Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 54

Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 54
þrungin af eldi og þakin af snœvi, Þrúövangi svipuð með mjallhvíta brá. Eykonan forna og alkunna stendur, œttarland sögu ogfrelsisins skjól, þar sem að marghœfir mæringar endur menntunar vermdust af geislandi sól. En margt annað þjóðkunnra kvæða orti Kristján á þessum skólaárum sínum og komu ýmis þeirra jafnóðum út í blöðum bæjarins og eins voru sjö þeirra birt í ljóðasafn- inu „Snót.“ „Hann bar höfuð og herðar yfir samtíðarmenn sína í skólanum og var mikils metinn af okkur sveinum,“ sagði Indriði Einarsson, „hann var þýður í vin- áttu og ljúfur í umgengni. Hann var sómi Latínuskólans út á við.“ Að þessum eina vetri loknum í Lat- inuskólanum, mátti glöggt greina hve bráðsnjalla hæfileika Kristján hafði á mörgum sviðum og hve mikils hefði mátt vænta af honum sem skáldi og mikilsmetnum embættismanni, ef hann hefði öll skólaár sín unnið þar með sama hætti. En því miður varð reyndin allt önnur, eins og bráðum verður sagt frá, og átti áfengið þar stóran hlut að máli. Enn er þó sitthvað til frásagnar um það að Kristján Jónsson hafi notið álits og vinælda langt út fyrir hinn þrönga hóp skólabræðra sinna. I janúarmánuði 1861 er sett á laggirnar í Reykjavík leynilegt málfundafélag, sem fyrst heitir Leynifélag andans, en síðar Kvöldfélag- ið. Stofnendur eru fyrst 12 ungir menn, að langmestum hluta stúdentar, sem hafa fundið hjá sér þörf og löngun til að safnast saman einstöku sinnum eftir erfiði dagsins, til þess að lífga anda sinn á þann hátt er samboðinn sé and- lega og siðferðilega menntuðum ungmennum. Kvöldfélagið var jafnan fámennt, enda þröngt inn- göngu. Kaus það sér félagsmenn að vandlega íhuguðu ráði og átti í raun úrvalsmönnum einum á að skipa. Þetta félag, sem svo sjaldan heyrist nefnt, lætur sér ekki nægja að ræða listir og vísindi. Það kemur upp minnis- varða yfir Sigurð Breiðtjörö, og er það fyrsta verk þess. Það gengst fyrir leiksýningum, kemur m.a. Útilegumönn- um Matthíasar á framfæri, veltir alvarlega fyrir sér hvern- ig afla megi leiklistinni þaks yfir höfuið, og leggur auk þess fram fé í því skyni. Þá styrkir það Jón Ólafsson til útgáfu Göngu-Hrólfs, hefur frumkvæði að samningu fræðirita eftir Jón Amason til þjóðsagnasöfnunar. Er þá fátt eitt talið af því sem félagið hratt af stað. Starfsemi þess var frá upphafi leynileg. Það gefur að skilja að Latínuskólapiltur, sem er svo til nýkominn úr vinnumennsku norður á Hólsljöllum, hefur mátt telja sér mikinn vegsauka að vera kosinn í þennan félagsskap helstu mentamanna, en sá frami hlotnaðist Kristjáni Jónssyni. Var hann þessi árin einn þriggja skóla- pilta í Kvöldfélaginu, en hinir voru þau skáldin Valdimar Briem og Jón Ólafsson, síðar ritstjóri. Kristján lét mikið að sér kveða í Kvöldfélaginu. Þar flutti hann ljóð í óbundnu máli, svo sem „um háttu manna og sveitarbrag“ í Þingeyjarsýslu. Allt þetta hefði átt að vera til þess fallið að vekja ung- um manni metnað og sjálfstraust. En mest var um það vert að þarna komst Kristján í náin kynni við ýmsa gáfu- og áhugamenn, sem höfðu í senn góðan skilning á hæfi- leikum hans og vilja og getu til að verða honum að liði. Þetta hlýtur að hafa verið honum ljóst og líka auðséð að hann hefur borið góðan hug til félagsins. Aður en hann fór úr bænum vorið 1868, hefur hann falið félaginu til ráð- stöfunar allt „það sem eftir hann væri ritað, ef hann hrykki upp af, meðan hann væri fjarverandi.“ En Kristján Jónsson á ekki aftur- kvæmt. En ráðstöfunin leiðir til þess að Jón Ólafsson safnar ljóðum hans saman og gefur þau út árið 1872, með ljár- hagslegum stuðningi Kvöldfélgsins. Vinir hans þar hafa ekki sleppt af hon- um hendinni, þó að sjálfur sé hann all- ur. IV Er nú senn komið að hinum miklu þáttaskilum og örlagahvörfum í ævi Kristjáns Fjallaskálds, sem alltaf munu hafa búið í huga hans frá æskuárum. I minningabók sinni „Séð og lifað,“ hefur Indriði Ein- arsson lýst þessum fornvini sínum af samúð og virðingu: „Hann var einhver sá af skólabræðrum mínum, sem ég ber hlýjastan hug til enn í dag. Ég virti hann mjög, bæði vegna skáldskapar hans og skynsemisþroskans, sem hann hafði fram yfir okkur hina, enda var hann 9 árum eldri en ég. Hann verndaði mig ef ég átti sökótt við stærri piltana, og kallaði mig „fóstra sinn“ (fósturson).“ En þannig mælist honum einnig frá: „Mér er enn minnisstætt síðasta kvöld Kristjáns í Lat- ínuskólanum. Hann var heimasveinn og las í 2. bekk, en var í 3. bekk A. Mánaðarfrí hafði verið um daginn, og sumir piltar komu drukknir upp eftir kl. 8. Hann var einn af þeim og kom svo seint að umsjónarmaðurinn sá hann og sagði að hann mundi fá nótu. Ég sat hjá honum uppi við efsta borðið allt kvöldið. Ég hefði viljað hugga hann, en þess var ekki kostur. Hann orti um kvöldið kvæðið „Ekki er allt sem sýnist,“ en ég las það úr penna hans. Það er eitt af miklu ljóðunum hans, en yfirkomið af heimsþjáningu. Morguninn eftir, þegar við gengum frá bænum kl. 8, hneig hann niður í dyrum Alþingissalarins. Hann sagði að sér hefði sýnst maður stinga sig í hjartað. Hann var Voriö 1863 tekst Kristján ferð á hendur til Reykja- víkur, til náms í Latínu- skólanum, aö ráói frænda sinna og vina fyrir norö- an. Veröur hann samferða frœnda sínum, Jóni Sig- uróssyni á Gautlöndum, og fara þeir Sprengisand. Má fullvíst telja að í þeirri ferð hafi í fyrsta sinn heyrst sú vísa, sem síðan mun hafa verið suitgin og höfó yfir á íslandi oftar en nokkur önnur. 294 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.