Gátt - 2016, Side 28
stöðu manns á vinnumarkaði.
allir a
ð fara í það sem
hafa kost á því.
góð leið til
að komast ú
t og hitta
fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar se
m það er sta
tt o
g mæta þeim sem eru les-, e
ða talnablindir o
g eiga
Námskeiðið hefur sty
rkt mig persónulega í
Námskeiðið gjörbreytti m
ér og mínu lífi
, það gaf m
ér m
ikið
Sjálfssty
rking og samskipti er
stór þáttur í náminu og mjög
Gott a
ð hafa stu
ðning vinnustaðarins til
að sækja námskeiðið.
Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m
ér in
nsýn
í hvar mínir sty
rkleikar lig
gja og hvað ég þarf að gera til a
ð komast í
28
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
staklinganna og til að greina þörf fyrir þjálfun í grunnleikni.
Slík vinna skapar möguleika fyrir löndin að læra hvert af öðru
um leið og nýjar lausnir eru þróaðar og metnar.
Eftir stendur að hvert og eitt land hefur sína styrkleika og
veikleika í sínum kerfum en hvert og eitt land getur miðlað af
reynslu sinni varðandi þjálfun fullorðinna á sviði grunnleikni
og hvert og eitt land getur lært af reynslu hinna.
Á V I N N I N G U R I N N A F A Ð V I N N A Á
N O R R Æ N U M V E T T V A N G I O G S A M -
L E G Ð A R Á H R I F U M M E Ð V I N N U E S B
Þó svo að greinarmunur sé á kerfum landana eiga þau það
sameiginlegt að áhugi á ævimenntun er ríkjandi. Pólitískur
vilji til að auka hæfni fullorðinna með formlegu eða óform-
legu námi hefur verið til staðar í mörg ár, í stórum dráttum
óháð því hvaða flokkar eru við stjórnvölinn hverju sinni. Þessi
sameiginlegi skilningur gefur norrænu samstarfi á þessu
sviði aukið gildi.
Það má segja að Norðurlöndin hafi verið í fararbroddi
þegar kemur að þróun fullorðinsfræðslu í Evrópu. Vinnunni
í Evrópu hefur miðað áfram og framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins hefur tekist að koma á sameiginlegum skiln-
ingi á mikilvægi grunnleikni sem grunn að áframhaldandi
menntun. Þróunin er hins vegar mjög hæg vegna ólíkra pól-
itískra sjónarmiða. Framkvæmdastjórnin hefur engin völd til
annars en að leggja til aðgerðir og ný viðhorf. Vegna þess er í
tillögum og öðrum gögnum vinnuhópa á vegum Evrópusam-
bandsins mikið um málamiðlanir um hvernig á að nálgast
tiltekin viðfangsefni. Slík gögn eru mikilvæg og gagnleg fyrir
Norðurlöndin en þegar kemur að þróun fullorðinsfræðslu
þá eru tillögur um aðgerðir oftar en ekki komnar til fram-
kvæmda og litið á það sem sjálfsagðan hlut á Norðurlönd-
unum. Það er þó sífellt mikilvægara á komandi árum að efla
evrópskt samstarf en jafn mikilvægt er að við séum meðvituð
um samnorrænan skilning okkar á viðfangsefninu og hvaða
áskorunum við stöndum frammi fyrir. Norrænt net um grunn-
leikni getur stuðlað að því.
Með auknu samstarfi Norðurlandanna á þessu sviði
gætu þjóðirnar: a) skipst á reynslu og þannig stuðlað að
frekari þróun á eigin stefnu, b) aukið áhrif nýjunga á fram-
kvæmdarstigi og c) bætt skilvirkni ferla sem krefjast mikils,
svo sem eins og nýjar aðgerðir til að auka menntun kennara.
Norrænt samstarfsnet getur einnig stuðlað að því að
koma í framkvæmd markmiðum sem er lýst í samstarfs-
áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um menntamál og
rannsóknir sem gildir frá árinu 2015. Áætlunin heitir Gæði
og mikilvægi menntunar og rannsókna. Samstarfsnet um
grunnleikni gæti sérstaklega haft áhrif á fyrsta markmiðið,
þ.e.: „auka grunnfærni og þekkingu barna, ungmenna og
fullorðinna, drengja og stúlkna/kvenna og karla með því að
efla samstarf um þekkingu og greiningu á mikilvægum við-
fangsefnum á sviði menntunar fyrir aldurshópinn 0–18 ára
og fullorðinsfræðslu.“3
Á sama tíma er mikilvægt að netið nýti samlegðaráhrif
frá því starfi sem fer fram í Evrópu. Árlegir fundir neta NVL,
fulltrúa NVL í hverju landi og þeirra fulltrúa sem sitja í vinnu-
hóp um fullorðinsfræðslu á vegum Evrópusambandsins eru
mikilvægir í því að ná fram þessum samlegðaráhrifum.
EPALE-vefsamfélagið er stærsta nýjung Evrópusam-
bandsins á sviði fullorðinsfræðslu. Meginmarkmið þess er að
efla gæði fullorðinsfræðslu í Evrópu með því að efla sam-
skipti fagaðila.4 Slíkur vefur getur nýst mjög vel í starfi NVL
þar sem hann getur nýst til að gera vinnu NVL sýnilega bæði
á norrænum og evrópskum vettvangi. Í þessu samhengi er
3 Sjá alla áætlunina á http://norden.diva-portal.org/smash/get/
diva2:851823/FULLTEXT01.pdf
4 Sjá grein Margrétar Sverrisdóttur í Gátt 2015.
Grunnleggende ferdigheter hos voksne
i de nordiske land – felles utfordring,
ulike tilnærminger.
Forslag til videre samarbeid.
RAPPORT
FRA
Nordisk
arbeidsgruppe om
grunnleggende
ferdigheter