Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Page 23

Heima er bezt - 01.11.2005, Page 23
Auðunn Bragi heima í stofu á Hjarðarhaga. mér gaman að vera. Mat hafði ég ekki bragðað jafn góðan og fjölbreyttan fyrr. Stöðug veisla, að manni fannst. Ingibjörg var dugleg við heimilisverkin, og veitti ekki af, því oft var húsmóðirin fjarverandi vegna starfs síns. Börn áttu þau hjón tvö: Harald og Freyju. Ég lék mér nokkuð með Haraldi, sem er árinu eldri en ég. Hann lánaði ntér sparksleðann sinn, og þaut ég nú á honum um göturnar, undir ntánaskini og stjömuljósum, því að óveðrið gekk vitanlega niður og mjöllin tróðst. Þótti mér mikið sport í þessum skíðaferðum. Já, heimurinn var að opnast, ungum afdaladreng. Freyja var strax orðin álitleg stúlka. Var ég hrifinn af henni, svo lítið bar á. Þarna skammt frá var systir Arna frá Lambanesi, hún Gunnþórunn, sem gift var Helga Kristinssyni, bróður Guðbjargar ljósmóður. Dóttur áttu þau, sem Helga heitir, og er tveimur árum yngri en ég. Einhver var að segja að þarna væri komið konuefni handa mér. Helgi var smiður og liðtækur við fleira. Þau hjón bjtiggu í Þormóðsgötu 23, norðarlega í bænum. Við móðir mín komum þar að vonum. Á Siglufirði dvöldum við víst rúma viku, en ætlunin var að halda inn í Fljót við fyrstu hentugleika. Ákvörðunarstaðurinn var Lambanes í Austur-Fljótum. En förin vildi dragast, vegna þess að ekki var um skipsferð að ræða. Mér fannst hins vegar ekkert gera til, þótt förin drægist eitthvað; best að vera sem lengst hjá Áma og Guðbjörgu. í Lambanesi var hins vegar beðið eftir okkur, og fóru símtöl á milli. Ingibjörg frænka var, eins og áður sagði, vinnukona þarna. Hún var nokkuð lýtt í andliti. Önnur kinn hennar var undirlögð rauðri valbrá. Ég minnist hennar sem alúðlegar og duglegar konu. Til Haganesvíkur komum við loks með póstbátnum „Drangi“, sem gekk milli Akureyrar og Sauðárkróks. Ekki gat báturinn þó tekið land þama, heldur sótti uppskipunarbátur okkur og flutti í land, ásamt margs konar vamingi og pósti. Okkur bar að landi í Haganesvík, eins og fyrr segir, en þar var um langa hríð aðal verslunarstaður Fljótamanna. Þar var Samvinnufélag Fljótamanna og póstafgreiðsla. Allt er þetta nú komið á Ketilás, frammi í sveit. Við komum fyrst til hennar Kristínar veitingakonu í Víkinni. Mörgum veitti hún beina, auðvitað fyrir fullt gjald, enda þurfti hún að lifa á þessu, aumingja konan. Við gengum síðan yfír til Lambaness, yfír Miklavatn, sem þá var lagt mannheldum ísi. Við vomm fljót í fömm frá Víkinni til bæjarins, þar sem hún Anna móðursystir mín bjó. Okkur var vel tekið í Lambanesi. Lengi hafði verið beðið eftir okkur. Komið var fram undir jól. Auk Önnu og Gunnlaugs var þama Kristján, faðir hans, um áttrætt, næstum karlægur og krepptur, þó að hann rétti nokkuð við síðar, þótt ótrúlegt væri. Valgarður, bróðir Gunnlaugs, var smiður og bóndi í Lambanesi og stundum fjarverandi við iðn sína. Hann var ókvæntur alla ævi. Kristján Jóhann Jónsson í Lambanesi varð 104 ára, 4 mánaða og eins dags, andaðist 10. desember 1959. Varð þess vegna með elstu Islendingum fyrr og síðar. Um jólin varð ég 11 ára og skólaskyldur raunar fyrir nokkm. Eftir ármótin var mér komið fyrir í Haganesvík, í húsinu Brautarholti, þar sem Sveinn Stefánsson og Lilja Kristjánsdóttir réðu ríkjum. Þar var kennarinn einnig til húsa og í fæði, hann Sæmundur Dúason, 45 ára að aldri. Hafði lokið námi úr óreglulegri deild Kennaraskólans vorið á undan. Ég var þarna annan hvem mánuð, en hinn í Lambanesi. Hér er best að nema staðar, enda vorum við móðir mín farsællega komin á ákvörðunarstaðinn, eftir dálítið erfiða og ævintýralega för. Lífinu í sveitinni og skólanáminu í Víkinni þennan vetur mætti lýsa í annarri grein. Heimaerbezt 455

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.