Gátt - 2016, Page 16
stöðu manns á vinnumarkaði.
allir a
ð fara í það sem
hafa kost á því.
góð leið til
að komast ú
t og hitta
fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar se
m það er sta
tt o
g mæta þeim sem eru les-, e
ða talnablindir o
g eiga
Námskeiðið hefur sty
rkt mig persónulega í
Námskeiðið gjörbreytti m
ér og mínu lífi
, það gaf m
ér m
ikið
Sjálfssty
rking og samskipti er
stór þáttur í náminu og mjög
Gott a
ð hafa stu
ðning vinnustaðarins til
að sækja námskeiðið.
Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m
ér in
nsýn
í hvar mínir sty
rkleikar lig
gja og hvað ég þarf að gera til a
ð komast í
16
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
Síðsumars 2016 voru hafnar viðræður við þróunaraðila Innu
um hugsanleg aðild FA og samstarfsaðila að Innu.
M I Ð L U N U P P LÝ S I N G A U M S TA R F I Ð
Í F R A M H A L D S F R Æ Ð S L U N N I
Gátt er ársrit Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og ber undir-
titillinn Ársrit um framhaldsfræðslu. Gátt kemur út í þrett-
ánda skipti í tengslum við ársfund Fræðslumiðstöðvarinnar
sem haldinn verður miðvikudaginn 30. nóvember 2016. Í
ritinu er alhliða umfjöllun um framhaldsfræðslu á Íslandi og í
Evrópu. Þema ársins er verkefni í þróun fullorðinsfræðslu og
verður fjallað um það í fræðilegum greinum, reynslusögum
og lýsingum á ýmsum möguleikum sem standa þeim til boða
sem óska eftir fræðslu.
Gátt, ársrit Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins er dreift
víða, meðal annars til símenntunarmiðstöðva, framhalds-
skóla og bókasafna. Gátt er notuð til kennslu í þremur
háskólum, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Lista-
háskóla Íslands, og er ritið einnig aðgengilegt á vef Fræðslu-
miðstöðvar atvinnulífsins, www.frae.is. Upplýsingum er
einnig miðlað með ýmsum öðrum hætti, meðal annars með
kynningarbæklingum, fréttabréfum, útgáfu námskráa og
dreifingu þeirra, þátttöku í ráðstefnum og móttöku gesta,
bæði innlendra og erlendra.
Í ár mun FA, í samstarfi við NVL, standa að þremur ráð-
stefnum og námskeiðum, sjá nánar í kaflanum um Norrænt
tengslanet um nám fullorðinna.
Starfsemi FA var á tímabilinu kynnt fyrir á fimmta
hundrað manns, þar á meðal fyrir hópum frá Norðurlöndum,
Eystrasaltslöndum og Ungverjalandi. Kynningarnar hafa farið
fram á fundum og ráðstefnum á Íslandi og erlendis. Umfjöll-
unarefni kynninganna var starfsemi FA, ráðgjöf í raunfærni-
mati, Fræðslustjóri að láni og starfsmenntasjóðir.
Á árinu var fram haldið vinnu við að kynna það starf sem
fram fer á vettvangi framhaldsfræðslu bæði fyrir almenn-
ing og gagnvart öðrum skólastigum. Unnið hefur verið með
fulltrúum Kvasis um þróun hugmynda um kynningarmál. Á
fyrri helmingi ársins voru haldnir tveir fundir í hópnum. Þá
var enn fremur unnið að kynningu á framhaldsfræðslunni í
félagsmiðlum í upphafi árs í samstarfi við auglýsingastofuna
ENNEMM.
U N D I R B Ú N I N G U R A Ð K O M U N Ý R R A
H Ó PA U M F R A M H A L D S F R Æ Ð S L U
Eitt af markmiðum FA er að nýta samlegðaráhrif í starfi sínu
til hagsbóta fyrir hópa sem standa utan vinnumarkaðar, sér-
staklega innflytjendur, fatlað fólk og hælisleitendur.
Lögð hefur verið áhersla á náms- og starfsráðgjöf fyrir
innflytjendur, fatlað fólk og hælisleitendur og byggt á nálgun
á upplýsingum úr Menntun núna verkefnum og GOAL,
erlendu samstarfsverkefni sem lýst er sérstaklega hér á eftir.
GOAL verkefnið (Guidance and Orientation for Adult
Learners) er unnið samkvæmt umsókn/áætlun sem hlaut
styrk úr Erasmus Key Action 3. Mennta- og menningar-
málaráðuneytið fól FA að taka þátt í umsókn í verkefnasjóð
Erasmus + Key Action 3: Stuðningur við stefnumótun um
framtíðarverkefni. Sjóðurinn veitir styrki í verkefni þar sem
þróaðar eru nýjungar í menntamálum á stefnumótunarstigi
í gegnum alþjóðlegt samstarf. FA tók þátt í for umsóknar ferli
og lokaumsóknarferli á árinu 2014 ásamt samstarfsaðilum.
Verkefnið hófst formlega 1. febrúar 2015 undir forystu
flæmska mennta- og menningarmálaráðuneytisins í Belgíu.
Önnur samstarfslönd eru Holland, Tékkland, Slóvenía og
Litháen. Að auki er matsaðili verkefnisins frá Bretlandi og
fulltrúi frá Tyrklandi fylgist með þróuninni. Verkefnið er til
þriggja ára og er unnið í samstarfi við Mímir-símenntun og
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, á þeirra svæðum. Í
gegnum samstarf landanna verða þróaðar leiðir fyrir heild-
stæða þjónustu ráðgjafar sem beint verður að hópum sam-
félagsins sem síður sækja í nám. Áskoranir eru ýmiss konar
og gengur misvel að ná í markhópinn inn í verkefnið. Áætl-
anir voru yfirfarnar og gögn útbúin fyrir fundi og þróuð áfram
í kjölfar þeirra ásamt fundargerðum. Unnið var að fjármálum,
samningar gerðir og upplýsingar skráðar fyrir ársskýrslu verk-
efnisins.
Unnið er að þróun tengslanets og að samstarfi tengdra
hagsmunaaðila og stofnana fyrir þróun verkefnisins hér-
lendis.
Í verkefninu hefur hingað til verið haldið fast í þá hug-
mynd að verið sé að færa námsráðgjöf nær hópum sem hafa
ekki sótt sér ráðgjöf áður og sækja síður í nám. Í gegnum
verkefnið eru hagsmunaaðilar nú upplýstari um þá þjónustu
sem er til staðar og geta vísað hver á annan eftir þörfum
hvers einstaklings. Unnið er að því að efla það samstarf í
þágu markhópsins.
Sérfræðingar FA hafa tekið þátt í að meta stöðu mála