Gátt - 2016, Síða 25
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
25
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
A N D S TÆ Ð A R U M R Æ Ð U R U M
A N N A Ð H V O R T E Ð A
Við erum enn föst í neti eilífra umræðna um hvort nám á net-
inu sé betra eða verra en hefðbundin bekkjarkennsla, hvort
rafbækur séu betri en prentaðar bækur og þar fram eftir göt-
unum. Umræðurnar bera engan ávöxt, þvert á móti leiða þær
okkur dýpra í skotgrafirnar. Tony Bates kemur fram með betri
nálgun í ritröð sinni um nám á netinu, t.d. í Nám á netinu fyrir
byrjendur: 2. Er nám á netinu lakara en hefðbundin kennsla í
kennslustofu? Samanburðurinn er oftast ekki gerður á sam-
bærilegum grundvelli (þ.e. á sams konar námsmönnum með
álíka þarfir) og tekur sjaldnast mið af því að ólíkar aðferðir
henta ólíkum hópum námsmanna (ungum stúdentum í fullu
staðnámi og eldri námsmönnum í ævinámi). Eilífar umræður
um hve stór hluti lýkur náminu skauta algerlega fram hjá
þeirri staðreynd að námsmenn, sem stunda nám sitt í fjar-
námi, búa við kringumstæður sem eru afar ólíkar kringum-
stæðum stúdenta í fullu staðnámi sem ljúka yfirleitt námi
sínu óháð gæðum af þeirri einföldu ástæðu að til þess að
njóta áfram styrkja verða þeir að standast prófin. Yfirleitt er
leitað svara við röngum spurningum í samanburði af þessu
tagi, sbr. hér að neðan.
H E F Ð B U N D I N M E N N T U N S J Á L F -
G E F I N
Sönnunarbyrðin liggur í langflestum tilvikum á námi á netinu
en samtímis hafa fáir rannsakað hvort hefðbundnar aðferðir
virka raunverulega eins vel og við höldum. Eru aðstæður í
bekkjarkennslu alltaf þær sem best
henta opinni umræðu? Við vitum
hins vegar að þeir sem njóta þess
að vera í sviðsljósinu koma vel út í
umræðum og að þeim sem kjósa að
íhuga nánar svör sín líður illa í hópi og þeir leggja sjaldnast
neitt til málanna. Fyrirlesarar hafa leikið meginhlutverk í æðri
menntun um aldir en þýðir það að við lærum af þeim? Hvers
konar nám er metið í prófum? Ég myndi kjósa að hægt væri
að létta sönnunarbyrðinni og viðurkenna að við þurfum að
fella saman hefðbundnar kennsluaðferðir og nám á netinu til
þess að geta boðið upp á blæbrigðaríkari nálgun í menntun.
S P Y R J U M R A N G R A S P U R N I N G A
Sú staðreynd að við erum enn þá föst í sömu hjólförunum
eins og lýst er hér að ofan þýðir að við spyrjum alltaf rangra
spurninga. Málið snýst ekki um dreifingaraðferð, tæknilegan
vettvang eða gamalt á móti nýju heldur um að hanna nám
þannig að það höfði til sem flestra og geri þeim kleift að nýta
öll verkfæri, aðferðir og kennslufræði sem völ er á (þar með
taldar hinar hefðbundnu!). Enn og aftur býður Tony Bates
upp á að við einbeitum okkur að tveimur lykilspurningum:
Reyndar, ættum við að vera rannsaka breytileg skilyrði
fyrir árangri fremur en einungis afhendingu í gegnum tækni.
Með öðrum orðum þá ættum við að leita svara við spurning-
unni sem Wilbur Schramm varpaði fyrstur manna fram fyrir
margt löngu eða árið 1977:
Hvaða kringumstæður og hvaða ólíkir miðlar henta námi
best? Þegar kemur að því að taka ákvörðun um á hvaða
Alastair Creelman
ALASTAIR CREELMAN
N Á M Á N E T I N U – H V E R T S T E F N I R ?
Um mitt sumar fjarar undan fréttaflutningi mínum vegna þess að flestir í geiranum fara í
sumarfrí og ef til vill er þetta hentugur tími fyrir mig að staldra við og íhuga stöðu náms á
netinu um þessar mundir og geta mér til um þróunina fram undan. Ég hef starfað við nám
á netinu undanfarin tólf ár og þótt markverðar framfarir hafi átt sér stað á vissum sviðum
erum við samt föst í sömu hjólförunum og glímum við sömu hleypidóma og þegar við hófum
vegferðina árið 2004. Hér fyrir neðan er listi yfir endurtekin þemu í skrifum mínum sem
ég verð að viðurkenna að ég er orðinn frekar þreyttur á að fjalla um (þau eru ekki í neinni
ákveðinni röð).