Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.11.2005, Qupperneq 25
Fór ég nú að ýja að því að skilja hrútana eftir og ná heldur í þá daginn eftir, en spá hafði um morguninn verið sæmileg fyrir næsta dag, við komnir alla vega þrjá ijórðu af heimleiðinni og því ekkert tiltökumál að sækja hrússana eftir skólatíma næsta dag. Faðir minn vildi halda ferðinni áfram og svo varð enn nokkra hríð, en þá þótti mér sem hrútarnir væru alveg búnir að vera, við sífellt að lyfta undir þá með auknu erfiði, þeir auk þess komnir á snjóminna svæði og í nokkru skjóli einnig. Ég einfaldlega var alveg búinn að vera og hefði helzt kosið að leggjast fyrir í mjúkri fönninni. Farið var einnig heldur betur að draga af föður mínum og hvort sem við ræddum þetta nú lengur eða skemur þá voru hrútarnir skildir þarna eftir undir allgrösugu barði, sem við náðum að skafa nokkuð ofan af. Mér a.m.k., þótti leiðin heim, út og niður hálsinn alveg nógu löng svo aldrei fyrr né síðar þótti mér hún slík og hafi ég einhvem tímann verið örmagna þá var ég það þarna, en faðir minn lét fátt af sinni þreytu og sá ég þó vel að hann var hvíldinni meira en feginn. Það sem verra var þó var að nú hafði spá spillzt til muna og spáði nú öðru áhlaupi daginn eftir, sem svo vissulega gekk eftir í raun, engu síðra hinu fyrra og upprof varð ekki fyrr en á þriðja degi. Mér leið vægast sagt bölvanlega þessa daga, hugsandi til hrússanna og samvizkubitið nagaði: Auðvitað hefði ég getað amlað lengur áfram og máski ekki munað svo miklu hvort hrússarnir hefðu verið reknir alla leið heim, alla vega var vegalengdin sú sama, þreytan enda löngu rokin burt og ósköp auðvelt að láta sem svo að í sama stað hefði niður komið. Sannleikurinn sá að mig fór að dreyma hrútana og einkum þó þann yngsta og fallegasta um leið, eðlileg afleiðing sífellds samvizkubits. Loks á sunnudegi rofaði til og við biðum ekki boðanna og héldum til leitar. Nú var enn meira um skafla en komið víða nokkuð harðfenni og eins hafði víða blásið m.a. af hálsinum, þ.e. drjúgum helmingi leiðarinnar. Hrútana fundum við nær strax, ekki þó á sama stað heldur nokkru nær og greinilegt þótti okkur að þá hefði hreinlega hrakið undan veðri. Þeir voru raunar sem samvaxnir snjóbreiðunni, en þegar nær var komið sáum við að þeir voru bara tveir, sá yngsti og fallegasti var hvergi sjáanlegur. Ég leitaði alls staðar í kring og fór allvítt um til að leita af mér allan grun. Faðir minn rak á meðan niður staf sinn í grennd við verustað hrútanna til að kanna hvort eitthvert holrúm væri þar að finna, ef hrússi væri lífs. Ég fór raunar einnig með stafinn þar sem við þóttumst hafa skilið hrútana eftir, en allt án árangurs. Ég setti vel á mig staðinn en síðan var haldið heim á leið og sannarlega sóttist ferðin seint, svo illa sem hrútarnir voru haldnir, þó heim kæmumst við með þá um síðir. Raunar urðum við að draga þá niður allan hálsinn, enda skailar mestir þar og fannfergi afar mikið. Fannir þessar fóru reyndar ekki með öllu fyrr en í júnílok árið eftir. Þegar við vorum komnir með þá svona 100 metra frá ijárhúsunum þá fór ég og opnaði annað húsið og hleypti ánum út, en hrútarnir voru svo uppgefnir að þeir héldu kyrru fyrir þar sem þeir voru komnir og þegar þeir voru reknir til ánna þá fór því víðsfjarri að þeir litu þær gimdarauga og var þó komið að þeim tíma sem þeir vora vanir að ijörgast vel. Þeir lögðust umsvifalaust fyrir eftir að við höfðum rekið þá inn og bundið vel og þó ilmandi taðan væri borin fram í garðann þá litu þeir ekki við henni. Við höfðum af þessu nokkrar áhyggjur, því þrátt fyrir tvöfalt lengri og enn erfiðari ferð, tókum við faðir minn hraustlega til matar okkar þegar inn var komið, en við höfðum auðvitað ekki staðið úti í stórhríðum í hartnær viku! Morguninn eftir sást þó að hrússar höfðu fengið matarlyst nokkra og ekki höfðu frost og stórhríð drepið úr þeim allan dug, svo ágætlega sem þeir reyndust síðar um veturinn á fengitíð. Ég fór nokkru síðar, þegar nokkuð hafði hlánað, til að gá að uppáhaldshrúti mínum, enda beit mig samvizkan óspart eftir uppgjöfina áður, en ekki sást tangur eða tetur af hrússa mínum og raunar enn ærið nóg af umfangsmiklum sköflum á þessum slóðum. En til að gjöra langa sögu stutta þá fór ég eina ferðina enn á þessar slóðir eftir myndarlega hláku rétt fyrir jólin og þá gekk ég fram á hrússa minn, alllangt frá þeim stað sem hinir hrútamir voru á, þegar í þá var náð. Hann lá þar í lækjarfarvegi þar sem örlög hans höfðu ráðizt, en ömurlegast þótti mér það að sjá að auðnað hafði meira í kringum hann heldur en annars staðar, sem sagði mér að hann hefði lifað nokkurt skeið þama í fönninni áður en hann sálaðist. Siðan þá eru áratugir en ótrúlega oft hvarflar þessi mynd að mér og þó mörgum muni þykja broslegt, þá fínn ég enn til samvizkubits út af því að hafa ekki á sínum tíma neytt allra minna krafta til að koma hrússa mínum í hús. Margar hugrenningar bærast hjá mér og fleiri myndir þessum tíma tengdar, láta á sér kræla enn á ný við þessa upprifjun og þær ærið alvarlegar. Hvað ef ég hefði nú setið fastur í Staðarskarðinu með konu og börn og stórhríðin beljandi næturlangt um blæjujeppann? Eða þá að veðrið hefði skollið á tveim tímum íyrr meðan ég var enn á Reyðarijarðarströndinni? Svona hugsanir eru oft áleitnar og um leið þakklæti til forsjónarinnar að hafa mátt komast klakklaust heim með minn dýrmæta farm, í raun aleiguna. En hrússinn minn fallegi á þarna sinn sess til hliðar við þetta, þar sem samvizkan hrærir við mér enn í dag, áminning um leið að alltaf skyldi gjört svo sem maður framast má megna. Það er nú einu sinni svo að dýrin mín, ekki sízt kindurnar mínar, voru mér ótrúlega kær og um þau hefi ég máski samið bitastæðustu þættina frá liðinni tíð. Það hæfir að hrússi minn sé þar á sínum stalli. Heima er bezt 457
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.