Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 22
aðalmarkmiðið með starfi þeirra að krakkamir vendust ekki á nautn áfengis og tóbaks, temdu sér ekki ljótt orðbragð og spiluðu ekki upp á peninga. En því miður gleymdu víst margir þessu, þegar út í lífið var komið. En söm var gjörð stúkunnar fyrir það. Einhvers staðar fékk ég lánaðan sparksleða, og þaut nú eftir svelluðum götum bæjarins á honum. Vera má, að það hafi verið í húsinu hjá henni Sigríði Önundardóttur á Skagfirðingabrautinni, sem faðir minn átti „stóm krakkana“ með, þau Maríu og Þórarin. Við komum til þeirra að sjálfsögðu, og við systkinin nokkrum sinnum síðar, er við áttum heima á Refsstöðum, og gengum norður fjöllin til Sauðárkróks um hásumarið. Mér fannst afar spennandi að þjóta um snævi- eða ísiþaktar göturnar á þessu farartæki, sem ég hafði aldrei fyrr augum litið. Svona farartæki, eða hvað það nú var, fyrirfannst ekki á Laxárdal. Þar vom tunnustafir og hrossleggir í stað skíða og skauta. En nú var komið skip til Sauðárkróks, og með því var ætlunin að sigla til Haganesvíkur, þó að ekki væri þar bryggju fyrir að fara. Þá var bara skotið fram báti úr landi til að nálgast farþega og vömr. Dýrðardögunum á Króknum var að Ijúka. Skipið var Súóin, að mig minnir, eitt af skipum Skipaútgerðar ríkisins. Stigum við nú um borð. Allt var rólegt fyrst um sinn, en brátt tók veðrið að versna. Þegar komið var alllangt út í Skagaíjörðinn, varð alveg bandvitlaust veður. Skipið valt mjög, enda var þetta ekkert risaskip. Móðir mín varð mjög sjóveik og ég einnig. Við höfðum víst aldrei komið út á sjó fyrr, en haldið okkur á fastalandinu. Móðir mín spurði skipstjórann, hvort skipið mundi hafa þetta af. Hann sagði að þetta væri ekki mikið, og hefði hann oft séð hann svartari en þetta. Við þyrftum sem sagt engu að kvíða. Veðrið hélt áfram hrikaleik sínum í svarta myrkri skammdegisins. Þetta var engan veginn glæsilegt. Sjóveikin er einhver sá versti sjúkdómur sem hugast getur; hún tekur Sveinn frá Elivogum. Elín Guðmundsdóttir, eiginkona Sveins frá Elivogum. alla lífslöngun og gleði frá fólkinu. Og við vorum þar engin undantekning. Loks staðnæmdist skipið. Það var komið til Siglufjarðar. Hafði ekki getað komið við í Haganesvík, farið fram hjá eins og staðurinn væri ekki til. Sigluijörður bauð upp á góða höfn, sem hægt var að leggja að hvenær sem með þurfti. Mikið hafði snjóað í hríð þessari, og enn var hríðargarg, þegar við skreiddumst upp úr skipinu, vansvefta, þreytt og illa til reika. Er ég leit staðinn fyrst augum, fannst mér hann minna mig mjög á rústir, svo ömurlegur var hann. Allt var hreint og beint á kafi í snjó. Hafði ég oft séð drjúga fönn á dalnum mínum, en ekkert líkt þessum ósköpum. Aðeins gaflar húsa og reykháfar sáust upp úr fannadyngjunni. Bót var í máli, að við vorum að nálgast vini. Við móðir mín héldum til Árna Kristjánssonar frá Lambanesi og Guðbjargar Kristinsdóttur, konu hans. Hjá þeim var í vist, eins og það var nefnt, eða við heimilisstörf, systir mömmu, Ingibjörg að nafni. Hún var fædd 1899, og því 35 ára, þegar þetta var. Hún dó 1936 úr krabbameini, ógift og bamlaus. Arni var umboðsmaður hjá Olíu- félaginu SHELL á staðnum, sem nú nefnist Skeljungur. Guðbjörg kona hans var Ijósmóðir Sigluíjarðarbæjar, og hafði nógu aó sinna í sínu starfi, því að þá ijölgaði fólki mjög í þessum bæ og allt var í blóma. Guðbjörg hafði tekið á móti mörgum bömum, þegar þetta var, og átti eftir drjúgan starfsdag, svo að væntanlega hefur hún hjálpað mörgum Siglfirðingum inn í þennan syndum spillta heim. Árni og Guðbjörg bjuggu í miðbæ Siglufjarðar. að Túngötu 37. Húsakynni voru hentug og rúmgóð. Rafmagnsstöð var á Siglufirði, og sá Jón, bróðir Áma, um hana. Þarna var útvarpstæki tengt beint í vegg, en ekki við rafgeymi einn eða tvo, eins og ég sá á heimaslóðum. Þetta var nýtískuheimili og velmegun ríkti þar áreiðanlega. Þarna fannst 454 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.