Gátt - 2016, Qupperneq 44

Gátt - 2016, Qupperneq 44
stöðu manns á vinnumarkaði. allir a ð fara í það sem hafa kost á því. góð leið til að komast ú t og hitta fólk. Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki þar se m það er sta tt o g mæta þeim sem eru les-, e ða talnablindir o g eiga Námskeiðið hefur sty rkt mig persónulega í Námskeiðið gjörbreytti m ér og mínu lífi , það gaf m ér m ikið Sjálfssty rking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög Gott a ð hafa stu ðning vinnustaðarins til að sækja námskeiðið. Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m ér in nsýn í hvar mínir sty rkleikar lig gja og hvað ég þarf að gera til a ð komast í 44 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6 Með því er átt við hverjar séu námslegar þarfir einstaklings- ins, hvaða kröfur samfélagið geri til menntunar og hverjar séu faglegar kröfur námsgreinarinnar (Tyler, 1949). Við gerð Landnemaskólans II var þetta haft til hliðsjónar. Aðrir kennismiðir, til dæmis Walker, telja lýsandi nálgun eiga betur við námskrárgerð eða það sem fólk í raun gerir út frá eigin gildum og skoðunum. Walker fjallar um þrjú stig í námskrárgerð, þ.e. útgöngustað, ígrundun og hönnun (Walker, 1971). Í listrænni nálgun Eisners við námskrárgerð er gert ráð fyrir því að raunveruleikinn sé margþættur og fólk skilji hlut- ina á mismunandi hátt. Þess vegna má líkja þeim sem fást við námskrárgerð við listamann sem velur hvernig hann kemur sköpun sinni til skila. Eisner telur að markmið eigi ekki endi- lega að vera skýr og þau megi jafnvel setja eftir að kennsla sé hafin. Hann vill að tekið sé tillit til áhuga nemenda og þess hvers konar menntunar samfélagið þarfnast (Eisner, 1979). Í fullorðinsfræðslu skipta einmitt hagnýt atriði í námi mestu fyrir einstaklinginn. Námskrár sem eru skrifaðar fyrir fullorðna námsmenn verða að hafa sveigjanleika til að mæta þörfum þeirra, annars eru litlar líkur á að þær skili tilætluðum árangri. Í upphafi gerðar Landnemaskólans II var gerð þarfagrein- ing og mið tekið af óskum og þörfum innflytjenda. Nemendur á fyrsta námskeiðinu höfðu tækifæri til að hafa áhrif á nám- skrána. Þrátt fyrir að stuðst hafi verið við viðmið FA um nám- skrárgerð voru hugmyndir óljósar um hvaða þekkingu væri þess virði að kenna. Engar opinberar reglugerðir eða stefna var til að styðjast við um fræðslumál innflytjenda og niður- staða þarfagreiningarinnar var bundin við innflytjendur á Vesturlandi. 2. Hvernig hentar Landnemaskólinn II til kennslu fullorðinna? Fullorðnir læra best þegar þeir eru tilbúnir til þess en síður ef þeir sjá ekki ástæðu til þess að læra. Hvati til náms er meðal annars viðleitni til að bæta eigin frammistöðu. Landnema- skólinn II er ætlaður innflytjendum sem hafa búið á Íslandi einhvern tíma og eru líklega fremur tilbúnir til náms en þeir sem eru nýkomnir til landsins, þeir átta sig á hvaða þekk- ingu og upplýsingar þá vanhagar um. Þrjú lögmál Thorndikes (1928) um hvatningu til náms; um áhrif, endurtekningu og það að vera reiðubúinn, geta átt við um Landnemaskólann II, sérstaklega það síðastnefnda (Thorndike, Bregman, Tilton, og Woodyard, 1928). Í samanburði við fullyrðingar Knowles (1998) um fræðslu fullorðinna má segja að gagnsemi Land- nemaskólans II ætti að vera skýr því námsgreinarnar byggja á óskum og þörfum innflytjenda sjálfra. Námið byggir á þeirra forsendum, þ.e. á reynslu þeirra sem innflytjenda, og framboð helst í hendur við fjölda innflytjenda og aukna þörf fyrir nám. Það tengist raunverulegum aðstæðum og byggist á þarfa- greiningu. Í forsendum Landnemaskólans II sem og í öðrum námskrám FA, er tíundað hvernig kennsluaðferðir skuli sníða við hæfi fullorðinna námsmanna. Það sem tíundað er í nám- skránni byggir á fræðilegum forsendum í fullorðinsfræðslu. Í tilraunakennslu á námskránni komu vel í ljós fjölbreytileg einkenni fullorðinna námsmanna sem stunduðu nám á eigin forsendum. Af því var sú ályktun dregin að Landnemaskólinn II henti til kennslu fullorðinna innflytjenda, enda hefur ekki annað komið á daginn. 3. Fjölmenningarlegar áherslur í Landnemaskólanum II. Námskráin byggir á þeirri hugmynd að fræðsla fyrir innflytj- endur sé mikilvæg fyrir gagnkvæma aðlögun í samfélaginu og að menntun sé ein leið til þess að sameina fólk af ólíkum uppruna og til að auðvelda samskipti. Hún er viðleitni til þess að bjóða upp á hagnýtt nám til þess að auðvelda inn- flytjendum að taka þátt í samfélaginu á Íslandi. Samkvæmt Crowder getur fjölmenningarleg menntun ýtt undir jöfnuð og félagslegt réttlæti (Crowder, 2013). Landnemaskólinn II er tækifæri til menntunar, hún er opinber og getur nýst til grundvallar við samfélagslegar breytingar og/eða aðlögun. Sýnileiki námskeiða og námskráa sem sniðin eru að inn- flytjendum, eins og Landnemaskólinn II er, getur nýst við að auka þekkingu starfsfólks fræðslumiðstöðva og í menntunar- geiranum á fjölmenningarlegum málefnum. Guðrún Péturs-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Gátt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.