Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Page 19

Heima er bezt - 01.11.2005, Page 19
Aftari röð: Auðurin og Fred Netidere. Fremri röð: Elín, móðir Auðuns, og Þóra. Myndin er tekin í janúar 1946. hann ferðaðist á til Reykjavíkur. Við vorum þar með viðskila við sjálfan húsföðurinn, og urðum að bjarga okkur sem best gegndi. Héldum að Björnólfsstöðum, skammt frá verslunarstað Austur-Húnvetninga. Þar skyldi Þóra Kristin, systir mín, dvelja næsta vetur. Þar var dvalist nokkra daga. Þá bjó þar Bjami Gestsson (f. 1903). Hann var ókvæntur þá, en hafði ráðskonu, Guðlaugu að nafni. Átti hún soninn, Elliða G. Norðdahl, á aldur við mig. Á bænum var þá heimilisfastur faðir húsbóndans, Gestur Guömundsson að nafni, aldraður. Hann sat löngum, tuggði tóbak og hrækti í stóran dall við fætur sér, og var fremur viðskotaillur, fannst mér. Las stanslaust bækur, helst skáldsögur. Á bænum var öldruð móðursystir Bjarna húsbónda, Steinvör Bjarnadóttir að nafni (fædd 1872). Hún var mjög skjálfrödduð, það man ég. Bjó hún ein í þakherbergi til austurs. Húsakynni voru góð á bænum og ratVnagnsljós alls staðar, en raflýst var frá heimarafstöð úr læk skammt suður og upp frá bænum. Hús þetta hafði byggt Björn Leví, bróðir Bjarna bónda. Hann hafði séð um að raflýst væri á tveimur öðrum bæjum í Langadal, Miðgili og Fremstagili. Björn var mikill framkvæmdamaður og duglegur að hverju því verki, sem hann tók að sér. Þá voru ekki víða samkomuhús í sveitum landsins og voru skemmtanir tíðum haldnar á bæjum, þar sem húsakynni voru í betra og rýmra lagi. Meðan við dvöldum á Bjömólfsstöðum var ball haldið á bænum, sem margir úr sveitinni sóttu. Eg svaf víst ekki mikið nóttina þá eða systir mín. Fannst mér hávaðinn keyra úr öllu hófi. Drukkið var fast og mikið reykt. Bar húsið merki þessa marga daga á eftir. Fólk svældi, einkum karlmenn, aðallega vindlinga, sem þeijuðu mjög sterkt og illa og voru víst tyrkneskir, “de resk” (framburður). Konur reyktu ekki almennt enn. Einn maður lét sér í lagi illa á skemmtun þessari. Læsti hann sig inni á salemi, ásamt kvenmanni, og vita menn ekki, hvað þar muni hafa gerst. Allt íbúðarhúsið var í raun undirlagt. Guðlaug og móðir mín, Elín Guðmundsdóttir, vom um stund á ballinu. Guðlaug var snotur stúlka, enda orti faðir minn um hana: Gullið kvenna Guðlaug var; græt ég enn í leyni, af því hennar ástin var öll úr brennisteini. Elliði var, eins og fyrr segir, sonur Guðlaugar ráðskonu. Hafði hún átt þennan son með Vali Norðdahl frá Elliðakoti við Reykjavík, en hann var um skeið svonefndur töframaður og sýndi listir sínar víða hér og erlendis. Elliði var ljörugur strákur. Við lékum okkur þó ekki mikið saman, því við vorum mjög ólíkir. Hann borgarbarn, en ég úr afdal. Ef rafstöð heimilisins var eitthvað í ólagi, eins og vegna krapa, er olli trutlun í vatnshverflinum, fór Elliði upp eftir og lagfærði allt saman. Fór ég að minnsta kosti eina slíka för með Elliða og hafði gaman og lærdóm af. Elliði var tæknilega sinnaður, enda mun hann hafa fengist við tæknistörf og átt hlut að einhverjum uppfinningum. Hann átti reiðhjól og Heima er bezt 451

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.