Heima er bezt - 01.11.2005, Page 33
vegar hrós og klapp á öxlina. Faðir hans áleit að sonur
hans yrði dugnaðarforkur þegar hann yrði eldri, “tekur bát
traustataki og rær einn til fiskjar og er bara átta ára.” Mín
var ekki getið, enda fyrir nokkru dottinn út úr sögunni.
Þannig endaði minn fyrsti róður.
Bjössi bátur
Ég hélt mig við uppáhaldsiðju mína, að flækjast niður
á bátabryggju og veiða kola og marhnúta. Ég tók eftir
gömlum, gráskeggjuðum manni sem gekk við staf. Hann
kom oft niður á bryggju. Ef blés af norðri stóð hann kyrr
á bryggjunni og starði upp í vindinn, væri hins vegar
logn og blíðviðri, dundaði hann í kænu sem var bundin
við bryggjuna.Mér fannst maðurinn skrýtinn í hegðun og
spurðist fyrir um hver hann væri. Mér var sagt að hann
hefði unnið hjá sama útgerðarfélagi alla sína starfsævi.
Hann var alltaf bátsmaður og flutti sig milli skipa þegar
útgerðin endurnýjaði togara. Þess vegna fékk hann
aukanefnið “bátur.”
Þegar ég komst til fullorðinsára mundi ég eftir þessum
gamla manni og gerði þennan brag:
Hann sást oft á bryggju styðjast við staf
stirður og ellimóður.
Þar sjóndöprum augum hann horfði út á haf
hokinn og kinnarjóður.
Illum augum norðan gjólunni gaf
gráskeggur einn og hljóður.
Eg vissi að fyrrum var hann og hét
vaskur maður umsetinn.
Átök við sjóinn sinn hlut ekki lét
saltgrár og veðurbitinn.
Nú hugðist gera út á grásleppunet,
gamall, veill og slitinn.
Og í kœnunni sá ég oft Bjössa bát,
bönd og hnúta treysti,
sínum útbúnaði öllum gaf hann gát
gaffal og mastur treysti.
Eitt kvöldið barst mér Bjössa lát
bátinn sinn aldrei leysti.
Nú lokið var Bjössa lífsins hlaup
lítið samt verk hans metið,
á Sjómannadaginn svolítið raup,
sem ekki verður þó étið.
Eg spyr með undrun hvar er kaup
kappans sem um var getið?
GÁTUR
Þetta er sönn saga, sem gerðist á Taiwan:
Syni ríks manns var rænt. Ræninginn skildi
eftir miða þar sem hann krafðist í lausnargjald
verðmæts demants, sem átti að skilja eftir í
ákveðnum símaklefa í miðjum almenningsgarði.
Borgaralega klæddir lögreglumenn
umkringdu garðinn, í þeim tilgangi að elta
glæpamannin eða sendiboða hans.
Ríki maðurinn gekk til símaklefans þar sem
hann fann miða með fyrimælum um hvað hann
ætti að gera. Fór hann nákvæmlega eftir þeim,
en lögreglan gat ekki á nokkurn hátt komið í
veg fyrir að demanturinn hyrfi úr garðinum og
í hendur hins brögðótta þorpara. Hvað gerði
hann?
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Kona á 7 börn og er helmingurinn af þeim
drengir. Hvernig má það vera?
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Bóndi og vinnumaður hans voru að setja
kartöflur í geymslu. Bóndinn bar einn poka af
kartöflum og vinnumaðurinn tvo poka. Hvor
þeirra bar meiri þyngd og hvers vegna?
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Strákur nokkur var á útihátíð og gekk að bás
þar sem var maður, sem sagði: “Ef ég skrifa
nákvæmlega þyngd þína á þetta þlað, þá áttu að
greiða mér 500 krónur, en ef ég get það ekki þá
borga ég þér 500 krónur.
Strákurinn leit í kringum sig á sá ekki neina
vigt, svo hann samþykkti þetta, með það í
huga að það væri sama hvað karlinn segði,
hann myndi alltaf segja honum að hann væri
annað hvort þyngri eða léttari en það, sem hann
skrifaði.
En svo fór þó að strákurinn varð að greiða 500
krónur. Hvernig vann maðurinn veðmálið?
Svörin verða birt í næsta blaði.
Heima er bezt 465