Gátt - 2016, Page 41
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
41
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
Facebooksíðu fyrir sjómenn og loks á greinum í Sóknarfæri
og öðrum miðlum.
M A R K M I Ð
Markmiðið með verkefninu Sjósókn var að starfandi sjómenn
fengju reynslu sína og þekkingu formlega metna til náms,
sem veitti þeim aðgengi að frekara námi samhliða starfi.
Einnig var markmiðið að sjómenn fengju upplýsingar um
ýmiskonar námsleiðir ásamt aðstoð við leiðarval sem gætu
stuðlað að því að þeir yrðu hæfari og öflugri starfsmenn. Til
að nálgast þessi markmið var boðið upp á raunfærnimat í
ýmsum greinum, svo sem iðngreinum, skipstjórn, starfsnámi
fyrir til dæmis matartækna og matsveina, fiskveiðum, fiskeldi
og fiskvinnslu og í almennum bóklegum greinum, svo sem
dönsku, íslensku, ensku og stærðfræði.
S K I P U L A G O G F R A M K V Æ M D Í
S Í M E Y – S Ý N V E R K E F N A S T J Ó R A N S
Mikilvægt er að hafa tengilið við alla aðila. Anna María Krist-
insdóttir starfsmannastjóri Samherja var tengiliður SÍMEY.
Aðgengi að sjómönnum var gott á svæðinu og haldnar voru
um sjö kynningar á vegum SÍMEY, á Akureyri og á Dalvík.
Sjómenn Samherja fengu send smáskilaboð reglulega, skip-
stjórar hvöttu þá til þátttöku og Sjósóknarbæklingur fór um
borð í skipin. Alls komu um 70 sjómenn á vegum Samherja á
kynningar hjá SÍMEY sem gengu vonum framar. Um 55 sjó-
menn skráðu sig í raunfærnimat og alls 44 þeirra luku raun-
færnimatsferlinu.
Mikilvægt þótti að koma til móts við þarfir sjómannanna
þegar kom að skipulagningu og framkvæmd á raunfærni-
mati. Matið var sniðið að þörfum hvers og eins. Sumir þátt-
takenda fengu færnimöppu og gátlista senda í tölvupósti,
aðrir unnu færnimöppu og gátlista hjá SÍMEY. Þegar kom að
því að meta raunfærni einstaklinganna voru sumir staddir úti
á sjó og var í þeim tilvikum notast við SKYPE myndsímtöl.
Einnig fóru viðtöl fram á Akureyri. Náms- og starfsráðgjafi
var viðstaddur í öllum raunfærnimatsviðtölunum. Hjá SÍMEY
fóru sextán sjómenn í raunfærnimat í fiskveiðum, tíu í fisk-
vinnslu, sex í matartækni/sjókokk, fjórir í skipstjórn, sjö í
netagerð og fjórir í vélstjórn.
Á meðan á raunfærnimatsferlinu stóð var unnið að því
að þróa nám fyrir sjómenn.
Námskrá Menntastoða varð fyrir valinu til að aðlaga
námið að starfsumhverfi sjómanna. Við fengum til liðs við
okkur kennara víðsvegar af landinu og var markmiðið að
námið tæki mið af starfsumhverfi sjómanna, vaktavinnu,
fjarveru og mismunandi námshraða. Námsgögn og verkefni
voru sett á rafrænt formi til að sjómenn gætu nálgast þau í
gegnum kennsluumhverfið Moodle.
Kennslan byggðist að mestu á upptökum og kennslu-
myndböndum. Sjómenn gátu tekið námsgögnin með sér á
minniskubbi þar sem netsamband er ótryggt úti á hafi.
Alls skráðu sig um 30 sjómenn í Menntastoðir. Námið
tekur fjórar annir og lýkur vorið 2017.
S J Ó S Ó K N Á L A N D S V Í S U
Alls fóru 150 sjómenn í raunfærnimat. Misjafnlega gekk hjá
símenntunarmiðstöðvunum að nálgast sjómennina. Til að vel
takist til þarf að vera gott samstarf við sjávarútvegsfyrirtækin
og þau þurfa að veita greiðan aðgang að starfsmönnum
sínum. Hvati frá stjórnendum skiptir máli þegar kemur að sí-
og endurmenntun starfsmanna en hún leiðir af sér hæfari og
öflugri starfsmenn.
Í L O K I N
Sjósóknarverkefnið gekk vonum framar og er mikilvægt að
halda því á lofti innan sjávarútvegarins sem leið til aukinnar
menntunar sjómanna á Íslandi. Sjósóknarverkefnið hefur yfir-
Skimun Færnimappa Færnimappa Færnimappa Fæ nimappa
Metið hvort þú átt
erindi í raunfærnimat.
Þín reynsla, starfs- og
lífaldur.
Þú fyllir út með aðstoð
ráðgjafa yfirlit yfir störf,
nám og aðra reynslu
sem nýtist þér.
Þú metur með aðstoð
fagmanna hvar þú
stendur og móti við-
miðum úr námsskrá.
Þú hittir matsaðila sem
leggja mat á færni og
þekkingu þína. Oftast
í samtali en þú gætir
líka þurft að sýna hana.
Upplýsingar hvað þú
hefur staðist, hvað ekki
og ráðgjöf um hvernig
þú gætir lokið námi.
Ferli í raunfærnimati