Gátt - 2016, Page 37
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
37
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
innar í því að nota liti í stað þess að ræða um þrep. Í samtali
við stjórnendur reyndist þessi útgáfa vel og auðveldaði sam-
tal um ábyrgð og möguleika til starfsþróunar.
F L O K K U N S TA R F A V I Ð K O R T L A G N -
I N G U
Störf sem komu fram við kortlagninguna voru fyrst flokkuð
í yfirflokka og síðan undirflokka. Yfirflokkarnir eru sex tals-
ins og sjálfstæð kort eru fyrir hvern þeirra. Þó að kortin séu
sex talsins þá er mikilvægt að skoða þau saman. Víða má
finna samræmi í uppbyggingu starfa og fagþekkingar sem
þarf til að sinna störfum. Þetta á sérstaklega við um annars
vegar grunnþekkingu (gestrisni, öryggi, þjónustu, menningu)
og hins vegar um störf fyrir millistjórnendur og stjórnendur
(mannauður, arðsemi, rekstur, markaður).
Kort er sett upp fyrir hvern yfirflokk sem greinist í undir-
flokka, sem aftur greinast í einstök störf. Heiti og fjöldi yfir-
og undirflokka tóku töluverðum breytingum í byrjum verk-
efnisins en eftir því sem viðtölum við stjórnendur fjölgaði
komst stöðugleiki á kortin. Endanlegt kort með yfir- og undir-
flokkum má sjá á mynd 3.
G R E I N I N G U N D I R F L O K K A – E I N -
S T Ö K S T Ö R F
Við greiningu á störfum var, eins og áður sagði, lagt upp með
að fá stutta lýsingu á starfinu, þar sem áhersla var lögð á
sjálfstæði og ábyrgð. Dæmi um slíkar lýsingar á einstökum
störfum má sjá hér að neðan og skýringar á litatáknum sem
koma fram á kortunum er að finna í mynd 2, hér framar í
greininni. Þegar störf höfðu verið tengd við flokka og síðan
greind út frá sjálfstæði og ábyrgð, komu víða fram greini-
legir möguleikar til starfsþróunar. Einnig komu fram mörg
sambærileg störf og er mögulegt að byggja upp fræðslu í
samræmi við það. Dæmi um slíkt eru framlínustörf í þjón-
ustu, móttaka á gististöðum, sala og ráðgjöf um ferðir og
afgreiðslustörf á bílaleigum. Annað dæmi eru stjórnunarstörf
sem fela í sér mannaforráð, skipulagningu og ábyrgð á upp-
lifun þeirra sem kaupa þjónustuna. Þessi störf koma víða
fram við kortlagninguna.
F R J Á L S L E G N O T K U N S TA R F S H E I TA
O G „ H É R G Ö N G U M V I Ð Í Ö L L
S T Ö R F “
Eitt af því sem lagt var upp með var að kortleggja starfsheiti
en það reyndist erfitt. Þar kom tvennt til, annars vegar það að
víða eru notuð sömu starfsheiti yfir margvísleg störf. Skýrustu
dæmin um þetta eru líklega starfsheitin verkefnastjóri og
fararstjóri. Mismikil ábyrgð og sjálfstæði fylgir þessum starfs-
heitum. Hins vegar er mikið um að notuð séu ensk starfsheiti,
(runner, agent, supervisor).
Þegar spurt var um störf í minni fyrirtækjum var gjarnan
svarað því til að þar gangi starfsmenn í öll störf. Starfsmenn
eru fáir og sérhæfing er ekki valkostur. Til þess að fá skýr-
ari mynd af þessum störfum voru stjórnendur beðnir um að
nálgast þessi störf með því að hugsa þau sem hlutastörf. Það
gafst vel.
Niðurstaðan varð því sú að í stað þess að leggja áherslu
á starfsheiti færðist áherslan yfir á stutta lýsingu á starfi, með
áherslu á sjálfstæði og ábyrgð.
V Í S B E N D I N G A R F E N G N A R F R Á
S A M T Ö L U M O G K O R T L A G N I N G U
Í heimsóknum á vinnustaði komu fram ýmsar ábendingar
um ferðaþjónustuna sem starfsgrein. Þessar ábendingar voru
Mynd 3. Yfir- og undirflokkar starfa í ferðaþjónustu
Þjónusta
Skyndibiti
Hótel og ráðstefnur
Hópferðabílar
Bílaleigur
Smærri bílar
Farþegar
Farangur og þjónusta
Öryggi og flugvöllur
Ferðahönnun
Markaðssetning
Skipulag og útfærsla
Sala ferða
Framkvæmd ferða
Veitingar
Fólksflutningar
Flugstarfsemi á jörðu
Ferðir og afþreying
GististaðirHótel
Hostel
Ráðstefnur og viðburðir Ferðaþjónusta