Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 62

Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 62
<í *W/ ---------------------- kM Auðunn Bragi Sveinsson AMANMAL Heyrt og munaö úr mannlífinu Annar hluti 1. Járna-Magnús var maður einn nefndur. Vann hann lengi við að binda og beygja járn í steinsteyptar bygg- ingar. Vel þótti honum vinnast við það verk. Var lag- inn og dugandi. Eitt sinn vann sá, sem þetta ritar, með Magnúsi við byggingar í Reykjavík. í matartíma snæddu menn það matarkyns, sem þeir tóku með sér. Einn af verkamönnunum snæddi dilkakjöt úr hnefa. Beininu henti hann síðar til Magnúsar og hitti hann fremur harkalega. Ekki reiddist Magnús þessu, en sagði: „Sjaldan reiðist hundur beinshöggi!“ 2. Bræður tveir norðlenskir lögðu eitt sinn leið sína á ball í sveit sinni. Dans var þar stiginn lengi nætur, eins og títt var fyrrum. Annar bróðirinn, sem að jafn- aði var latur við vinnu, tróð dansinn hvað ákafast. Þegar bróðirinn sá þennan dansglaða bróður sinn löðrandi í svita og mjög að niðurlotum kominn aftir linnulausan dansinn, varð honum að orði: „Osköp þreyttur, auminginn, ósköp sveittur, bróðir minn. Þú værir ekki svona sveittur ef þú stæðir við orfið þitt! “ 3. Svo virðist sem auðvelt sé að blekkja fólk. Eftirfar- andi frásögn sýnir það ljóslega. Eitt sinn auglýsti ein- hver hugkvæmur náungi í fjöllesnu blaði í Bandaríkj- unum þannig: „Sendið mér einn dollara, og sjáið hvað gerist“ Um ein milljón manns beit á agnið og sendi mannin- um umbeðna upphæð. En ekkert gerðist. Allir þeir, sem sendu umgetna fjárhæð, töpuðu peningum sínum, en náunginn varð milljónamæringur í dollurum! Hann hafði haft eina milljón manns að ginninmgarfíflum og þénað vel á því! 4. Maður nokkur vann með konu, sem lýsti því yfir, að hvers konar áfengisneysla væri böl og annað ekki. Barst neysla áfengra drykkja í tal á milli þeirra. Voru þau mjög á öndverðum meiði í þessu máli. Konan sagði, að banna ætti allt bölvað áfengi. Og til að gera konuna orðlausa, varpaði maðurinn eftirfarandi fram: „Það er helvíti gaman að vera fullur!“ 5. I æsku var þeim, sem þetta ritar, sagt frá manni ein- um, er ekki hafði þvegið sér í fjóra áratugi. Þetta var ungum dreng að vonum mikið undrunarefni. Spurði hann föður sinn hvernig maðurinn hefði eiginlega get- að lifað þetta af. Maðurinn hefði verið orðin ærið söl- ugur áður lauk. En faðir drengsins átti svar, sem koma að notum í þessu efni og var nægileg skýring: „Ætli það hafi ekki rignt eitthvað af honum öðru hverju?!“ 6. Löngum hafa Húnvetningar verið taldir framgjarnir og fúsir til forystu á opinberum vettvangi. Sunnlendingur einn var eitt sinn að því spurður, hvað hann segði um Húnvetninga þá, er tekið hefðu sér bólfestu á Suður- landi. Því svaraði hann eitthvað á þessa leið: „Það er nú svona með þessa Húnvetninga, sem koma hingað til okkar, að þeir eru komnir í hreppsnefnd eft- ir árið!“ 7. Sá, sem þetta ritar, spurði eitt sinn ungan mann, sem hann vann með, hvort hann hefði lesið eitthvað af þeim mörgu bókum, er þá voru á markaðnum og nefndust „How to...“ og gripu á mörgu. Maðurinn var ekki lengi að afgreiða þetta og sagði: „Mér er illa við allar bækur, sem byrja á „How to!“ 8. Þorsteinn eldri Magnússon í Höfn í Borgarfirði eystra hjálpaði eitt sinn fátækum manni um hey í poka sinn. Þá spurði kona Þorsteins mann sinn að því, hvort maður þessi borgaði ekki þennan greiða aðeins með 302 Heima er bezt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.