Gátt - 2016, Page 21
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
21
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
• gerir fullorðnum með takmarkaða formlega menntun
kleift að hefja nám að nýju og styrkja starfsgengi sitt
• viðurkennir og þar með hvetur til óformlegs náms.
(Field o.fl., 2012)
Margar hindranir koma samt sem áður í veg fyrir að stað-
festingarferlið sé skilvirkt. Menntastofnanir og fagmenn
eru oft tregir til að samþykkja að hæfni sé hægt að afla við
mismunandi námsaðstæður, og jafnvel á óformlegan hátt,
og atvinnurekendur eru stundum tregir til að gera færni
starfsmanna sinna of augljósa af ótta við að missa þá frá
sér. Mat á fyrra námi er einnig töluvert vandamál því segja
má að óformleg menntun sé í eðli sínu óskjalfest. Trú-
verðugt og faglegt raunfærnimat er mjög kostnaðarsamt.
Þessi málefni hafa verið rædd innan færniþróunarnetsins. Í
skýrslunni Kompetanse sett fra arbeidslivet,7 sem lá til grund-
vallar hugmyndaráðstefnu netsins í lok ágúst 2016, kemur
fram að horfa verði á alla þætti sem varða færniþróun í
atvinnulífinu;
1. Nám sem fer fram í atvinnulífinu. Hér er átt við nám
starfsmanna og stjórnenda sem fer fram á vinnustaðnum
og á jafnt við um skipulagða og vel uppbyggða færni-
þróun sem og formlaust nám sem fer fram dags daglega
í vinnunni.
2. Nám áður en farið er út á vinnumarkað. Hér er bæði átt
við nám ungs fólks áður en það fer út á vinnumarkaðinn
og nám fólks þegar það er milli starfa. Námið á sér stað í
skóla eða hjá fræðsluaðila, eða jafnvel á vinnustöðum ef
þeir eru notaðir til vinnustaðanáms.
3. Raunfærnimat og viðurkenning eða vottun á færni.
Rætt hefur verið um raunfærnimat með hliðsjón af þeim
kröfum sem þarf að uppfylla til að geta fengið vinnu,
geta þróast í starfi og að geta skipt um starf. Raunfærni-
mat þarf að vera áreiðanlegt, lögmætt og byggt á kröfum
atvinnulífsins og jafnframt þarf það að vera hliðstætt því
kerfi sem notað er innan formlega skólakerfisins.
Lögð er áhersla á að vinnumarkaðurinn er ekki einn, heldur
eru margar ólíkar gerðir innan vinnumarkaðar hjá einni þjóð
7 http://nvl.org/Portals/0/_dokumenter/2016/Underlag%20till%20arbets-
konferens.pdf
og sinna þarf þeim öllum. Í stuttu máli má skipta vinnumark-
aðnum í þrjár tegundir:
1. Vinnumarkaður sem lýtur lagafyrirmælum um færni. Sem
dæmi má nefna löggiltar iðngreinar eða háskólapróf til
starfa, s.s. nám lækna og hjúkrunarfræðinga.
2. Opinn vinnumarkaður, þar sem krafa er gerð um ákveðið
stig menntunar, en hún getur verið í ýmsum greinum.
3. Innri vinnumarkaður, þar sem formlegrar menntunar er
ekki krafist heldur fremur ákveðinna eiginleika starfs-
manna og viðhorfa. Í þeim tilfellum hefur formleg
menntun litla eða enga þýðingu fyrir þá sem gegna sama
starfi.
Námslok úr formlegu skólakerfi annars vegar og færni sem
aflað er í starfi innan fyrirtækja hins vegar hafa því ólíku
hlutverki að gegna á ólíkum geirum vinnumarkaðar. Þriðji
þátturinn nýtur ekki athygli stjórnvalda í samanburði við hina
tvo, þar sem formlega menntakerfið spilar stórt hlutverk. Ein
af niðurstöðum netsins er að stjórnvöld þurfi að byggja upp
markvissa og góða færniþróunarstefnu, þar sem skapaður er
samhljómur milli námsstaða og menntakerfis og athygli er
beint að öllum geirum vinnumarkaðar:
Þekking og athygli stjórnmálamanna er misskipt á milli
mismunandi vinnumarkaða. Markviss og góð færnistefna
verður að koma á jafnræði á milli mismunandi vettvangs
náms og menntakerfanna sem eru fyrir hendi og til þess
verðum við að hafa jafn mikla þekkingu á öllum gerðum
vinnumarkaðar. (Kompetanse sett fra arbeidslivet, bls. 4)
Færniþróunarnetið hefur ekki hvað síst beint sjónum að
nauðsyn þess að atvinnulífið sjálft taki þátt í færniþróun,
meðal annars með því að geta greint og lýst hvaða færni þarf
og hvernig færniþróun er skipulögð fyrir þá sem eru í starfi
eða nýráðnir til starfa þannig að fyrirtækið hafi aðgang að
þeirri færni sem það þarfnast hverju sinni. Atvinnurekendur
og stjórnendur þurfa því í ríkari mæli að hafa færni til að
skapa aðstæður fyrir nám/færniþróun þannig að það sé fjár-
hagslega mögulegt fyrir fyrirtækið og starfsmenn hafi tæki-
færi til að taka þátt. Þar sem færniþróun kostar bæði tíma
og peninga skiptir máli að hún sé skipulögð á forsendum
fyrirtækjanna. Ekki er síður mikilvægt að hægt sé að meta
hvernig fjárfesting í færniþróun skapar fyrirtækinu verðmæti.
Í skýrslunni er fjallað um mikilvægi náms innan fyrir-