Gátt - 2016, Síða 52
stöðu manns á vinnumarkaði.
allir a
ð fara í það sem
hafa kost á því.
góð leið til
að komast ú
t og hitta
fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar se
m það er sta
tt o
g mæta þeim sem eru les-, e
ða talnablindir o
g eiga
Námskeiðið hefur sty
rkt mig persónulega í
Námskeiðið gjörbreytti m
ér og mínu lífi
, það gaf m
ér m
ikið
Sjálfssty
rking og samskipti er
stór þáttur í náminu og mjög
Gott a
ð hafa stu
ðning vinnustaðarins til
að sækja námskeiðið.
Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m
ér in
nsýn
í hvar mínir sty
rkleikar lig
gja og hvað ég þarf að gera til a
ð komast í
52
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
M A N N A U Ð U R I N N E R O K K A R
M E S T U V E R Ð M Æ T I
Þessi orð eru oft látin falla á tyllidögum en sjaldnar er rætt
um hvernig gengur með efndir. Í rannsóknum þar sem staða
okkar er borin saman við nágrannalöndin eins og í Cranet
(2011), McKinsey skýrslunni margumræddu (2012) og nýlegu
meistaraverkefni Mannauðsstjórnun í íslenskum fyrirtækjum
(2016), kemur skýrt fram að margt má betur fara. En hvað
er til ráða? Er þetta verkefni mannauðsstjórans á vinnu-
staðnum, háskólanna, sí- og endurmenntunaraðila, starfs-
mannsins eða einhvers annars? Verkefnið, eða ferðalagið, um
eflingu mannauðsins er samstarfsverkefni sem allir þurfa að
koma að. Gera þarf hagnýta þekkingu og fræðslu aðgengi-
lega sem styður við það að fögur orð komist til framkvæmdar.
U P P LÝ S I N G ATÆ K N I N Í S T J Ó R N U N
O G F R Æ Ð S L U
Þekking er því verðmætari sem hún er aðgengilegri og nýting
upplýsingatækninnar er mikilvæg í því sambandi. Stjórn-
endur og starfsmenn þurfa að hafa aðgang að verkfærakistu
hagnýtrar þekkingar og fræðslu sem þeir geta nýtt þá og
þegar þeim hentar til að efla hæfni sína og gæði í faglegri
stjórnun, starfsframa og starfsþróun.
„Gúglaðu það bara“, heyrist oft en reynslan af því að
gera það getur verið eins og að fá sér vatnssopa úr bruna-
hana. Í faglegri fullorðinsfræðslu og stjórnun þarf að treysta
áreiðanleika upplýsinganna, fá góð viðmið um faglega
stjórnun og greina kjarnann frá hisminu. Notandi fræðsl-
unnar þarf að fá markvissar leiðbeiningar í gegnum frumskóg
þekkingar. Hann þarf að geta skannað, fundið og nýtt rétta
þekkingu til að efla persónulega og faglega hæfni í þágu
vinnustaðarins og samfélagsins. Með samstarfi og nýtingu
upplýsingatækninnar má segja www hafi fengið merkinguna
„Win-Win-Win“.
K O M PÁ S Þ E K K I N G A R S A M F É L A G I Ð
Með KOMPÁS Þekkingarsamfélaginu hefur verið byggður
upp samstarfsvettvangur fyrirtækja, stofnana, háskóla,
fræðsluaðila, stéttarfélaga, sérfræðinga og fleiri um miðlun
hagnýtrar þekkingar, eins og verkferla, eyðublaða, gátlista,
vinnulýsinga, leiðbeininga, reiknivéla og myndbanda, ásamt
vísunar á ýmsa fræðslu og þekkingu. KOMPÁS Mannauður
varð til út frá starfsþróun, símenntun og endurmenntun sem
kjarninn í eflingu mannauðs og faglegrar stjórnunar. Með
KOMPÁS er starfsþróunin tengd með þverfaglegum hætti við
önnur fræði, fræðslu og þekkingu, til dæmis líðan á vinnu-
stað, öryggismál, árangursmælikvarða, verkefnastjórnun,
stefnumótun og svo margt fleira. Samstarfið og þekkingin er
birt á www.kompás.is
BJÖRGVIN F IL IPPUSSON
M A N N A U Ð U R I N N E R O K K A R M E S T U V E R Ð M Æ T I
KOMPÁS er einstakt þekkingarsamfélag á vefnum þar sem miðlað er hagnýtri þekkingu í
þeim tilgangi að efla faglega stjórnun og styrkja starfsþróun innan fyrirtækja og í sam-
félaginu. Áhersla er lögð á mannauðinn, þróun hans með ævinámi, nýjum tækifærum og
nýsköpun. Markmiðið er að auðvelda aðgengi að þekkingu og spara tíma við leit að upp-
lýsingum og kunnáttu, einskonar sérhæfð leitarvél. KOMPÁS býður upp á verkfærakistu
og upplýsingar fyrir stjórnendur og starfsmenn, sem auðveldar stjórnendum að iðka það
sem þeir boða, að koma verkefnum áfram, bæta stjórnun, beita hagnýtum viðmiðum, auka
afköst, spara peninga og loks að auka virði fyrirtækisins og mannauðsins. KOMPÁS veitir
aðgengi að fyrirmyndarverkfærum til þess að efla stjórnendur, auka gæði, hvetja til þver-
faglegs samstarfs og ævináms. KOMPÁS er þekkingarsamfélag og notendur geta komið með
ábendingar um það og þannig lagt sitt af mörkum við sífelldar umbætur á því.
Björgvin Filippusson