Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 56

Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 56
Af blöðum fyrri tíðar Qluggað í gömul blöð og rit og forvitnast um það, sem efst var á baugi fyrir nokkuð margt löngu Fjallkonan 12. janúar 1906 Eg ritaði greinarstúf seint í fyrravetur hér í blaðið með þessari fyrirsögn. (Sjá HEB, desemberhefti 1997. Rit- stj.) Eg geri ráð fyrir að ýmsa af les- endum Fjallkonunnar muni reka minni til hennar, því að ég hef úr ýmsum áttum fengið sannanir fyrir því, að henni hefir verið veitt tölu- verð eftirtekt - og eins til tilefnisins til hennar, móblástursins gegn ran- sókn á þessum fyrirbrigðum, sem þyrlað var upp hér i bænum. Nú virð- ist mér kominn tími til þess að minn- ast dálítið meira á þetta efni. Aðaltilefnið er samt ekki í þetta sinn, mótblásturinn. Ég met hann ekki mikils. Engin líkindi eru til þess að hann geti orðið til fyrirstöðu því mikilvæga málefni, sem hér er um að tefla. En fyrst ég fer að minnast á málið á annað borð, get ég ekki stillt mig um að geta hans með fáeinum orðum. Ég geri það „skynsömum mönnum til fróðleiks og skemmtun- ar,“ eins og stundum hefur verið sett framan á rit um þau efni, sem hvorki gera til né frá og eru ekki ætluð til annars en vera mönnum til mein- lausrar dægrastyttingar. Ekki svo að skilja að ALLUR mót- blásturinn sé af svo meinlausum hvötum runninn. Ég get, til dæmis að taka, ekki hugsað mér annað öllu ógeðslegra en mótblástur stjómar- blaðanna. Hvergi bregður þar fyrir nokkru orði í fróðleiksáttina, nokkrum glampa af þekkingu eða sannleiksást. Málið er eingöngu not- að til þess að svívirða mótstöðumenn í stjórnmálum. En því fer fjarri að þetta geri nokkuð til, öðrum en þeim sem eru að ata sjálfa sig út á óþverr- anum. Skynsamir menn sjá hvar fisk- ur liggur undir steini, þegar farið er að gera rannsóknarlöngun og þekk- ingarþrá að pólitísku ofsóknarefni, jafnvel ekki skirrst við af einu blað- inu að fara hinum svæsnustu óvirð- ingarorðum um saklausar konur fyrir það eitt, að þær eru að fást við rann- sóknir á andlegum efnum í samvinnu við þá menn, sem ekki líta á stjórn- mál sama veg og landstjórnin! Lengra verður naumast komist í því er miður má fara. Slíkt athæfi er ekki hætt við að verði sannleikanum til falls. Þá er golan úr dómkirkjunni. Þar er predikað jafnt og þétt gegn rannsókn- um á dularfullum fyrirbrigðum af sumum, alls ekki öllum samt, er þar stíga í stólinn. Dómkirkjupresturinn er raunamæddur út af tilraununum til að afla sér þess þekkingarauka. Og einn óvígður predikari hefur nýlega gerst svo svæsinn í munninum í dóm- kirkjustólnum, að ummæli hans hefðu áreiðanlega verið talin guðlast, ef þau hefðu verið viðhöfð um guðs- hugmynd þeirra manna, sem eru að þenja sig á móti rannsóknum. Að einu leyti má telja þetta fram- för. Það hefur, svo sem kunnugt er, tíðkast mjög í kirkjum þessa lands, að sneiða hjá öllu því sem söfnuður- inn hefúr verið að tala um dags dag- lega og á einn eður annan hátt borið fyrir brjósti. Prestarnir hafa með predikunum sínum átt nauðalítinn þátt í hugsunar- og menningarlífi þjóðarinnar, þó að þeir hafi oft lagt töluverðan skerf til þess utan kirkju. Þeim hefur hætt við að bjóða mönn- um guðrækilegt hjal, sem hefúr farið fýrir ofan garð og neðan og fæstir hafa munað stundu lengur. Ofstækismennirnir í dómkirkjunni eru að reyna að hjala um það sem óneitanlega er verið að tala um hér í Umsjón: Guðjón Baldvinsson bænum. Þegar þeir fara að tala um rannsókn á dularfullum fyrirbrigðum, er tekið eftir því sem þeir segja. Fyrir því má líta svo á, sem þetta sé ofurlít- il framfor. En skringileg framför er það. Prestamir hafa, öld eftir öld, verið að beijast við að koma því inn í höf- uðin á mönnum, að fyrir mörgum, mörgum öldum, hafi dularfull fyrir- brigði gerst austur í Asíu. Jafnvel frjálslyndustu og gætnustu prestamir hafa haldið því ffam, að það væri að minnsta kosti mjög viðsjárvert fyrir sálarheill mannanna, ef þeir fengjust ekki til að trúa því, að þessi fyrir- brigði hefðu gerst. Og ofstækisfullir prestar hafa haldið því að mönnum að slíkt trúleysi bakaði þeim ævar- andi ófarsæld. Prestunum hefur gengið mjög mis- jafnt að koma þessari trú inn hjá mönnum. Og á síðustu tímum hefur þeim gengið það sérstaklega þung- lega. Nú stendur svo á, að úti um heim- inn eru milljónir manna, menntaðra, sannsögulla og góðra manna, sem segja: „Ekkert á að vera því til fyrirstöðu, að heimurinn trúi þessum fornaldar fyrirbrigðum, sem prestunum þykir svo mikið varið í. Okkur er kunnugt um að sams konar fyrirbrigði eru að gerast nú, og hvers vegna hefðu þau þá ekki eins átt að geta gerst fyrir 1900 árum eða 4000 árum? Hver sem vill leggja tíma í og alúð við að rannsaka málið, getur sjálfur komist að raun um að fyrirbrigðin gerast enn í dag. Prestarnir hafa í þessu efni rétt að ntæla. Leitið og þér munuð finna. Knýið á og hliðum himnaríkis mun að nokkuru verða lokið upp fyrir yður. Svona er talað úti um heiminn. Og hér í Reykjavík eru nokkurir menn, 296 Heima er bezt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.