Heima er bezt - 01.07.2001, Side 63
því að herma eftir honum. Svaraði þá Magnús ósköp
rólega:
„Haim lifir nú ekki lengi á því!“
9.
í kaupstað einum úti á landi losnuðu samtímis skóla-
stjóra- og yfirkennarastaða við grunnskóla. Er það út
af fyrir sig að sjálfsögðu ekki í frásögur færandi.
Annað var nokkru sérstæðara. Tveir kennarar við
skólann, jafngamlir upp á dag, sóttu um þessar stöður,
sumir sögðu á sama eyðublaðinu! Þeir hlutu báðir
setningu í nefndar stöður.
10.
Maður nokkur, ölvaður vel, vék sér að manni einum,
sem hann þekki ekki nokkurn hlut, og gaf honum vel
úti látinn löðrung. Þetta var á samkomustað úti á
landi. Búast hefði mátt við, að maður þessi hefði sleg-
ið duglega á móti Það gerði hann ekki. Hins vegar
sagði hann við árásarmanninn:
„Heyrði, góði, á ég að gefa þér eina „gleym -mér- ei
!“
n.
Árni gersemi var maður nefndur, en hét fullu nafni
Árni Fríamnn Árnason og var úr Húnaþingi. Kvæða-
maður var hann afbragðs góður, en fram úr öllu hófi
drykkfelldur. Eitt sinn bar Árna að garði á bænum
Skárðsá í Sæmundarhlíð í Skagafirði. Var hann þá
mjög drukkinn. Lagðist upp í rúm á bænum, leysti frá
sér buxurnar og sprændi upp í baðstofurjáfur. Ofbauð
þá húsfreyjunni á bænum, henni Sigurbjörgu Jónsdótt-
ur, sem var skáldmælt vel, og mælti hún þá fram eftir-
farandi vísu til Árna gersemi:
Svei þér, hlekkjastífur stáls,
steyptur í rekkju svínsins,
sem að ekki enn til hálfs
áhrif þekkir vínsins !
12.
Maður nokkur átti son, sem var kröfuharður og skip-
andi.
Átti hann oft erfitt með að uppfylla óskir hans og
þarfir. Einhverju sinni krafðist drengur þess, að faðir-
inn keypti skellinöðru eða vélhjól handa sér, og það af
dýrustu gerð. Lét faðirnnn loks undan heimtufrekju
stráksa og skaffaði honum, skellinöðru. Þegar hann
greiddi gripinn, kynnti hann sig þannig fyrir verslun-
armanninum:
„Eg átti víst að borga nöðrureikning hér!“
13.
Gunnar hét maður og var Sigurðsson Verslaði hann
lengi í búð á Laugavegi 55, er hann nefndi VON. Var
hann löngum kenndur við þá verslun, sem hafði alls
kyns kjötvörur á boðstólum. Eitt sinn komu menn frá
skattinum í búðina til Gunnars og vildu fá að líta á
bókhaldið.
Benti þá Gunnar á nagla tvo, er reknir voru inn í
vegg þar. Mælti þá kaupmaðurinn eitthvað á þessa
leið:
„Á öðrum naglanum er allt sem inn kemur, en á hin-
um allt sem út fer. Allt, sem þar er á milli, er gróði!“
14.
Kennari nokkur í Reykjavík, sem var mjög lágur
vexti, fékk viðurnefnið Stubbur af nemendnum sínum.
Þótti honum það ekki þægilegt, eins og nærri má geta.
En sem mótvægi við uppnefni þessu tók hann að lesa
sem framhaldssögu í bekknum bók eina, er ber heitið
„Stubbur vill verða stór“ Eftir að kennarinn hóf að
lesa sögu þessa, munu nemendurnir ekki hafa gefið
kennaranum viðurnefnið Stubbur
15.
Karl einn, er vann verkamannavinnu við höfnina í
Reykjavík, vann eitt sinn sem oftar við uppskipun á
fiski þar. Greip hann þá lúðu eina væna, er hann sá
þar í fiskkösinni, batt hana á bak sér og klæddist síð-
an sjóstakki. En því miður náði sjóstakkurinn ekki
nógu langt niður eða lúðan verið það löng, svo að
sporður hennar gægðist niður undan stakki karls. Allt
komst sem sagt upp og karl varð að skila lúðunni. En
það var ekki það versta. Eftir þetta hlaut hann viður-
nefnið lúða. Var hann iðulega minntur á það af vinnu-
félögum sínum. Undirritaður heyrði þá oft spyrja karl
að því, hvernig lúðuveiðin mundi nú vera, eða hvort
hann hefði verið á lúðuveiðum nýlega. Óneitanlega
útsmogoin stríðni, sem þeir, er beittu henni, uxu lítt
af.
16.
Eftir að Danir höfðu endurheimt Suður-Jótland að
lokinni fyrri heimsstyrjöld, reið Kristján konungur X
yfir landamærin gömlu á hvítum hesti. Vakti það að
vonum mikla athygli og hrifningu. Þetta gerðist í júlí
1920. Knútur prins, yngri sonur konungs, sem lifði
bróður sinn í 4 ár (d. 1976), var viðstaddur athöfnina
og sagði frá henni í danska sjónvarpinu, þar sem tekið
var viðtal við hann.
Lét Knútur prins þess þá getið, að hesturinn hefði í
raun verið skjóttur, en litið út fyrir að vera alhvítur, en
málað var yfir dökka díla, sem á honum voru. Fannst
víst flestum sem á hlýddu og horfðu, sem mesti ljóm-
inn færi þar með af hinum fannhvíta fáki.
Heima er bezt 303