma en mun ekki segja neitt. 290 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.