Gátt - 2016, Side 7
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
7
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
2015. Samstarfsaðilar Fræðslusjóðs í þessu verkefni á árinu
2015 voru 13 símenntunarmiðstöðvar. Vottað nám er skil-
greint sem nám samkvæmt námsleiðum sem hafa verið
sérhannaðar fyrir fólk á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið
framhaldsskóla og sem metnar hafa verið til eininga á fram-
haldsskólastigi.
Árið 2015 voru þátttakendur 2.706 talsins í 215 vott-
uðum námsleiðum sem Fræðslusjóður fjármagnaði. Um 66%
þátttakenda komu af landsbyggðinni en 34% þeirra sem
sóttu námið komu frá höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendum
hjá fimm símenntunarmiðstöðvum fjölgaði á milli áranna
2014 og 2015 en fækkaði hjá átta stöðvum. Í heild fækkaði
þátttakendum úr 2.804 í 2.706.
Fleiri konur en karlar eru þátttakendur í vottuðum náms-
leiðum. Á síðustu árum hefur körlum fjölgað nokkuð og árið
2015 var hlutfall þeirra 34% sem er 1% hærra en árið áður
og töluvert hærra en árið 2008 þegar hlutfall karla var aðeins
tæp 20%.
Samanburður áranna 2014 og 2015 sýnir að í vottuðu
námi, greiddu af Fræðslusjóði, fækkar nemendastundum um
rúmlega 36 þúsund, á meðan nemendastundum í vottuðu
námi, greiddu af öðrum, fjölgaði óverulega, eða um rúmlega
500 nemendastundir. Samanlagt fækkar nemendastundum í
vottuðu námi fyrir markhóp FA um tæplega 36 þúsund eins
og mynd 1 sýnir.
Á árinu 2015 nam kostnaður við framkvæmd náms- og
starfsráðgjafar alls tæpum 114,2 m.kr.
Árið 2015 héldu átta af þrettán fræðsluaðilum samtals
108 kynningarfundi í náms- og starfsráðgjöf en þar af fóru 84
kynningar fram á vinnustöðum, eða 78%, en aðrar kynningar
voru 24, eða 22%.
Heildarfjöldi ráðgjafarviðtala hjá símenntunarmiðstöðv-
unum og fræðslumiðstöðvum iðngreina árið 2015 var 8.319
viðtöl á móti 9.467 árið 2014 sem er fækkun um 1.148 viðtöl
eða um 12%, sbr. töflu 1 hér á eftir. Sjö miðstöðvar skila fleiri
viðtölum heldur en árið 2014 en sjö eru með færri viðtöl en
árið áður. Mest fækkun viðtala var hjá Mími-símenntun, Mið-
stöð símenntunar á Suðurnesjum og Fræðsluneti Suðurlands.
Af þessum 8.319 viðtölum flokkast 55,5% sem hefð-
bundin viðtöl, 17,8% voru í hópráðgjöf, 16,9% fólust í raf-
rænni ráðgjöf og símaráðgjöf, 4,4% voru hvatningarviðtöl og
5,3% flokkast undir færnimöppugerð í raunfærnimati.
Skipting eftir kyni hefur tekið nokkrum breytingum á
undanförnum árum. Árið 2007 voru karlar 39% þeirra ein-
staklinga sem sóttu ráðgjöf og konur 61%, næstu ár óx hlut-
fall karla jafnt og þétt og árið 2011 var hlutfall karla komið
í 59%. Árið 2015 var hlutfall karla 57% og kvenna 43%,
sem er sama skipting og árið á undan. Aldurssamsetning í
ráðgjöfinni fyrir árið 2015 sýnir að helmingur ráðþega eru á
aldrinum 26–40 ára (50%), og stór hluti þeirra er á aldrinum
41–55 ára (28%). Litlar breytingar hafa orðið á aldurssam-
setningu síðustu árin.
Árið 2015 voru 80% viðtala náms- og starfsráðgjafa við
einstaklinga sem hafa ekki lokið námi á framhaldsskólastigi,
þ.e. hafa aðeins lokið grunnskóla eða hafið nám í framhalds-
skóla og ekki lokið. Hlutfall viðtala við einstaklinga sem
höfðu lokið iðn- eða starfsmenntun var 11%.
Árin 2009 og 2010 jókst þjónusta náms- og starfsráð-
Mynd 1. Nemendastundir í vottuðu námi fyrir markhóp
FA, 2007–2015
500.000
450.000
400.000
350.000
300.000
250.000
200.000
150.000
100.000
50.000
0
2007
151.230
168.358
273.165
439.217
418.814 429.727
467.942 477.894
442.213
Vottað nám greitt af Fræðslusjóði
Vottað nám greitt af öðrum
Samtals
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015
Tafla 1. Fjöldi ráðgjafarviðtala árin 2010–2015
Fræðsluaðilar 2010 2011 2012 2013 2014 2015
Símenntunarmiðstöðvar 8.552 8.316 7.403 7.517 6.691 5.661
Fræðslumiðstöðvar iðngreina 2.247 2.552 2.814 3.347 2.776 2.658
Samtals 10.799 10.868 10.217 10.864 9.467 8.319