Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 59

Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 59
Um nóttina gisti ég hjá frændfólki mínu á Fáskrúðsfirði. Esjan kom daginn eftir á áætluðum tíma og fór ég strax um borð með farangur minn, sem hvorki var mikill að vöxtum eða fyrirferð. Ég fékk pláss á öðru farrými og fór strax í koju, því ég var alltaf sjóveikur ef ég fór nokkuð á sjó. Mig minnir að ég keypti mér sjóveikitöflur hjá læknin- um á Fáskrúðsfirði áður en ég fór. Sjóveður var gott undir Ingólfs- höfða og ég ekki teljandi sjóveikur. Allmargir komu um borð úti fyrir Flornafirði. Mér var sérstaklega starsýnt á einn farþegann. Hann var áberandi stór vexti, talaði mik- ið og hátt. Brátt fóru margir að safnast í kringum hann, enda var sýnilegt að það þekktu hann margir. Maðurinn var Einar Eiríksson frá Hvalnesi. Þannig stóð á að það var mat- málstími og þjónarnir í óða önn að bera á borð. En Einar hafði stillt sér upp í matsalnum á öðru farrými. Þjónarnir áttu í erfið- leikum með að komast framhjá honum og félögum hans og báðu hann vinsamlega að færa sig frá, því þeir ættu erfitt með að sinna störfum sínum. Ekki veit ég hvort Einar var svo upptekinn af frásögnum sínum eða hann vildi ekki færa sig þangað sem hann truflaði ekki vinnu þeirra, nema einn þjónninn stjakaði lítillega við Einari. Hann brást illa við og krækti vísifingri hægri handar í smá gat sem var á jakkaermi þjónsins og reif all stóra rifu á hana, síðan hló hann tröllahlátri og færði sig til, svo að hann var ekki lengur fyrir þjónun- um. Sumir hlógu að þessu tiltæki en aðrir voru undrandi á þessari fram- komu Einars. Eftir að ég var búinn að fá mér smá bita, fór ég niður og háttaði mig. Eft- ir svo sem tvo tíma fór skipið að rugga meira og meira, svo ég skilaði matnum í ælupokann. Veðrið fór versnandi og sjóveikin líka, en nú hafði ég litlu að æla nema grænu gallinu. Ekki gat ég sofið þrátt fyrir sjó- veikitöflurnar. Aðeins náði ég þó að festa blund meðan Esjan stansaði í Vestmannaeyjum. Eftir 36 klukkustunda sjóferð kom- um við til Reykjavíkur. Ég hraðaði mér í fötin, tók farang- ur minn og fór upp á Grundarstíg 15, en þar bjuggu hjónin María Olafs- dóttir, sem var náfrænka mín, og hennar maður, Ríkarður Jónsson myndskeri og fjölhæfur listamaður. Þar var mér tekið með kostum og kynjum. Ég dvaldi þar í góðu yfirlæti fram á næsta dag, eða þangað til flóabáturinn, sem gekk milli Borgar- ness og Reykjavíkur, kom. I Borgar- nesi tók Runólfur Sveinsson skóla- stjóri á móti mér og bauð mig vel- kominn. Hann tók mig í bíl sinn og ók mér í Hvanneyri. Þegar þangað kom fylgdi hann mér upp á herbergi númer 8 á annarri hæð og vísaði mér á rúmið sem ég átti að sofa í en fjögur rúm voru í herberginu, þar af tvær hákojur og átti ég að sofa í annarri. Síðan segir hann við mig: „Nú skalt þú fara úr sparifötunum og fara í hversdagsfötin, því hér er það föst venja að sá nemandi sem kemur síðastur í yngri deildina hvert haust, er tolleraður og þá er vissara að vera ekki í betri fötunum, því yngri deildar piltamir reyna að verja eldri deildungum að tollera þann síð- asta og þá vilja fötin stundum rifna utan af honum.“ Svo gekk skólastjórinn út. Ég flýtti mér að hafa fataskipti, fór í gamla milliskyrtu og líka gallabux- ur, svo fór ég í níðsterka lopapeysu. Stuttu seinna var kallað á skólapilt- ana í kaffi. Mér kom það svolítið á óvart, því skólastjórinn var búinn að segja mér hvenær matar og kaffitím- ar væru. Matsalurinn var í kjallaran- um á íbúðarhúsi skólastjórans og starfsfólksins. Þennan vetur voru nemendur um 60. Þegar ég kom upp fyrir skólahúsið stóðu allir nemendurnir í hóp framan við dyrnar á matstofunni. Ég kastaði á þá kveðju og var henni vel tekið. Þegar ég nálgaðist hópinn hlupu fram þrír stórir og vasklegir piltar og gripu mig. En svo kom allur hópurinn og allsherjar áflog hófust. Eldri deildar piltar reyndu að tollera mig en alltaf héngu yngri deildar piltar í mér. Stundum tókst að fleygja mér upp að ofan og stundum að neðan, en alltaf tókst einhverjum að hanga í mér. Fötin voru öll úr lagi gengin, axlaböndin slitin og buxurnar að verða komnar niður fyrir rass. Ég bað þá að gera smá hlé, svo ég gæti lagfært fötin, og gerðu þeir það. Síðan hófust átökin aft- ur og lauk eins og venjulega, með sigri eldri deildunga, en orrustan var búin að standa í hálftíma. Lopapeysan mín var öll teygð og toguð, skyrtan gersamlega ónýt og axlaböndin slitin. Þannig lauk þeim leik og höfðu margir gaman af. Herbergisfélagar mínir voru Guð- mundur Garðar Brynjólfsson frá Hlöðutúni í Staflroltstungum, Sigur- jón Björnsson frá Osi í Skilamanna- hreppi og Jóakim Arason frá Selja- landi í Gufudalssveit. Það olli mér dálitlum erfiðleikum til að byrja með að kennslan var hafin fyrir tveimur vikum og hafði ég misst af henni. Ekki kom það þó að teljandi sök, nema á fyrsta skyndiprófinu sem tekið var, en þá var ég með lægstu einkunn herberg- isfélaga minna og spáði Jóakim því að ég fengi lægstu einkunn þeirra um vorið. Það fór nú þó svo að hann varð sjálfur með lægstu ein- kunina af okkur herbergisfélögun- um. Á Hvanneyri var mikið félagslíf, tvö málfundafélög sem héldu fundi vikulega og ræddu ýmis málefni. Oft var það þannig að tveir framsögu- menn voru, annar sem var hlynntur Hann brást illa við og krækti vísifingri hægri handar í smá gat sem var á jakkaermi þjónsins og reif all stóra rifu á hana, síðan hló hann tröllahlátri og færði sig til, svo að hann var ekki lengur fyrir þjónunum. Heima er bezt 299
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.