Heima er bezt - 01.11.2005, Síða 16
að sjá um. Þar ríkir gott skipulag og
góður andi meðal íbúanna. Heimilinu
er skipt upp í nokkur íbúasvæði, sem
einkennd eru með mismunandi litum
á húsunum og bömin eru í fatnaði í
sama lit og húsin. Skólastarfið er
Qölbreytt og mikill metnaður lagður í
kennsluna, með þaó í huga að menntun
er undirstaða velferðar einstaklingsins
og þjóðar hans. I fréttabréfi ABC er
sagt frá því að bamaskólinn sé í ágætu
húsnæði en unglingaskólinn er í lakara
húsnæði, en það stendur til bóta.
Það er ótrúlegt hvað hjálparstarfíð
hefur áorkað. í huga þess sem greinina
ritar, hefur hjálparstaf alltaf miðast við
að fæði, klæði og lyf fyrir öreiga.
ABC barnahjálp sér fyrir meim,
þannig að eftir unglingaskóla geta þeir
sem eiga stuðningsforeldri á íslandi,
farið í framhaldsskóla og búið sig
undir starf. Á Heimili litlu ljósanna
geta nemendur valið um að fara í
menntaskóla eða verkmenntaskóla.
I verkmenntaskólanum er stundað
nám í hjúkrun, meinatækni, hótel-
og veitingarekstri, fatahönnun,
bifvélavirkjun og svo má lengi
telja. Nemendur velja sér braut eftir
áhugasviði í menntaskólanum, sem
er undirbúningur fyrir háskólanám.
Núna á þessu ári útskrifast fyrstu
nemendurnir með BA, BSc og BCom
gráðu úr háskólanum. I þorpinu er
menntaskólinn og háskólinn í sömu
byggingu. Einnig er starfræktur
ökuskóli.
Matsalur eldri stúlkna við verkmenntaskólann á Heimili litlu Ijósanna.
Drengir komnir saman Jyrir myndatöku og skráningu.
Hvað verður svo um þessi börn.
sem em alin upp í litlu skólaþorpi
og eiga enga að utan þorpsins,
nema stuðningsforeldra norður við
heimskautsbaug? Samuel Motupalli
forstöðumaður og allt það góða fólk
sem með honum starfar, hefur hugsað
fyrir því. Stefnt er að því að setja upp
bifvélaverkstæði á staðnum og ýmsir
möguleikar hafa opnast t.d. við kennslu
og ýmis konar störf. Víða í þorpunum á
Indlandi em yfirgefnar trúboðsstöðvar.
Nú er meiningin að þangað fari þetta
unga fólk og komi þar undir sig
fótunum, t.d með kennslu. Það verður
spennandi að fylgjast með þessu öllu
og sjá unga fólkiö vinna landi sínu og
þjóð, gagn. Á Heimili litlu ljósanna
Anœgður ogglaður drengur í Úganda, sem á atlæti sitt stuðningsforeldrum frá
Islandi að þakka.
448 Heima er bezt