Gátt - 2016, Side 59
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
59
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
bílamálun og réttingar, vinna við rafmagn og viðgerðir á
flutningagámum ásamt rekstri mötuneytis og ræstingar.
F Y R S TA S TA R F S Þ J Á L F U N A R V E R K -
E F N I Ð
Í kjölfar bankahrunsins árið 2008 fjölgaði mjög atvinnu-
leitendum af erlendum uppruna sem voru á atvinnuleysis-
skrá. Þörfin fyrir „eitthvað meira en íslensku“ var brýn. Í kjöl-
farið voru hjá Mími-símenntun þróuð nokkur námskeið sem
áttu að efla íslenskukunnáttu þátttakenda, almenna virkni
og menntun á sérstökum sviðum. Námskeiðin, sem voru 100
kennslustundir hvort, nefndust Íslenska og tölvur og Íslenska
og útivist og voru fjölmargir hópar sem tóku þátt í námskeið-
unum á árunum 2009–2011.
Árið 2012 fengu Mímir-símenntun og Efling-stéttarfélag
styrk frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu fyrir verk-
efnið Íspól. Hugmyndin var að hluta til byggð á verkefninu
Yrkja sem Mímir og Efling hlutu Evrópumerkið fyrir árið 2011.
Í Íspól var þungamiðjan íslenskukennsla en námsgreinar þó
afar fjölbreyttar eins og sjálfsstyrking, upplýsingatækni, fjár-
mál, starfsleit, enska, samfélagsfræði, ásamt hreyfingu og
útivist. Gulrótin var síðan starfsþjálfun á vinnustað. Mark-
hópurinn var atvinnulausir Pólverjar sem voru félagsmenn
Eflingar. Þátttakendur voru ungt fólk á aldrinum 20–40 ára.
Nemendur héldu dagbók á meðan á námi og starfsþjálfun
stóð og í lok verkefnisins var farið yfir sameiginlega reynslu
þátttakenda af vinnunni og náminu. Í framhaldi stóð öllum
til boða viðtal við náms- og starfsráðgjafa Mímis. Starfs-
þjálfunin eða kynningin varði í eina viku. Mikil vinna var lögð
í að finna vinnustaði í samræmi við áhugasvið eða menntun
nemendanna enda var úrval vinnustaða fjölbreytt í þessum
fyrsta hópi. Má þar til dæmis nefna að búningadeild Borgar-
leikhússins, bensínstöð, vöruhús og leikskólar tóku við nem-
endum í starfsþjálfun. Verkefnastjóri verkefnisins lýsti því svo
að morguninn sem hún var á leiðinni í vinnunna hefði verið
einstaklega góð tilfinning að hún vissi að allir nemendurnir
væru líka að fara á vinnustað, kannski í fyrsta skipti í nokkur
ár.
Árangur þessa verkefnis var góður. Allir nemendur luku
tímabilinu á vinnustaðnum og fengu góð meðmæli og
nokkrir fengu vinnu í kjölfarið. Reynslan sýndi að þetta var
hægt, að það var þörf fyrir verkefni af þessu tagi og að þau
buðu upp á mikla möguleika til þróunar og nýsköpunar.
Efnahagskreppan í heiminum á þessum árum jók á
þörfina fyrir að þróa nám fyrir innflytjendur sem hefði það
að markmiði að samþætta tungumálaþjálfun og tengsl við
vinnumarkaðinn. Starfsmenn Mímis hafa aflað sér þekkingar
um slík verkefni bæði á Norðurlöndunum og í fyrrgreindu
Leonardo verkefni í Belgíu.
Á F R A M S K A L H A L D I Ð
Í framhaldi af góðum árangri af Íspól-verkefninu var ákveðið
að bjóða Vinnumálastofnun námsleiðirnar Landnemaskóla
1 og 2 auk starfsþjálfunar í tvær vikur. Á þessum tíma var
atvinnuleysi meðal innflytjenda enn viðvarandi og töluverður
hópur hafði verið atvinnulaus í langan tíma. Þessi nýbreytni
mæltist vel fyrir. Þrír stórir hópar hófu námið og voru jafnt
karlar og konur í hópi þátttakenda. Námsgreinar í Land-
nemaskólanum eru íslenska, samfélagsfræðsla, sjálfsstyrking
og þjálfun í notkun tölva. Leitað var til Reykjavíkurborgar
Íslenskuþorpsaðferðin – ferlið: Nemendur, íslenskunámið og vinnustaðurinn.