Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 70

Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 70
hefði mátt saumnál detta. Það var loksins Kristján sýslu- maður sem rauf þessa miklu þögn. - Hvað ertu að segja manneskja? Hvernig veist þú það og hver er það? Gunna brosti lítillega. - Eg ætla ekki að segja þér það í dag, sýslumaður góð- ur. Eg skal segja þér það á morgun. Það er sanngjarnt að sá hinn seki fái tækifæri til að koma til þín af sjálfsdáð- um. Ef hann hefur ekki komið til þín annað kvöld skal ég svara spurningum þínum. Það kom kurr í hópinn og margir tóku andann á lofti. En Kristján lét ekki trufla sig. - Ertu að segja að sá seki sé hér í veislunni? - Hver veit... Gunna sagði ekkert meir, kastaði kveðju á fólkið og fór. Sigmundur hvarf fljótlega á eftir henni. Fyrst eftir að Gunna fór sátu menn þöglir, en síðan þurftu allir að tjá sig um þessa undarlegu hegðun. Það var dæmalaust að manneskjan skyldi dirfast að mæta drukk- in. Þetta hlaut að vera eins og hvert annað fylliríisröfl. Hún Gunna hafði hvort sem var aldrei getað hagað sér eins og siðaðri manneskju sæmdi. Hún var eins og versti karlmaður, blótaði og drakk og reykti þar að auki stórsíg- ar. Það var ekki von á góðu. Hvernig dirfðist hún líka að gefa í skyn að einn af þeim, sem þarna voru, hefðu farið ránshendi um bæinn á Hóli? Nei, þetta var einum of mik- ið af því góða. Líklegast var að Gunna væri loks að verða dálítið galin, hún hafði hvort sem var aldrei verið eins og fólk er flest. Lína, sem ekkert tók þátt í umræðunni, smeygði sér fram að dyrum og tók yfirhöfnina sína. Hún hvíslaði að manni sínum. - Ég verð eiginlega að fara og gá að stelpunum. Vert þú bara lengur, ég ætla að rölta heim. Kristján kinkaði kolli. Það var ekki langt fyrir Línu að fara, en hann var undrandi á hegðun hennar. Hún var ekki vön að vera svona áhugalaus ef eitthvað krassandi var í gangi. Manneskja, sem lagðist svo lágt að liggja á hleri, stóð nú og þóttist ekki heyra allt sem sagt var. Hann trúði varla að kraftaverkið hefði gerst. Það hlaut eitthvað að vera að Línu. Hún hlaut að vera lasin. Helst hefði Kristján viljað yfirgefa samkvæmið um leið og kona hans en hann varð að vera lengur. Hann og presturinn stóðu fyrir þessu og því bar honum að vera til enda. Það var öðruvísi með Línu. Hún var vanfær og hafði því afsökun fyrir því að fara heim. Vegna uppákomunnar hennar Gunnu dróst það á lang- inn að fólk færi heim. Var svo langt gengið í umræðunni um konugarminn að sumir voru búnir að rifja upp alla helstu karlmennina sem hún hafði verið kennd við. Krist- jáni var eiginlega nóg boðið, en vissulega voru það ekki allir sem svo töluðu. Borghildur gerði hvað hún gat að bera í bætifláka fyrir Gunnu. Henni hafði alltaf fallið vel við hana og taldi hana vera einn besta starfskraftinn í fiskvinnunni. Það var komið langt fram á kvöld er Kristján kom heim. Hann var heldur en ekki undrandi er Solla gamla sat hálfdottandi yfir telpunum sem nú voru sofhaðar hreinar og sælar að sjá. Hann ýtti við gömlu konunni. - Hvar er Lína? - Ó, hún þurfti að skreppa og hjálpa henni Siggu með eitthvað blúnduverk. Hún bað mig að segja þér að vera ekkert að vaka, hún kæmi kannski ekki mjög snemma heim. Kristjáni var órótt. Það var eitthvað undarlegt á seyði. - Var hún nokkuð lasleg? Solla gamla brosti. - Nei, nei, öðru nær. Hún var mjög glaðleg og leit vel út. Hafðu ekki áhyggjur af henni. Þú átt mjög hrausta og fallega konu, sýslumaður. Kristján hummaði eitthvað. Hann ákvað að vinna við bókhald sýslunnar, hann þorði ekki að sofna fyrr en Lína kæmi heim. * * * Eftir að Lína hafði sagt Sollu gömlu allt frá jarðarfor- inni flýtti hún sér að heiman á ný. Hún vonaði bara að Kristján færi ekki að hafa áhyggjur af henni. Hann mátti bara ekki skemma allt ráðabruggið. Gunna hafði teflt á tæpasta vað og gert sig að algjörum aula fyrir framan alla. En henni Gunnu var sama. Best var ef erfidrykkjan stæði sem lengst. Allt var mjög vel undirbúið. Lína hafði tekið loforð af Siggu að segja að hún væri hjá henni en kæmist ekki í síma ef Kristján hringdi. Sigga vissi allt um ráðbrugg þeirra og hún varð að treysta því að hún sæi um sýslu- manninn ef hann færi að undrast um hana. Lína flýtti sér sem mest hún mátti heim til Gunnu. Hún smeygði sér inn um dyrnar. Gunna tók á móti henni og faðmaði hana. - Sástu svipinn á fólkinu. Það héldu allir að ég væri pissfull. Þær flissuðu. - Það verður líklega eitthvað skrafað um mig á næst- unni í plássinu og það ekki allt fallegt. Lína hnussaði. - Blessuð góða, það snýst allt þér í hag ef við gómum hann. - Eins og mér sé ekki sama hvað fólk skrafar. En farðu nú inn í herbergi og vertu þar. Það er best að fólk haldi að ég sé ein heima. Þær horfðust í augu eitt andartak en síðan smeygði Lína sér inn í herbergi inn af eldhúsinu og hallaði á eftir sér. Tíminn silaðist áfram og Gunna sýslaði í eldhúsinu. Hún lét sem ekkert væri, raulaði fyrri munni sér og virtist hin kátasta. Það var ekki fyrr en á tíunda tímanum að úti- dyrahurðinni var hrundið upp og Bjami Bóla kom inn í eldhúsið til hennar. Hann sagði ekkert strax en starði á Gunnu. - Bjarni, viltu snafs? Hann hnussaði. 310 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.