Gátt - 2016, Side 39
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
39
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
og verði eftirsótt hjá nýjum og núverandi starfsmönnum
í ferðaþjónustu og viðurkennt starfsnám í ferðaþjónustu.
Samspil hæfni og arðsemi.
• Markmið: Vaxandi tekjur af ferðaþjónustu, aukin fram-
leiðni og aukin arðsemi. Ferðaþjónustan verði eftirsóttur
starfsvettvangur ánægðra starfsmanna og stöðugleika í
starfsmannahaldi. Ímynd greinarinnar mælist jákvæð og
fyrirtækin upplifi samstöðu og geti sótt sér leiðbeiningar
og aðstoð á aðgengilegan hátt. Þeim fyrirtækjum í ferða-
þjónustu fjölgi sem njóta gæðaviðurkenningar og/eða
eru í Vakanum.
Í skýrslunni eru síðan lagðar til leiðir til þess að ná þessum
markmiðum. Skýrslan hefur verið birt og kynnt á vegum
Stjórnstöðvar ferðamála en ákvörðun hefur ekki verið tekin
um hvort unnið verður eftir þeim tillögum sem þar koma
fram.
L O K A O R Ð
Kortlagning starfa er aðferð sem mun nýtast við ákvarðana-
töku og stefnumótun eins og lagt var upp með. Fullyrða má
að byrjunin lofi góðu. Þar sem niðurstaðan hefur verið kynnt
eru viðbrögð góð, bæði á vettvangi Stjórnstöðvar ferðamála,
starfsgreinaráðs matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina,
hjá fræðsluaðilum og í atvinnulífinu. Kortlagningin hefur
þegar nýst til stefnumótunar, eins og áður hefur komið fram.
Ekki er samræmi í framboði og eftirspurn eftir námi í ferða-
þjónustu og því er mikilvægt að hefja hæfnigreiningar á þeim
fjölda starfa sem í boði eru, enda er ferðaþjónusta á Íslandi
orðin gríðarlega víðfeðm atvinnugrein. Hæfnigreiningar með
aðkomu atvinnulífsins og á forsendum þess munu auðvelda
hönnun á viðurkenndu þrepaskiptu starfsnámi. Jafnframt
getur kortlagningin auðveldað greininni að draga fram tæki-
færi til starfsþróunar og auðveldað og ýtt undir raunfærni-
mat.
En auðvitað er kortlagning, eins og öll mannanna verk,
einungis góð hugmynd sem er einskis virði ef hún kemst ekki
í framkvæmd.
U M H Ö F U N D A N A
María Guðmundsdóttir er upplýsinga- og fræðslufulltrúi
hjá Samtökum ferðaþjónustunnar og sinnir verkefnum er
snúa að uppbygginu náms, símenntun og fræðslu fullorðinna
innan ferðaþjónustunnar. María situr í stjórn Fræðslumið-
stöðvar atvinnulífsins.
Haukur Harðarson er sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins.
Þegar ábendingar úr samtölum og niðurstöður kortlagningar eru lesnar saman kemur eftir-
farandi fram:
Flokkun starfa eftir litum Það sem kallað er eftir:
Þjónusta, gestrisni, menning og öryggi – grunnur
Starfsnám sem lýkur með réttindum
Starfsfólk sem hefur getu til að halda utan um og ljúka verkum – verkefna- og verkstjórn
Stjórnun með áherslu á rekstur, arðsemi og markaðsmál – stefnumótun og innleiðing